Raunveru-leikarnir

Þvotta­brettið í World Class vill ekki að þú vitir hvernig hann sinnir við­skiptum. Inn­an­ríkis­ráð­herra vill ekki að neinn viti hvers lags fantur hún er í raun og veru. Eigendur fjöl­miðla­fyr­ir­tækis vilja ekki að þú vitir neitt um glæpi þeirra. Útgerðin vill að þú haldir að Evrópa ætli að borða frá þér alla ýsuna þína. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vill að þú haldir að þú hafi unnið í lóttó­inu. Morg­un­blaðið vill halda þér eins illa upp­lýstum og mögu­lega er hægt.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Reykja­vík vill að þú trúir því að nefnd sem er ætluð til að færa almenn­ingi meira vald og aukið gagn­sæi sé óþarft prump. Forseti Íslands vill að þú trúir því að fram­tíð lands­ins liggi í því að fylkja sér fyrir aftan ein­hverja hrotta og fara í ísjaka­leik.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_09_04/60[/embed]

Þetta er staðan. Þetta er stríðs­á­stand. Fólkið í land­inu gegn fólk­inu sem vill ekki að þú vitir sann­leik­ann. Fólkið sem vill halda þér hræddum og blekktum. Fólkið sem ber ekki virð­ingu fyrir nokkrum sköp­uðum hlut nema sjálfum sér – þú ert því miður í þeirra heimi, þar sem þeirra hags­munir eru ofar öllu. Þetta fólk vill pen­ing­ana þína, með einum eða öðrum hætti, og því er nákvæm­lega sama þótt það þurfi að brengla skynjun þína á raun­veru­leik­anum til þess að kom­ast yfir þá.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem er meiri one trick pony en sjálfur íslenski hest­ur­inn, hefur nú misst frá sér 23 þús­und kjós­endur. Hans 15 mín­útur af frægð kost­uðu þjóð­ina ekki nema 80 millj­arða, sem er kannski algjört smott­erí í stóra sam­heng­inu. En þrátt fyrir að flokk­ur­inn nálgist Píra­ta­flokk­inn að stærð er engin und­ir­liggj­andi krafa um að mað­ur­inn drulli sér úr for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Ég meina, hann var að láta snyrta á sér auga­brún­irnar og því alveg sjálf­sagt að hann fái að nudda þeim aðeins í leðrið þarna upp­frá lengur.

Af hverju fer inn­an­rík­is­ráð­herra ekki? Af hverju áttar hún sig ekki á því að hvort sem það er rétt­látt eða ekki hafa aðferðir hennar og yfir­lýs­ingar orðið til þess að fólk hefur misst trúna á rétt­ar­kerfið og það er miklu stærra og mik­il­væg­ara dæmi en hennar kósí mínímal­íska heim­ili.

Hanna Birna – ég veit að þér þótti rosa­lega óþægi­legt að ræða við Stefán Eiríks­son um rann­sókn lög­regl­unnar á þínu eigin ráðu­neyti en trúðu mér þegar ég segi að okkur kjós­endum finnst til­hugs­unin um þig garg­andi á lög­reglu­stjóra á laug­ar­degi helm­ingi óþægi­legri.

Til­hugs­unin um að hennar helstu tals­menn séu Brynjar Níelsson, Jón Steinar Gunn­laugs­son og Björn Bjarna­son er svo bara eins og hryll­ings­saga. Ég meina, ef „segðu mér hverjir eru vinir þínir og ég segi þér hver þú ert“-reglan er í gildi, þá ert þú, væna, ann­að­hvort norn eða tröll­kerl­ing í þessu sam­hengi.

Og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig í könn­unum. What else is new – síð­ast þegar ég gáði breiðir krabba­mein úr sér stöðugt, nema það sé skorið í burtu.

Ten­ing­unum var kastað fyrir löngu. Her­sveitir Saurons þeys­ast inn í Mikla­garð. Stríðið er í algleym­ingi og það er kýr­skýrt hvað er í húfi; rétt­ur­inn til þess að skrifa sög­una. Sagan er skrifuð af sig­ur­veg­urum og sig­ur­veg­ar­inn er sá sem svífst einskis. Hvernig verður þessi saga skráð þegar fram líða stundir?

Er Reynir Trausta­son mann­orðs­morð­ingi og hand­bendi útgerð­ar­manns? Var Hanna Birna fórn­ar­lamb í ljótum pólit­ískum leik, sem hún betur fer stóð af sér? Er Mikael Torfason drullu­sokkur og Ólafur Steph­en­sen vælu­kjói? Bjargaði milli­færsla Fram­sókn­ar­flokks­ins efna­hag íslenskra heim­ila? Höfðum við öll rangt fyrir okkur, og þau rétt?

Nútíminn er því miður raun­veru­leika­þáttur, þar sem heið­ar­lega fólkið er kosið í burtu við bjar­mann af kyndlum á meðan drullu­sokk­arnir sem svífast einskis skrifa bæði regl­urnar og frá­sögn­ina jafn­óðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár