Hallgrímur Thorsteinsson ritstýrir DV - Reynir rekinn

Hall­grímur Thor­steins­son, fjöl­miðla­maður til margra ára og umsjón­ar­maður þátt­ar­ins Vikuloka á RÚV, hefur verið ráð­inn rit­stjóri DV. Reynir Trausta­son hefur verið leystur undan starfs­skyldum sem rit­stjóri.

„Við ætlum okkur að efla og styrkja félagið. DV er fjöl­mið­ill sem er mik­il­vægur fyrir íslenskt sam­fé­lag. Blaðið hefur lagt stund á rann­sókn­ar­blaða­mennsku og er það ætlun nýrrar stjórnar að halda áfram á þeirri braut. Slík blaða­mennska gerir miklar kröfur til þeirra sem hana stunda og um leið þarf að vera hafið yfir allan vafa að rit­stjórnin sé sjálf­stæð og öllum óháð,“ segir Þor­steinn Guðnason, stjórn­ar­for­maður útgáfu­fé­lags­ins í til­kynn­ingu vegna ráðn­ingar Hall­gríms.

Haft er eftir Hall­grími í frétta­til­kynn­ingu að hann hlakki til þess að hefja störf. „Mér er það kapps­mál að DV skipi áfram sinn sterka sess sem fram­vörður ís­lenskr­ar frétta­mennsku og haldi áfram að rjúfa þögn­ina þar sem aðrir vilja láta kyrrt liggja. Ég hlakka til að hefja störf með öfl­ug­um hópi fag­fólks á þess­um mik­il­væga frétta­miðli.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár