Milljarðamæringar frá Hong Kong gefa Harvard 40 milljarða

Tilkynnt var um það í dag að fjár­fest­arnir og bræð­urnir Ronnie og Gerald Chan, frá Hong Kong, ætl­uðu sér að gefa Harvard háskóla 350 millj­ónir dala, eða sem nemur tæp­lega 40 millj­örðum króna, í gegnum sjóð þeirra sem gefur til sam­fé­lags­mála.

Þetta er stærsta pen­inga­gjöf í sögu Harvard og gjör­breytir fjár­hags­stöðu skól­ans. Skólinn hyggst nefna skóla­stofnun Harvard á sviði lýð­heilsu eftir föður þeirra bræðra, sam­kvæmt fréttum Forbes.

Fjár­fest­ingar Chan bræðra í nágrenni við aðal­bygg­ingar Harvard, einkum á Cambridge svæð­inu í Boston, fyrir meira 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 12 millj­arða króna, voru til umfjöll­unar í mars mán­uði.

Eignir þeirra, sem að mestu eru bundnar við kín­verska fast­eigna­fé­lagið Hang Lung Group, eru metnar á 3,2 millj­arða dala, eða sem nemur um 360 millj­arða króna.

Bræð­urnir reka einnig fjár­fest­inga­sjóð­inn Morn­ings­ide Group auk þess að eiga stóran hlut í kín­verska snjall­síma­fram­leið­and­anum Xiamoi.

Ronnie Chan er stjórn­ar­for­maður Hang Lung Group en Gerald Chan er í stjórn­ar­maður.

Gerald Chan var í námi við Harvard háskóla á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar og lauk dokt­ors­prófi í líf­fræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár