Sumarbörn fá ekki borgað – lögfræðingar í málinu

„Til okkar hafa leitað félags­menn, ell­efu tals­ins, sem hafa ekki fengið greidd laun vegna vinnu við mynd­ina og við erum að reyna að aðstoða þá eftir fremsta megni,“ segir Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir, for­maður Félags kvik­mynda­gerð­ar­manna. Vinna við mynd­ina Sum­ar­börn, sem fékk einn hæsta styrk­inn úr Kvik­mynda­sjóði Íslands í fyrra, 90 millj­ónir króna, er nú í nokk­urri óvissu þar sem starfs­fólk hefur ekki fengið greidd laun að fullu fyrir vinnu sína. „Við lítum þetta mjög alvar­legum augum og auð­vitað von­umst við eftir því að úr þessu verði leyst og starfs­fólkið fái launin greidd sem það á inni sem allra fyrst.“ Lög­fræð­ingar, fyrir hönd þeirra sem eiga laun inni, hafa sent fram­leið­endum mynd­ar­innar bréf og kraf­ist þess að launin verði greidd hið fyrsta.

Hrafn­hildur segir málið líka við­kvæmt þar sem stór hópur barna hafi verið meðal leik­ara í mynd­inni og að þau hafi ekki fengið greidd laun eins og um hafi verið samið í upp­hafi. Ekki síst í ljósi þess skipti máli að fram­leið­andi mynd­ar­innar, fyr­ir­tækið Ljósband, standi við sitt.

Í for­svari fyrir Ljósband eru Anna María Karls­dóttir og Hrönn Krist­ins­dóttir, sem hafa mikla reynslu af kvik­mynda­gerð og fram­leiðslu.

Hrönn sagði í sam­tali við Kjarnann að henni þætti mjög leitt að ekki hefði tek­ist að greiða laun að fullu. Hún sagði ekki vera neinn skort á greiðslu­vilja og að þau sem að fram­leiðslu mynd­ar­innar stæðu ætl­uðu sér að gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að standa í skilum við alla þá sem ættu inni laun vegna Sum­ar­barna, bæði starfs­fólk og leik­ara. Vonir stæðu jafn­vel til þess að hægt yrði að gera það fyrir næstu mán­aða­mót og að fram­leið­end­urnir væru í sam­skiptum við for­eldra þeirra barna sem ættu inni laun vegna mynd­ar­innar. Allt yrði gert til þess að greiða fólki það sem það ætti inni vegna mynd­ar­innar.

Hrönn sagði enn fremur að málið sner­ist ekki síst um það að ekki hefði tek­ist að losa um fjár­magn til þess að greiða fólki í takt við það sem um hefði verið samið. „Kvik­myndin er þó full­fjár­mögnuð,“ segir Hrönn, en hið 90 millj­óna króna fram­lag úr Kvik­mynda­sjóði dekk­aði aðeins hluta kostn­að­ar­ins við mynd­ina. Þá hefði auk þess ekki náðst að fá end­ur­greiddan virð­is­auka­skatt, eins og reiknað hefði verið með, og það hefði gert erf­iða stöðu enn þyngri.

Heild­ar­kostn­aður við mynd­ina er áætl­aður 214 millj­ónir króna, en Guðrún Ragn­ars­dóttir er leik­stjóri mynd­ar­innar. Um mjög metn­að­ar­fullt verk­efni er að ræða og er með­fram­leið­andi mynd­ar­innar norskur.

Myndin segir sögu systk­ina sem eru send frá ást­vinum sínum á stað þar sem þeim er ekki sinnt. Þau þrá að kom­ast aftur heim. Inn í sög­una flétt­ast frá­sagnir af hinum börn­unum á barna­heim­il­inu og aðstæðum þeirra. Aðal­per­sónan flýr á vit ímynd­unar og svo kemur hestur og eig­andi hans við sögu, að því er sagði í umfjöllun RÚV um mynd­ina, hinn 27. októ­ber í fyrra, í til­efni af því að tökum á mynd­inni lauk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár