Fyrirtæki Íslendings metið á allt að 240 milljarða

Unity Technologies, sem fram­leiðir verk­færi fyrir tölvu­leikja­fram­leið­endur, ekki síst leiki fyrir snjall­síma, er nú að vega og meta hvaða mögu­leika fyr­ir­tækið hefur til fram­tíðar. Einn mögu­leik­inn er að fyr­ir­tækið verði selt til nýrra eig­enda. Verð­mið­inn er á bili einn til tveir millj­arðar dala eða sem nemur allt að 240 millj­örðum króna. Þetta kom fram á vef­síð­unni venturebeat.com fyrir skemmstu.

Íslend­ing­ur­inn Davíð Helgason (lengst til hægri á með­fylgj­andi mynd) er einn eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins og tók þátt í því að stofna það árið 2003, ásamt Dana og Þjóð­verja, Joachim Ante og Nicholas Francis. Fyr­ir­tækið hefur vaxið hratt á und­an­förnum árum. Í við­tali við Við­skipta­blaðið í júlí á þessu ári kom fram hjá Davíð að hann stýrði nú 300 manna fyr­ir­tæki í San Francisco sem teygði anga sína til 15 landa, en Davíð er for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins.

Davíð er sonur Sigrúnar Dav­íðs­dóttur, frétta­konu RÚV, og hálf­bróðir Egils Helga­sonar fjöl­miðla­manns.

Á síð­ustu fimm árum hefur velta fyr­ir­tæk­is­ins tvö­fald­ast árlega en rúm­lega helm­ingur þeirra sem þróa for­rit fyrir far­síma og spjald­tölvur styðst við tækni Unity, að því er fram kom í við­tali við Davíð í Við­skipta­blað­inu.

Davíð sagð­ist í sam­tali við Kjarnann ekki geta tjáð sig um þessar fréttir, en sagði að það gengi mjög vel hjá fyr­ir­tæk­inu og þegar þannig væri þá fylgdi því oft áhugi frá öðrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár