Merkel valdamesta kona heims - Forstjóri GM valdamesti forstjórinn

Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, trónir á toppi upp­færðs lista við­skipta­tíma­rits­ins Forbes yfir valda­mestu konur heims. Merkel, sem er 59 ára að aldri, hefur algjöra yfir­burði í þýskum stjórn­málum og er jafn­framt virt­asti stjórn­mála­leið­togi í Evrópu.

Í öðru sæti á list­anum er Janet Yellen, seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna. Hún var skipuð seðla­bank­stjóri 14. jan­úar á þessu ári. Yellen er 67 ára gömul. Hún er fyrsta konan í sög­unni til þess að gegna þessu mik­il­væga og valda­mikla emb­ætti.

Í þriðja sæti á list­anum er Melinda Gates, eig­in­kona Bill Gates, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns og for­stjóra Microsoft, en Melinda fer fyrir sjóði þeirra hjóna sem hefur það að mark­miði að styðja við þró­un­ar­starf í fátæk­ustu ríkjum heims­ins.

Aðrar á list­anum yfir tíu valda­mestu kon­urnar eru eft­ir­taldar.

Dilma Rouseff, for­seti Brasilíu, 66 ára.

Christine Lagarde, fram­kvæmda­stjóri Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, 58 ára.

Hillary Clinton, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, 66 ára.

Mary Barra, for­stjóri General Motors (GM), 52 ára.

Michelle Obama, for­seta­frú Banda­ríkj­anna, 50 ára.

Sheryl Sandberg, aðstoð­ar­for­stjóri Facebook, 44 ára.

Virgina Rometty, for­stjóri IBM, 56 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár