Karl Axelsson settur hæstaréttardómari

Karl Axelsson hrl. hefur verið settur dóm­ari við Hæsta­rétt frá 16. októ­ber og fram til 15. apríl á næsta ári. Hann leysir Viðar Má Matth­í­as­son af en hann hefur fengið leyfi frá störfum til þess að skrifa bók um vátrygg­ing­ar­rétt.

Karl hefur ára­tug­a­reynslu af lög­mennsku og er einn eig­enda lög­manns­stof­unnar LEX. Hann hefur auk þess kennt nám­skeið um eign­ar­rétt við Háskóla Íslands frá 1992, en hann er dós­ent við laga­deild­ina, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef­síðu LEX.

Karl hefur í gegnum tíð­ina tekið að sér marg­vís­leg stór og viða­mikil verk­efni á sviði lög­fræði, fyrir hið opin­bera, ein­stak­linga og fyr­ir­tæki. Hann hefur verið nokkuð áber­andi í mál­flutn­ingi und­an­farin ár, meðal ann­ars sem lög­maður Magnúsar Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, en nokkur mál ákæru­valds­ins gegn Magnúsi eru til með­ferðar í dóms­kerf­inu, þar á meðal er Al-Thani málið sem bíður þess að verða tekið fyrir í Hæsta­rétti. Það er á dag­skrá síð­ari hluta jan­ú­ar­mán­aðar á næsta ári en í hér­aði var Magnús dæmdur í þriggja ára fang­elsi.

Að sögn Þor­steins Jóns­sonar, skrif­stofu­stjóra Hæsta­réttar, gilda almennar van­hæf­is­reglur um störf dóm­ara og því mun Karl „að sjálf­sögðu ekki“ koma með neinum hætti að málum þar sem hann hefur verið að gæta hags­muna skjól­stæð­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár