Allt að 15 metra lækkun miðju öskjunnar í Bárðarbungu

Í eft­ir­lits­flugi í gær mæld­ist allt að 15 metra lækkun á miðju öskj­unnar í Bárð­ar­bungu. Rad­ar­hæð­ar­mæli flug­vélar Ísavia var beitt til þess að greina stöð­una. Rúm­mála­s­breyt­ingin nemur um 0,25 fer­kíló­metrum, sam­kvæmt stöðu­skýrslu almanna­varnd­ar­deildar Rík­is­lög­reglju­stjóra frá því í morgun. „Sig af þess­ari stærð­argráðu hefur ekki orðið á Íslandi síðan mæl­ingar á jarð­skorpu­hreyf­ingum hófust hér­lendis um miðja síð­ustu öld. Engin merki sjást um eld­gos eða auk­inn jarð­hita í Bárð­ar­bungu­öskj­unni. Senni­leg­asta skýr­ingin er að þetta sig sé í tengslum við mikla jarð­skjálfta­virkni und­an­farið og kviku­streymi neð­an­jarðar til norð­aust­urs,“ segir í stöðu­skýrsl­unni.

Almanna­varn­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra er sem fyrr í við­bragðs­stöðu ef gos­virkni eykst á svæð­inu, með til­heyr­andi áhrifum.

Í eft­ir­lits­flug­inu sást einnig breið og grunn sig­dæld í Dyngju­jöl­kli um 10 kíló­metra frá jökul­j­aðri. Önnur dæld, um sex kíló­metra frá sporði Dyngju­jökluls sem fylgst hefur verið náið með und­an­farna daga, hefur farið dýpk­andi og mæld­ist með rad­ara­hæð­ar­mæli um 35 metra djúp.

Ekkert dregur úr gos­inu í Holu­hrauni, sam­kvæmt stöðu­skýrslu almanna­varna. Gos­virkni er á tveimur sprungum. „Meg­in­gosið er á sömu sprungu og verið hefur virk frá upp­hafi. Auk þess er enn gos­virkni á sprungu sem opn­að­ist í gær­morgun. Hrauntungan nær nú 10 kíló­metra til ANA og á tæpan km eftir í Jökulsá á Fjöllum,“ segir í stöðu­skýrsl­unni.

Dregið hefur úr skjálfta­virkni á svæð­inu síðan í gær. Um 90 skjálftar hafa mælst frá mið­nætti. Einn jarð­skjálfti 5 að stærð mæld­ist við Bárð­ar­bungu­öskj­una kl. 05:40 í morgun. 14 skjálftar hafa orðið stærri en 5 við Bárð­ar­bungu síðan 16. ágúst.

Haraldur Sig­urðs­son eld­fjalla­fræð­ingur hefur fjallað ítar­lega um gang mála í og við Bárð­ar­bungu frá því jarð­hrær­ingar hófust á bloggi sínu. Hann veltir því upp í nýj­ustu færsl­unni hvort mesta hættan á gos­s­töðv­unum stafi af útstreymi brenni­steins­gass.

Jar­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands hefur verið með virka upp­lýs­inga­gjöf á Facebook síðu sinni og meðal ann­ars birt frá­sagnir af vinnu­að­stæðum vís­inda­fólks á svæð­inu.

Í stöðu­skýrsl­unni er áréttað að lok­anir á svæð­inu fyrir umferð fólks og far­ar­tækja eru enn í fullu gildi. „Rétt er að árétta að lokun lög­reglu­stjór­anna á Húsavík og Seyð­is­firði á hálend­inu norðan Vatna­jök­uls eru enn í gildi. Allir vegir inn á svæðið eru einnig lok­aðir og er tekið strangt á til­raunum óvið­kom­andi til að kom­ast að eld­stöðv­unum og þeir geta búist við að verða kærðir og sektaðir. Fjöl­miðlar og vís­inda­menn hafa haft aðgang að svæð­inu með sér­stökum skil­málum eftir að gos hófst en lokað hefur verið fyrir hann að svo stöddu en aðgangur þeirra er í stöðugri end­ur­skoðun. Ákvörð­unin er fyrst og fremst í var­úð­ar­skyni vegna hættu á jök­ul­hlaupi ef gosið kemur upp undir Vatna­jökli,“ segir í skýrsl­unni.

Með­fylgj­andi mynd er fengin frá Jarð­vís­ind­stofnun Háskóla Íslands, og er frá 6. sept­em­ber. Þetta er LANDSAT 8 nær­inn­rauð gervi­tungla­mynd frá NASA & USGS, unnin á Jarð­vís­inda­stofnun. Þessi sam­setn­ing á böndum (geisl­un­ar­mæl­ingum) hentar ágæt­lega til að skoða yfir­borð jökla, en grannt er nú fylgst með öllum breyt­ingum á kötlum og sprungum á jökl­inum. Þétt gróð­ur­þekja kemur fram sem rauður litur á mynd­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár