Lóðaverð hamlar uppbyggingu

Bygg­ing­ar­kostn­aður á Íslandi er hár miðað við fast­eigna­verð. Í sumum til­fellum er mun­ur­inn á þessu tvennu hverf­andi, sem dregur úr hvata verk­taka til að ráð­ast í bygg­ingar á minni og ódýr­ari íbúðum, sem mesta eft­ir­spurnin er eftir. Að mati verk­taka stendur hátt lóða­verð hjá sveit­ar­fé­lög­unum þessu helst fyrir þrifum.

Samkvæmt reglu­legum mæl­ingum Hagstofu Íslands hefur bygg­ing­ar­vísi­talan hækkað um sjö­tíu pró­sent frá árs­byrjun 2007. Það þýðir með öðrum orðum að kostn­aður við að byggja sér íbúð í átján íbúða fjöl­býl­is­húsi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem er vísi­tölu­hús Hag­stof­unnar, hefur hækkað um sjö­tíu pró­sent á tíma­bil­inu. Bygg­ing­ar­vísi­talan mælir verð­breyt­ingar á bygg­ing­ar­kostn­aði með því að skoða breyt­ingar á verði á bygg­ing­ar­að­föngum.

Hækkandi verð á inn­fluttri hrá­vöru í kjöl­far geng­is­hruns íslensku krón­unnar skýrir hækk­un­ina að hluta, en hærri kostn­aður vegna inn­lendrar hrá­vöru og vegna vinnu, véla, flutn­ings og orku­notk­unar vegur þar þyngst. Þó að vísi­talan gefi nokkuð góðar vís­bend­ingar um kostn­að­inn við það að koma sér upp þaki yfir höf­uðið er fjár­magns­kostn­aður, ýmis mark­aðs- og sölu­kostn­aður og lóða­verð ekki haft til hlið­sjónar við útreikn­ing vísi­töl­unnar.

Lóðaverð, eða gjaldið sem sveit­ar­fé­lögin rukka þegar bygg­inga­lóð er úthlutað, hefur farið ört hækk­andi á und­an­förnum árum og er orðið stór hluti af hús­næð­is­verði. Tveir helstu þættir sem hafa áhrif á lóða­verð eru stað­setn­ing og skipu­lags­á­ætl­anir, þar sem stærð bygg­inga er skil­greind ásamt land­notkun.

Þetta er örstutt brot úr ítar­legri umfjöllun Kjarnans um ástandið á bygg­inga­mark­aði. Lestu hana í heild sinni í nýj­ustu útgáfu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár