MP banki og Virðing hefja formlega sameiningarviðræður

Stjórnir MP banka hf. og Virð­ingar hf. hafa ákveðið að taka upp form­legar við­ræður um sam­ein­ingu félag­anna. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri frétta­til­kynn­ingu frá félög­unum. „Með sam­ein­ingu MP banka og Virð­ingar yrði til öfl­ugt fjár­mála­fyr­ir­tæki sem væri leið­andi á fjár­fest­inga­banka­mark­aði og einn stærsti aðili í eigna­stýr­ingu á Íslandi. Ekki er hægt að segja til um hve langan tíma við­ræður munu taka, en allt kapp verður lagt á að hraða þeim eins og hægt er,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Eins og greint hefur verið frá í Kjarn­anum síð­ustu tvær vikur hafa hlut­hafar Virð­ingar og MP banka átt í óform­legum við­ræðum um sam­ein­ingu í sumar, auk þess sem horft hefur verið til sam­ein­ingar við önnur fyr­ir­tæki á fjár­mála­mark­aði, meðal ann­ars Íslensk verð­bréf.

Virðing er alhliða verð­bréfa­fyr­ir­tæki sem veitir fjár­fest­inga­tengda þjón­ustu á sviði eigna­stýr­ingar, mark­aðsvið­skipta, fyr­ir­tækja­ráð­gjafar og rekst­urs fram­taks­sjóða, að því er segir í til­kynn­ingu. Virðing hefur starfs­leyfi sem verð­bréfa­fyr­ir­tæki og starfar undir eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

MP banki hf. á rætur sínar að rekja til árs­ins 1999 og starfa um 70 starfs­menn hjá bank­anum. MP banki sér­hæfir sig í að veita alhliða þjón­ustu á sviði eigna­stýr­ingar og fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi ásamt því að veita íslenskum fjár­festum, spari­fjár­eig­endum og atvinnu­lífi sér­hæfða banka­þjón­ustu, að því er segir í til­kynn­ingu. Afkomu­ein­ingar MP banka eru eigna­stýr­ing, banki og mark­aðir.

Formaður stjórnar MP banka er Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og sendi­herra, en for­maður stjórnar Virð­ingar er Kristín Pét­urs­dóttir. Hún er jafn­framt stærsti hlut­hafi Virð­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár