Gert ráð fyrir 4,1 milljarða afgangi á næsta ári

Í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2015, sem Bjarni Bene­dikts­son ráð­herra efna­hags- og fjár­mála lagði fram á Alþingi í dag, er gert ráð fyr­ir 4,1 millj­arðs af­gangi. Heild­ar­tekjur rík­is­sjóðs eru áætl­aðar 644,6 millj­arðar króna en heild­ar­út­gjöld 640,5 millj­arðar.

Hækka á neðra þrep virðis­auka­skatts úr 7% í 12%, meðal ann­ars á mat­vörur, og lækka á efra þrep virðis­auka­skatts úr 25,2% í 24%. Af­nema á al­mennt vöru­gjald og und­anþágur vegna afþrey­ing­ar­ferða.

Þá eru arð­greiðslur áætl­aðar 15,4 millj­arðar króna, vaxta­tekjur gefi 18,2 millj­arðar króna og rekstr­ar­tekjur sem eru ótaldar ann­ars staðar, eins og það er nefnt, verið 16,9 millj­arðar.

Gert er ráð fyrir að skulda­hlut­fall rík­is­sjóðs miðað við árlega lands­fram­leiðslu verði 74 pró­sent í lok árs en sama hlut­fall var um 90 pró­sent í lok árs 2011.

Sjá má nákvæmt yfir­lit yfir fjár­lög næsta árs á vef­síð­unni fjar­log.is (síðan lá niðri um tíma þegar þetta var skrifað, en virkar þegar allt er eðli­legt).

Kjarninn mun birta fleiri fréttir úr fjár­lög­unum eftir því sem líður á dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár