Landinn eyðir og eyðir í neyslu

Hag­vöxtur á fyrstu sex mán­uðum árs­ins var 0,6 pró­sent að raun­gildi sam­kvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti síð­ast­lið­inn föstu­dag. Það er langt fyrir neðan flestar spár þegar árið er skoðað í heild. Spá Seðla­banka Íslands gerir ráð fyrir 3,4 pró­sent hag­vexti í ár og spá efna­hags­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins var á svip­uðum nótum. Seðla­bank­inn spáir því að vöxt­ur­inn komi ekki síst til vegna aukn­ingar í fjár­fest­ingu, þá sér­stak­lega á síð­ari helm­ingi árs­ins. Hag­vaxt­ar­töl­urnar fyrir fyrri helm­ing árs­ins eru þó tölu­vert lægri en spáin fyrir tíma­bilið gerði ráð fyrir, sem var upp á tæp­lega eitt pró­sent.

Hvert prósent telur drjúgt


Á fyrstu sex mán­uð­unum juk­ust þjóðar­útgjöld, sem er sam­tala neyslu og fjár­fest­ingar, tölu­vert umfram hag­vöxt, eða um 2,8 pró­sent. Einka­neysla er að aukast tölu­vert þessa dag­ana, miðað við árið á undan, og jókst um fjögur pró­sent miðað við sama tíma­bil í fyrra. Fjár­fest­ing jókst um 7,8 pró­sent og heldur áfram að rétta úr kútnum eftir mögur ár í kjöl­far hruns fjár­mála­kerf­is­ins. Athygli vekur að inn­flutn­ingur jókst um níu pró­sent á meðan útflutn­ingur jókst tölu­vert minna, eða um 3,7 pró­sent.

Nýbyggingar aukast


Vöxtinn í fjár­fest­ingum má ekki síst rekja til mik­illar aukn­ingar í íbúða­fjár­fest­ingu en hún jókst um 26,3 pró­sent milli ára. Fjár­fest­ing hins opin­bera jókst um 6,2 pró­sent en fjár­fest­ing atvinnu­vega jókst um 3,8 pró­sent, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Hagstofu Íslands. Sér­stak­lega var mikil fjár­fest­ing í gangi á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, eða mark­tækt meiri en á öðrum árs­fjórð­ungi.

Innflutningur eykst


Aug­ljós­lega má sjá merki um meiri neyslu hjá almenn­ingi í hag­tölum um inn­flutn­ing. Hann jókst um níu pró­sent eins og áður segir. Þar af jókst þjón­ustu­inn­flutn­ingur um 11,9 pró­sent og vöru­inn­flutn­ingur um 7,4 pró­sent.

Neysludrifinn hagvöxtur


Hag­vöxt­ur­inn, þó veikur hafi verið á fyrstu mán­uðum árs­ins, er þessa dag­ana ekki síst drif­inn áfram af auk­inni neyslu. Sam­an­lagður afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum var 28,5 millj­arðar á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sem er mun minna en í fyrra. Á sama tíma­bili á því ári var sú tala 54,1 millj­arður króna, eða ríf­lega 25 millj­örðum hærri tala en á þessu ári.

Leiðréttingin ekki byrjuð að hafa áhrif


Aðgerð stjórn­valda sem nefn­ist leið­rétt­ingin, þar sem mögu­legt verður að fá fé úr rík­is­sjóði til að lækka höf­uð­stól verð­tryggðra hús­næð­is­lána, er ekki enn farin að hafa áhrif á efna­hag þjóð­ar­innar. Seðla­banki Íslands var­aði við ­aðgerð­unum, líkt og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn, og taldi að þær gætu haft neyslu­hvetj­andi áhrif og að fólk myndi nýta féð sem það fær, það er bætta skulda­stöðu, til þess að fjár­festa, ekki síst í hús­næði. Í versta falli gætu þær leitt til ójafn­vægis í þjóð­ar­bú­skapnum, kynt undir neyslu og veikt gengi krón­unnar.

Ríflega 65 þús­und umsóknir bár­ust um leið­rétt­ingu í gegnum vef­inn leidrett­ing.is og standa um 100 þús­und ein­stak­lingar að baki umsókn­unum. Þar af sóttu 23 þús­und ein­stak­lingar um að ráð­stafa sér­eigna­sparn­aði sínum til þess að greiða niður hús­næðis­lán. Ekki liggur enn fyrir hvað fólk mun bera úr býtum í gegnum þessar aðgerðir stjórn­valda en heild­ar­um­fang aðgerð­anna er ­áætlað um 150 millj­arðar króna og að þar af muni 80 ­millj­arðar renna úr rík­is­sjóði til þess að greiða inn á ­verð­tryggðar hús­næð­is­skuldir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár