Meint maraþonsvindl fyrir dómstól ÍSÍ í næstu viku

Dómstóll ÍSÍ mun í næstu viku kveða upp dóm sinn varð­andi meint svindl Arnars Pét­urs­sonar í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu. Þetta stað­festir Gunnar Guð­munds­son for­maður dóm­stóls­ins í sam­tali við Kjarnann. Arnar kom fyrstur Íslend­inga í mark í hlaup­inu, og var krýndur Íslands­meist­ari karla í mara­þoni.

Hlaupar­inn Pétur Sturla Bjarna­son, sem kom annar í enda­mark Reykja­vík­ur­mara­þons­ins rúmum níu mín­útum á eftir Arnari, kærði úrslit hlaups­ins til yfir­dóm­nefndar mara­þons­ins. Í kæru máls­ins er Arnar sak­aður um svindl með því að njóta lið­sinnis tveggja hjól­reiða­manna í hlaup­inu, sem hafi verið brot á reglum mara­þons­ins. Kjarninn greindi fyrst frá mál­inu.

Í reglum Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, segir í 10. grein: "Hlaupa­brautin er ein­göngu ætluð kepp­endum. Ekki er heim­ilt að fylgja hlaup­urum gang­andi, hlaup­andi, á hjóli eða öðrum far­ar­tækjum (und­an­þága fyrir fylgd­ar­menn fatl­aðra). Það er á ábyrgð þátt­tak­enda að vísa frá þeim sem vilja fylgja."

Verður Íslandsmeistari karla í maraþoni sviptur titlinum?


Yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins tók kæruna til efn­is­legrar með­ferðar á fundi þann 28. ágúst síð­ast­lið­inn. Í úrskurði dóm­nefnd­ar­innar er við­ur­kennt að reglur mara­þons­ins hafi verið brotnar, en hin birtu úrslit hlaups­ins skuli engu að síður standa óhögguð. Ekki þótti sannað að Arnar hafi notið aðstoðar hjól­reiða­mann­anna, og í ljósi yfir­burða Arnars í hlaup­inu taldi dóm­nefndin að fylgd umræddra hjól­reiða­manna hafi ekki haft áhrif á úrslit mara­þons­ins.

Á meðal gagna máls­ins, sem lágu til grund­vallar úrskurði dóm­nefnd­ar­innar, voru and­mæli og grein­ar­gerð frá Arnari Pét­urs­syni og föður hans, Pétri Hrafni Sig­urðs­syni sem var annar hjól­reiða­mann­anna sem hjólaði með Arnari í hlaup­inu. Kærandi máls­ins var mjög ósáttur við að yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, hefði ekki sömu­leiðis leitað eftir grein­ar­gerð frá honum í mál­inu, og sendi athuga­semd þess efnis til dóm­stóls ÍSÍ.

Pétur Sturla, sem sigr­aði í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu í fyrra, kærði jafn­framt úrskurð yfir­dóm­nefndar mara­þons­ins til dóm­stóls­ins og krefst þess að þátt­taka Arnars Pét­urs­sonar í hlaup­inu verði dæmd ógild. Dómstóll ÍSÍ veitti þá yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins frest til að bregð­ast við kærunni í formi grein­ar­gerðar. Íþrótta­banda­lag Reykja­víkur, sem hefur umsjón með fram­kvæmd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, hefur skilað inn umbeð­inni grein­ar­gerð fyrir hönd yfir­dóm­nefndar mara­þons­ins. Beiðni Kjarnans um að fá umrædda grein­ar­gerð afhenda var hafnað.

Eins og fyrr segir mun nið­ur­staða dóm­stóls ÍSÍ liggja fyrir í næstu viku, og þá mun koma í ljós hvort krafa um að Arnar Pét­urs­son verði sviptur tit­il­inum nái fram að ganga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár