Skref í rétta átt í skattamálum

Nýlega lagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra fram til­lögur um nokkuð viða­miklar breyt­ingar á virð­is­auka­skatts­kerf­inu. Meg­in­breyt­ing­ar­til­lög­urnar eru að lægra skatt­þrep kerf­is­ins verði hækkað úr 7% í 12%, hærra þrepið lækkað úr 25.5% í 24%, og almenn vöru­gjöld verði felld niður. Samhliða þessu er lagt til að barna­bætur hækki um 13% en skerð­ist hraðar fyrir tekju­háar fjöl­skyldur.
Þegar á heild­ina er litið eru þessar til­lögur mik­il­vægt skref í rétta átt í skatta­málum. Breyt­ing­arnar eru skref í átt að hag­kvæmara skatt­kerfi. Það er sér­stak­lega mik­il­vægt fyrir land eins og Ísland – þar sem skattar eru háir – að skatt­kerfið sé ekki óþarf­lega óhag­kvæmt. Grunn­hugs­unin, þegar kemur að því að lág­marka óhag­ræðið sem hlýst af sköttum, er að skattar séu flatir og skatt­stofn­inn sem stærstur.

En hvað með tekjulág heimili?


En hag­kvæmni er ekki eina mark­miðið þegar kemur að hönnun skatt­kerf­is­ins. Það skiptir einnig máli (að flestra mati) að hugað sé að því hver borgar skatt­ana. Mörgum er sér­stak­lega umhugað um að skatt­kerfið sé notað til þess að bæta hag lág­tekju­fólks. Þar sem matur vegur þyngra í heild­ar­út­gjöldum lág­tekju­fólks en þeirra sem hafa hærri tekjur telja sumir að skattar á mat eigi að vera lágir. Vandinn er að lágur mat­ar­skattur er óhag­kvæm leið til þess að bæta hag þeirra sem verst eru settir. Hækkun per­sónu­af­slátt­ar­ins eða lækkun lægri þrepa tekju­skatts­kerf­is­ins eru hag­kvæm­ari leiðir til þess að ná sama mark­miði.

Þegar virð­is­auka­skattur á mat er lækk­aður lækka vissu­lega skattar þeirra lægst laun­uðu. Skattar þeirra sem eru með hærri tekjur lækka hins vegar ennþá meira þar sem þeir eyða meira fé í mat en lág­launa­fólk. Af þessum sökum er lækkun virð­is­auka­skatts á mat dýr og óskil­virk leið til þess að bæta hag lág­tekju­fólks. Mun ódýr­ari og skil­virk­ari leið væri hækkun per­sónu­af­slátt­ar­ins.
Síðustu daga hafa margir sem bera hag lág­tekju­fólks fyrir brjósti mót­mælt til­lögum Bjarna Bene­dikts­sonar um hækkun mat­ar­skatts­ins. Þetta fólk er ef til vill með hjartað á réttum stað en mót­mæli þess eru illa ígrunduð. Í stað þess að mót­mæla grunn­breyt­ing­unni ættu þessir aðilar að þrýsta á Bjarna að nota stærri hluta þess fjár sem aflað er með hærri mat­ar­skatti til þess að hækka per­sónu­af­slátt­inn. Með því móti væri unnt að bæta hag lág­tekju­fólks mun meira fyrir sama pen­ing.

Rétti mælikvarðinn?


Í umræð­unni um þessar breyt­ingar hafa ýmsir bent á að sára­lít­ill munur er á vægi mat­væla í neyslu heim­ila með lágar tekjur og heim­ila með háar tekjur. Árin 2010-2012 var vægi mat­væla í neyslu þess fjórð­ungs heim­ila sem var með lægstar tekjur 14,7% á meðan vægi mat­væla var 14,5% hjá þeim fjórð­ungi heim­ila sem hæstar tekjur hafði. Þessar tölur hafa verið not­aðar til þess að færa rök fyrir því að ­sára­litlar mót­væg­is­að­gerðir, í formi t.d. hærri per­sónu­af­sláttar, þurfi til þess að tryggja að hagur heim­ila með lágar tekjur batni við breyt­ing­arnar (Ég hef sjálfur gerst sekur um slíka rök­semda­færslu).

Vandinn er að þetta eru ekki alveg réttar tölur til þess að nota í þessu sam­hengi. Ástæða þess er að tekjur heim­ila sveifl­ast upp og niður og tekjur yfir skamman tíma gefa því ekki endi­lega rétta mynd af því hversu vel sett heim­ili eru. Neysla heim­ila er betri mæli­kvarði en tekjur í þessu sam­hengi þar sem neysla ræðst ekki aðeins af tekjum sama árs heldur einnig af vænt­ingum um tekjur í fram­tíð­inni.
Vægi mat­væla hjá þeim fjórð­ungi heim­ila sem var með lægst útgjöld á árunum 2010-2012 var 17,3% en ein­ungis 14,0% hjá þeim fjórð­ungi heim­ila sem var með hæst útgjöld. Á þennan mæli­kvarða er því tals­vert meiri munur á útgjalda­mynstri þeirra best settu og þeirra verst settu. Til þess að tryggja að hagur þeirra síðar­nefndu batni þarf því að ráð­ast í meiri mót­væg­is­að­gerðir í formi t.d. hærri per­sónu­afsláttar en töl­urnar sem mest hafa verið not­aðar gefa til kynna. Ég vil því hvetja Bjarna Bene­dikts­son til þess að bæta hækkun á per­sónu­af­slætt­inum við til­lögur sínar. Ef hann gerir það verða engin hald­bær rök gegn þeim breyt­ingum sem hann leggur til.

Heimili sem safna skuldum


Alþýðu­sam­band Íslands hefur vakið athygli á því að hjá sumum tekju­lágum heim­ilum er neysla langt umfram tekjur. Þetta á til dæmis við um náms­menn sem vænta þess að hafa mun hærri tekjur í fram­tíð­inni og taka því lán til þess að jafna neyslu sína yfir tíma. Hjá slíkum heim­ilum eru útgjöld til mat­ar­kaupa mun stærra hlut­fall af tekjum en hjá fólki um miðjan aldur sem er almennt að greiða niður náms­lán og safna í sjóð til eldri ára.

Alþýðu­sam­bandið virð­ist telja að þetta geri það að ­verkum að til­lögur Bjarna komi sér­stak­lega illa niður á þessum heim­ilum. Þetta er ekki rétt. Slík heim­ili eyða einnig mun meiru, sem hlut­fall af tekjum, í vörur sem eru í hærra skatt­þrep­inu. Þau hagn­ast því meira af lækkun hærra þreps­ins (og afnámi vöru­gjalda) og tapa meira á hækkun lægra þreps­ins. Hvort þau koma betur eða verr út þegar á heild­ina er litið ræðst af vægi matar í heild­ar­út­gjöldum, ekki hlut­falli mat­ar­út­gjalda í heild­ar­tekjum. Þær tölur sem koma fram í minn­is­blaði ASÍ frá 9. sept­em­ber 2014, sem vakið hafa tals­verða athygli og vitnað hefur verið til á Alþingi, eru því ekki rétti mæli­kvarð­inn til þess að leggja mat á nauð­syn­legt umfang mót­væg­is­að­gerða fyrir þau heim­ili sem verst eru sett fjár­hags­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár