Skemmtilegt að kynnast morgunstemmningunni í Vestubæjarlauginni

Hrannar Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri sam­skipta­sviðs Vodafone, svar­aði sjö spurn­ingum í Kjarn­anum.

Hvað gleður þig mest þessa dag­ana? Að sjá fyrir end­ann á fram­kvæmdum sem hafa staðið yfir á bað­her­bergi heim­il­is­ins. Það er ekki alveg tekið út með sæld­inni fyrir stóra fjöl­skyldu að missa bað­her­bergið, en á hinn bóg­inn hefur verið frá­bært að kynn­ast morg­un­stemn­ing­unni í Vest­ur­bæj­ar­laug­inni þar sem við höfum baðað mann­skap­inn!

Hvert er þitt helsta áhuga­mál? Ég sýkt­ist af flugu­veiði­bakt­er­í­unni fyrir all­mörgum árum og hún áger­ist með tím­anum. Áður fyrr hristi ég stundum haus­inn yfir ólíkum dellum fólks en með eigin veiði­dellu hafa þeir for­dómar horfið með öllu.

Hvað bók lastu síð­ast? Ólæs­ing­inn sem kunni að reikna er síð­asta bókin sem ég las fyrir sjálfan mig. Annars þarf ég að afgreiða tvær bækur á hverju kvöldi með 4 ára dóttur minni sem neitar að fara í rúmið fyrr en kvót­inn er búinn. Í gær­kvöldi varð Valtýr prumpu­hundur fyrir val­inu ásamt Palla sem var einn í heim­inum. Nú liggur The 4 Disciplines of Execution á nátt­borð­inu.

Hvert er þitt upp­á­halds­lag? Red með Taylor Swift er í miklu upp­á­haldi þessa dag­ana, Red Red Wine með UB40 er klassíker og svo hef ég miklar mætur á Red Hot Chili Peppers!

Til hvaða ráð­herra berðu mest traust? Þeirra sem láta verkin tala.

Ef þú ættir að fara til útlanda á morgun og mættir velja land, hvert myndir þú vilja fara? Ítalía yrði alltaf fyrir val­inu. Held ég hljóti að hafa verið Ítali í fyrra lífi.

Hvaða fer mest í taug­arnar á þér? Þegar mýfluga verður að úlf­alda!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár