Kristín hyggst hætta sem rektor HÍ á næsta ári

Kristín Ing­ólfs­dóttir, rektor Háskóla Íslands, til­kynnti starfs­fólk skól­ans á opnum fundi fyrr í dag að hún hygð­ist ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri þegar öðru kjör­tíma­bili hennar sem rektor lýkur á næsta ári. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Háskóla Íslands.

Kristín hefur gegnt emb­ætti rekt­ors frá árinu 2005 og hún sagði m.a á fund­inum, sam­kvæmt til­kyknn­ingu, að það hefðu verið mikil for­rétt­indi að gegna starfi rekt­ors og fá að fylgj­ast með „metn­aði, vinnu­hörku, sókn og árangri starfs­fólks í kennslu og vís­indum við erf­iðar aðstæður. Þar hafi sam­ein­aður vilji til þjóna íslensku sam­fé­lagi sem best ráðið för.“

Til­kynn­ing­una vegna áforma Krist­ínar má lesa í heild hér að neðan.

„Kristín Ing­ólfs­dóttir, rektor Háskóla Íslands, til­kynnti starfs­fólki á opnum fundi í dag að hún muni ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri þegar öðru fimm ára kjör­tíma­bili hennar sem rektor lýkur 1. júlí á næsta ári. Kristín var fyrst kjörin rektor árið 2005. Lög um skól­ann og reglur hans tak­marka ekki hversu lengi sama mann­eskja getur gegnt rekt­ors­starfi en Kristín kvaðst telja að tíu ár væri hámarks­tími, bæði fyrir stofn­un­ina og fyrir þann sem starf­inu gegnir.

Kristín sagði mik­il­vægt fyrir skól­ann að end­ur­nýja reglu­lega stefnu sína og meta áherslu­verk­efni. Hún rakti þau verk­efni sem nú eru brýn­ust. Þar ber hæst áhersla á að styrkja fjár­mögnun starf­sem­innar, efla þver­fræði­lega sam­hæf­ingu innan skól­ans og sam­starf við atvinnu­líf, áhersla á nýsköpun fyrir sam­fé­lagið, efl­ing kenn­ara­mennt­unar og þróun nýrra kennslu­hátta við háskól­ann. Kristín nefndi að eðli margra náms­greina væri að breyt­ast og því fylgdu nýjar áherslur og kröfur, m.a. um aukna stærð­fræði­þekk­ingu í hug- og félags­vís­indum og aukna þekk­ingu í upp­lýs­inga­tækni í mörgum greinum líf- og heil­brigð­is­vís­inda. Þá sagði Kristín að beðið væri skýrslu utan­að­kom­andi erlendra og inn­lendra sér­fræð­inga á stöðu kenn­ara­mennt­unar við HÍ í alþjóð­legum sam­an­burði og ráð­gjafar um hvernig efla megi kenn­ara­menntun í land­inu.

Kristín gerði að sér­stöku umtals­efni fram­lag jarð­vís­inda­manna Háskóla Íslands og Veð­ur­stofu Íslands vegna yfir­stand­andi eldsum­brota. Þarna væri um að ræða gíf­ur­lega mik­il­vægt fram­lag til vís­inda en ekki síður fram­lag í formi sam­fé­lags­legrar ábyrgðar, sem felst í upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings gegnum fjöl­miðla og sam­fé­lags­miðla sem og ráð­gjöf í sam­starfi við Almanna­varnir.

Rektor ræddi um nýlega samn­inga sem HÍ hefur gert við erlenda háskóla í Banda­ríkj­unum, Ástralíu og Kína, og þá mögu­leika sem þeir skapa fyrir stúd­enta og starfs­fólk. Nýir samn­ingar við Cornell-háskóla og Uni­versity of Wisconsin gefa nem­endum HÍ kost á að taka hluta af námi við þessa háskóla án þess að greiða skóla­gjöld. Þessir samn­ingar opna því svip­aða mögu­leika fyrir stúd­enta og samn­ingar sem gerðir hafa verið við Stanford-háskóla, Uni­versity of California og Caltech. Skóla­gjöld við banda­ríska og breska háskóla hafa hækkað mikið að und­an­förnu og sem dæmi má nefna að árleg skóla­gjöld við Cornell-háskóla nema um sex millj­ónum króna. Kristín nefndi sér­stak­lega nýgerðan samn­ing við Tsinghua-háskóla í Kína, en honum er oft líkt við MIT í Banda­ríkj­unum. Með samn­ingnum opn­ast mögu­leikar fyrir nem­endur í kín­versku og fjöl­mörgum greinum innan skól­ans að taka hluta af námi við Tsinghua.

Kristín lauk fundi sínum með starfs­fólki skól­ans með því að lýsa því hversu mikil for­rétt­indi hefðu fylgt því að gegna starfi rekt­ors og fyrir að fá að fylgj­ast með metn­aði, vinnu­hörku, sókn og árangri starfs­fólks í kennslu og vís­indum við erf­iðar aðstæður. Þar hafi sam­ein­aður vilji til þjóna íslensku sam­fé­lagi sem best ráðið för. Kristín sagð­ist vona að þetta væri í síð­asta sinn sem nið­ur­skurður og hag­ræð­inga­krafa gagn­vart Háskóla Íslands ein­kenndu fjár­laga­frum­varpið. Hún myndi kapp­kosta í vetur að treysta eftir megni fjár­mögnun skól­ans og tryggja að staðið yrði við lof­orð sem skól­anum hafa verið gefin um fjár­mögnun til fram­tíðar og vinna að því að treysta nýjar leiðir til fjár­öfl­unar. Allt yrði gert til að tryggja að nýr rektor og háskóla­sam­fé­lagið allt geti horft fram á bjart­ari tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár