„Með risavaxinn yfirdrátt sem við ætlum að senda börnunum okkar“

Þor­steinn Víglunds­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir það áhyggju­efni hversu hægt hefur gengið fyrir stjórn­völd að lækka opin­berar skuldir og lækka vaxta­kostnað en sam­kvæmt fjár­lögum fyrir næst ár er áætlað að ríkið greiði 85 millj­arða króna í vexti. Það er upp­hæð sem nemur um þriðj­ungi af öllum útgjöldum rík­is­ins á ári til heil­brigð­is­mála.

Í hlað­varps­þætt­inum Kvikunni, þar sem Þor­steinn er gestur ásamt Sigrúnu Rögnu Ólafs­dóttur, for­stjóra VÍS, segir hann það vera á vissan hátt von­brigði að ekki sé enn búið að fara í „upp­skurð“ á rekstri rík­is­ins með það að mark­miði að lækka skuldir og þar með vaxta­kostnað rík­is­sjóðs. Fjár­lögin sem nú hafa verið lögð fram á Alþingi fyrir næsta ár sýni ekki stefnu­breyt­ingu frá því sem verið hefur hvað þetta varðar.

„Mín kyn­slóð og for­eldra minna hefur gengið í gegnum eina mestu auð­söfnun sem kyn­slóð á Íslandi hefur gengið í gegnum. Lífskjör okkar langt um betri en kyn­slóð­irnar á undan okkur fengu að kynn­ast, en samt erum við með risa­vax­inn yfir­drátt sem við ætlum að senda börn­unum okkar. Það er ekki ásætt­an­legt,“ segir Þor­steinn.

Hlusta má á þátt­inn hér í með­fylgj­andi frétt, og einnig inn á hlað­varps­straumi Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár