MS sektað um 370 milljónir vegna samkeppnislagabrota

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur sektað Mjólku­sam­söl­una (MS) um 370 millj­ónir króna vegna mis­notk­unar á mark­aðs­ráð­andi stöðu, sem er brot á sam­keppn­is­lögum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu sem birt er á heima­síðu þess. MS beitti smærri keppi­nauta sam­keppn­is­hamlandi mis­munun með því að selja þeim hrá­mjólk á 17 pró­sent hærra verði en fyr­ir­tæki sem eru tengd MS greiddu.

Ítarlega frétta­til­kynn­ingu eft­ir­lits­ins vegna máls­ins má sjá hér.

Í henni segir meðal ann­ars frá for­sögu máls­ins. Með breyt­ingum á búvöru­lögum á árinu 2004 var ákvæðum sam­keppn­islaga sem ætlað er að vinna gegn sam­keppn­is­hamlandi sam­runa og sam­ráði vikið til hliðar á mjólk­ur­mark­aði. „Fyrir breyt­ing­arnar voru starf­andi fimm mjólk­ur­af­urða­stöðvar hér á landi en sam­runar sem ekki hefur verið unnt að hlut­ast til um á grund­velli sam­keppn­islaga hafa leitt til því sem næst ein­ok­un­ar­stöðu MS og tengdra félaga í vinnslu og heild­sölu­dreif­ingu á mjólk­ur­af­urðum. Á grund­velli und­an­þágu frá banni sam­keppn­islaga við sam­ráði hafa KS og MS með sér mikið sam­starf í fram­leiðslu og sölu á mjólk­ur­af­urðum og auk þess á KS 10% hlut í MS. Af hálfu MS er sagt að líta beri á MS, KS og Mjólku undir eign­ar­haldi KS sem eina „við­skipta­lega heild.“ Ekki leikur vafi á því að MS er í mark­aðs­ráð­andi stöðu,“ segir í til­kynn­ingu eft­ir­lits­ins.

Þá er tekið fram að rann­sóknin hafi leitt í ljós mis­munun gagn­vart sam­keppn­is­að­ilum, og neyt­endur hafi skað­ast á end­anum.

 

„Rannsókn máls­ins hefur leitt í ljós að MS hefur mis­munað Mjólk­ur­bú­inu og áður Mjólku á meðan hún var í eigu fyrri eig­enda, með því að selja fyr­ir­tækj­unum óger­ilseydda hrá­mjólk á allt að 17% hærra verði en gilti gagn­vart tengdum aðilum, þ.e. KS og síðar Mjólku þegar hún hafði verið seld KS. Var þessi mis­munun í hrá­efn­is­verði til þess fallin að veikja Mjólku sem keppi­naut MS og tengdra félaga og stuðla að sölu félags­ins til KS. Eftir að Mjólka komst í eigu KS fékk félagið hrá­mjólk á allt öðru og lægra verði en áður frá MS, en þegar félagið var keppi­nautur MS og KS á mjólk­ur­vöru­mark­aði. Hrámjólk er grund­vallar hrá­efni til vinnslu mjólk­ur­af­urða og hefur mis­munun í verði hennar aug­ljós áhrif á mögu­leika þess fyr­ir­tækis sem sætir henni til þess að keppa. Umræddir keppi­nautar MS þurftu ekki aðeins að sæta því að mark­aðs­ráð­andi fyr­ir­tæki beitti þá mis­munun í verði heldur einnig að félög tengd MS fengju þetta hrá­efni á mun lægra verði sem var til þess fallið að veita þeim veru­legt sam­keppn­is­for­skot gagn­vart keppi­nautum. Með þessu móti var geta þeirra til þess að keppa við MS og tengd félög skert með alvar­legum hætti og mark­aðs­ráð­andi staða MS sam­stæð­unnar varin. Er það til þess fallið að skaða á end­anum hags­muni neyt­enda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár