Íslandsmeistari sýknaður af ásökunum um svindl

Dómstóll ÍSÍ hefur stað­fest nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefndar Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, og sýknað Arnar Pét­urs­son, Íslands­meist­ara karla í mara­þoni, af ásök­unum um svindl í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu. Þetta kemur fram í dóms­orði dóm­stóls ÍSÍ, sem Kjarninn hefur undir höndum.

Eins og Kjarninn greindi frá kærði hlaupar­inn Pétur Sturla Bjarna­son úrslit Reykja­vík­ur­mara­þons­ins til yfir­dóm­nefndar mara­þons­ins og sak­aði Arnar Pét­urs­son um að hafa svindlað í hlaup­inu með því að njóta lið­sinnis tveggja hjól­reiða­manna. Í nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefndar er við­ur­kennt að reglur mara­þons­ins hafi verið brotnar, en ekki þyki sannað að hjól­reiða­menn­irnir hafi aðstoðað Arnar í hlaup­inu. Pétur Sturla kærði þá nið­ur­stöðu dóm­nefnd­ar­innar til dóm­stóls ÍSÍ, og krafð­ist þess að þátt­töku­réttur Arnars yrði dæmdur ógildur og hann yrði sviptur Íslands­meist­aratitli karla í mara­þoni.

Dómsorð dóm­stóls ÍSÍ er sam­hljóða nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefndar Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, en kær­andi hefur eina viku til að áfrýja nið­ur­stöð­unni til áfrýj­un­ar­dóm­stóls ÍSÍ.

Í 10. grein reglna Reykja­vík­ur­mara­þons segir: "Hlaupa­brautin er ein­göngu ætluð kepp­endum. Ekki er heim­ilt að fylgja hlaup­urum gang­andi, hlaup­andi, á hjóli eða öðrum far­ar­tækjum (und­an­þága fyrir fylgd­ar­menn fatl­aðra). Það er á ábyrgð þátt­tak­enda að vísa frá þeim sem vilja fylgja." Í 18. grein regln­anna segir enn­fremur: "Brot á ofan­greindum reglum ógilda þátt­tökurett í hlaup­inu."

Eins og áður segir við­ur­kenndi yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons í nið­ur­stöðu sinni að reglur mara­þons­ins hafi verið brotnar, tveir hjól­reiða­menn hafi fylgt Arnari þrjá fjórðu hluta hlaups­ins. Í grein­ar­gerð Íþrótta­banda­lags Reykja­víkur, sem send var fyrir hönd yfir­dóm­nefndar Reykja­vík­ur­mara­þons­ins til dóm­stóls ÍSÍ vegna máls­ins, segir: "Kæran lýtur að úrslitum í Íslands­meist­ara­móti í mara­þoni sem Reykja­vík­ur­mara­þon tók að sér að fram­kvæma fyrir hönd Frjáls­í­þrótta­sam­bands Íslands. Slík keppni heyrir undir reglur Alþjóða frjáls­í­þrótta­sam­bands­ins (IAAF) um fram­kvæmd götu­hlaupa og mara­þons sem við lítum svo á ða séu reglum hlaups­ins æðri." Í áður­nefndum reglum IAAF er hvergi minnst á að bannað sé að hjóla með hlaup­urum, en í 2. grein almennra keppn­is­reglna IAAF er lúta að aðstoð, ráð­gjöf og upp­lýs­ingum segir: "Hver sá kepp­andi sem veitir eða fær aðstoð innan keppn­i­svæðis meðan á keppni stendur skal yfir­dóm­ari aðvara og benda á að ef slíkt end­ur­taki sig verði hann gerður leik­rækur."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár