Ríkissaksóknari vísar gagnrýni Jóns Óttars á bug

Sigríður Frið­jóns­dóttir, rík­is­sak­sókn­ari, vísar á bug ásök­unum Jóns Óttars Ólafs­sonar, fyrr­ver­andi starfs­manns hjá Sér­stökum sak­sókn­ara, um að hún hafi látið undir höfuð leggj­ast að rann­saka ábend­ingar hans um að starfs­menn sér­staks sak­sókn­ara fremdu lög­brot með því að hlera sím­töl sak­born­inga við verj­endur. Ávirð­ingar Jóns Óttars komu fram í við­tali við hann sem birt­ist í Frétta­blað­inu á laug­ar­dag­inn. Þar kveðst Jón Óttar hafa bent rík­is­sak­sókn­ara á meint lög­brot innan emb­ættis Sérstaks sak­sókn­ara í grein­ar­gerð árið 2012.

"Hún hefði alveg getað rannsakað þetta"


Jón Óttar seg­ist hafa orðið þess strax áskynja að sér­stakur sak­sókn­ari hler­aði sím­töl verj­enda við skjól­stæð­inga, en slíkt er óheim­ilt sam­kvæmt saka­mála­lögum. Hann seg­ist hafa nokkrum sinnum orðið vitni að því að þegar sím­töl lög­manna hafi verið spiluð í hátal­ara á borði svo sak­sókn­arar og aðrir gætu heyrt hvað mönnum fór á milli, er lög­menn­irnir ráð­lögðu sak­born­ingum og fóru yfir vörn þeirra. "Stemm­ingin í kringum þetta var eins og hjá krökkum í sæl­gæt­is­búð; nú vissu menn betur hvernig verj­endur sak­born­inga myndu stilla vörn­inni upp," segir Jón Óttar.

Í áður­nefndu við­tal segir Jón Óttar: "Það er í grein­ar­gerð­inni okkar nákvæm lýs­ing á þessu, að það er verið að hlusta á sím­töl lög­manna. Samt seg­ist hún ekki hafa haft vit­neskju um þetta fyrr en í fyrra og þá hafi öll málin verið fyrnd. Árið 2012 voru málin ekk­ert fyrnd. Hún hefði alveg getað rann­sakað þetta," segir Jón Óttar.

Segir að farið hafi verið yfir ábendingarnar


Sigríður hafnar þessum ávirð­ingum í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér í dag. Hægt er að lesa yfir­lýs­ing­una í heild sinni á vef rík­is­sak­sókn­ara hér.

Í yfir­lýs­ing­unni segir:„Rík­is­sak­sókn­ari stað­festir að í þeirri grein­ar­gerð koma fram ábend­ingar um mis­fellur við með­ferð rann­sókn­ar­gagna af hálfu starfs­manna við emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara. Þær ábend­ingar sam­rým­ast ekki að öllu leyti því sem fram kemur í við­tali við annan af sak­born­ing­unum, Jón Óttar Ólafsson, í Frétta­blað­inu 13. sept­em­ber sl. og aðrir fjöl­miðlar hafa fjallað um á síð­ustu dögum. Við rann­sókn og með­ferð máls­ins hjá rík­is­sak­sókn­ara á árinu 2012 og í árs­byrjun 2013 var farið yfir umræddar ábend­ingar, meðal ann­ars við skýrslu­tökur af öðrum starfs­mönnum emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Nið­ur­staða rík­is­sak­sókn­ara á þeim tíma var að ekki væri grund­völlur fyrir sér­stakri rann­sókn eða athugun vegna ábend­ing­anna."

Sigríður segir einnig að hún hafi, frá því að hún var skipuð í starfið 2011, leit­ast við að koma á eft­ir­liti með hlust­unum lög­reglu­stjóra og sér­staks sak­sókn­ara. Í þeirri við­leitni hafi hún meðal ann­ars krafið emb­ættin um gögn og upp­lýs­ingar því tengdu. „Þau svör sem borist hafa frá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hafa ekki gefið til­efni til að ætla að þar sé ekki farið eftir ákvæðum laga um með­ferð saka­mála."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár