Arion banki gjaldfærði hálfan milljarð vegna kaupauka

Arion banka sam­stæðan gjald­færði 494 millj­ónir króna á síð­asta ári vegna kaupauka til ríf­lega hund­rað starfs­manna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi bank­ans. Greiðslur vegna kaupauka árið áður námu 78 millj­ónum króna.

Kaupauka­kerf­inu var komið á innan bank­ans á síð­asta ári, í sam­ræmi við reglur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, en kaup­auki getur að hámarki numið 25 pró­sentum af heild­ar­launum starfs­manns. Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp á Alþingi sem veitir fjár­mála­fyr­ir­tækjum heim­ild til að hækka hlut­fall kaupauka af launum upp í 100 pró­sent, að und­an­gengnu sam­þykki hlut­hafa­fundar við­kom­andi fyr­ir­tækis.

Samkvæmt árs­reikn­ingi Íslands­banka gjald­færði bank­inn 271 milljón króna vegna greiðslu kaupauka til starfs­manna á síð­asta ári, borið saman við 68 millj­ónir árið áður. Íslands­banki útvíkk­aði kaupauka­kerfi bank­ans á síð­asta ári og nær það nú til um hund­rað starfs­manna.

Hjá Lands­bank­anum er ekki við lýði sér­stakt kaupauka­kerfi, en rík­is­bank­inn verð­laun­aði starfs­menn sína á síð­asta ári með því að gefa þeim tæp­lega eitt pró­sent í bank­anum í formi kaupauka. Gjörn­ing­ur­inn var liður í sam­komu­lagi frá árinu 2009, um fjár­hags­upp­gjör milli gamla og nýja Lands­bank­ans. Skatta­legt verð­mæti hluta­bréf­anna nam 4,7 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár