Nýtt fasteignamat veldur titringi

Útreikn­ingar Þjóð­skrár á fast­eigna­mati atvinnu­hús­næðis fyrir árið 2015 náðu ein­ungis til 56 pró­senta atvinnu­hús­næðis. Það er versl­unar-, skrif­stofu-, hótel- og iðn­að­ar­hús­næði. Þar nemur hækk­unin átján pró­sentum á milli ára. Restin, 44 pró­sent atvinnu­hús­næðis, svo sem spít­alar, skólar, heima­vist, leik­skólar og íþrótta­hús, var tekin út fyrir sviga. Þar nemur hækkun fast­eigna­mats á milli ára ein­ungis fjórum pró­sentum. Þessi flokkun atvinnu­hús­næðis hefur löngum verið umdeil­an­leg.

Hækkandi fast­eigna­mat hefur víð­tæk áhrif, en lögum sam­kvæmt er því er ætlað að end­ur­spegla gang­verð fast­eigna og mark­aðs­verð­mæti þeirra. Fast­eigna­skattur, fast­eigna­gjöld, reikn­ast af fast­eigna­mati húss og lóðar, og þannig hækka opin­ber gjöld til sveit­ar­fé­lag­anna sam­hliða hækk­andi fast­eigna­mati. Til að mynda er álagn­ing­ar­pró­senta fast­eigna­skatts hjá Reykja­vík­ur­borg 0,2 pró­sent á íbúðar­hús­næði, 1,65 pró­sent á atvinnu­hús­næði og 1,32 pró­sent á aðrar eignir.

Nýja fast­eigna­matið mun hækka tekjur sveit­ar­fé­lag­anna af atvinnu­hús­næði um rúm­lega millj­arð króna árlega. Ljóst er að eig­endur atvinnu­hús­næðis, til að mynda fast­eigna­félögin, munu leita allra leiða til að velta slíkri hækkun út í verð­lagið við gerð og end­ur­nýjun leigu­samn­inga, með til­heyr­andi og óhjá­kvæmi­legri hækkun leigu­verðs. Fyr­ir­tæki sem eiga sitt hús­næði fá strax hækkun á sinn hús­næðis­kostnað. Hærri hús­næð­is­kostn­aður eða hækkun leigu­verðs leiðir svo til hærri fram­leiðslu­kostn­aðar fyrir fyr­ir­tæki, sem neyð­ast þá til að hækka verð á vöru og þjón­ustu með ófyr­ir­séðum verð­bólgu­á­hrifum.


Lestu ítar­lega umfjöllun um hækkað fast­eigna­mat atvinnu­hús­næðis og áhrif þess í nýj­ustu útgáfu Kjarnans hér.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_09_04/8[/embed]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár