Eignir Burlington á Íslandi jukust um 70 prósent í fyrra

Eignir vog­un­ar­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­gement, stærsta ein­staka kröfu­hafa fall­ina íslenskra banka, á Íslandi juk­ust um 70 pró­sent á árinu 2013. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins sem skilað var inn til írsku fyr­ir­tækja­skrá­ar­innar á þriðju­dag, þann 26. ágúst.
Alls eru heild­ar­eignir sjóðs­ins bók­færðar á 4,1 millj­arði dala,um 480 millj­arða króna á gengi dags­ins í dag. Þær juk­ust um rúm 50 pró­sent á milli ára. Þarna er um að ræða það fé sem Burlington hefur eytt í að kaupa eignir. Staðan tekur ekki til­lit til hversu mikið eign­irnar hafa hækkað að mark­aðsvirði síðan að þær voru keyptar. Sú virð­is­aukn­ing er mikil en mun ekki raun­ger­ast fyrr en sjóð­ur­inn selur eign­irnar.

Í árs­reikn­ingnum kemur fram að 18 pró­sent eigna sjóðs­ins séu á Íslandi. Kaupverð þeirra eigna er sam­kvæmt þessu 87 millj­arðar króna og umfang keyptra eigna Burlington á Íslandi því auk­ist um 70 pró­sent frá árinu 2012. Sjóð­ur­inn á ein­ungis meiri eignir í Bret­landi, en 34 pró­sent eigna hans eru þar. Hlut­falls­lega juk­ust umsvif Burlington lang­mest á Íslandi á síð­asta ári.

Eiga gríðarlegar eignir á Íslandi


Mark­aðsvirði eigna Burlington á Íslandi er mun hærra en 87 millj­arðar króna. Miðað við væntar end­ur­heimtir í þrotabú Glitnis eru virði krafna Burlington í bú bank­ans, sam­kvæmt nýj­ustu upp­lýs­ingum Kjarnans um umfang þeirra, til að mynda að minnsta kosti vel á þriðja hund­rað millj­arð króna.
Eignir Burlington á Íslandi eru gríð­ar­legar. Hann er stærsti ein­staki kröfu­hafi Glitnis, á meðal stærstu kröfu­hafa Kaup­þings, á umtals­verðar kröfur í bú Lands­bank­ans, er á meðal eig­anda ALMC sem seldi 67 pró­sent hlut sinn í Straumi fjár­fest­inga­banka í júlí síð­ast­liðnum, á beint 13,4 pró­sent hlut í Klakka (sem á 23 pró­sent í VÍS og allt hlutafé í Lýsingu) og keypti 26 millj­arða króna skuldir Lýsingar skömmu fyrir síð­ustu ára­mót. Auk þess hefur sjóð­ur­inn verið að kaupa hluti í Bakkavör í Bret­landi af miklum móð, en þær eignir eru skráðar sem breskar þótt aðrir stórir eig­endur séu að mestu íslenskir og rætur fyr­ir­tæk­is­ins liggi hér­lendis.

Þetta er örstutt brot úr ítar­legri umfjöllun Kjarnans um Burlington. Lestu umfjöll­un­ina í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár