Sameiningarviðræður - Ármann sýnir MP banka áhuga

Íslenski fjár­mála­geir­inn hefur gengið í gegnum mik­inn hreinsund­ar­eld á síð­ustu sex árum, frá hruni Glitnis, Lands­bank­ans og Kaup­þings haustið 2008, en ný stoð er nú á teikni­borð­inu, þar sem íslenskir einka­fjár­festar myndu ráða för og bjóða fram skýran val­kost í sam­keppni við end­ur­reistu bank­ana þrjá, Íslands­banka, Lands­bank­ann og Arion banka.

Ármann sýnir MP banka áhuga


Meðal þess sem hefur verið til alvar­legrar skoð­unar, og lif­andi við­ræður eru í gangi um, er að sam­eina Straum fjár­fest­ingar­banka og MP banka og jafn­vel fleiri minni fjár­mála­fyr­ir­tæki, eins og Íslensk verð­bréf og Virðingu. Eign­ar­hlutir í MP banka og Íslenskum verð­bréfum hafa verið til sölu í nokkurn tíma en lít­ill áhugi hefur verið á þeim, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans sýndi Ármann Þor­valds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings Singer & Fried­lander í London, því áhuga á dög­unum að kaupa hlutafé MP banka en það gekk ekki eftir á þeim tíma. Ármann vildi ekki tjá sig um málið þegar Kjarninn náði af honum tali, og sagði ekk­ert vera til þess að tjá sig um að svo stöddu. Ekki væri því öðru við að bæta en „no comment“. Ármann er meðal hlut­hafa í fyr­ir­tæk­inu Virðingu.

Breski fjár­festir­inn Joe Lewis er stærsti ein­staki eig­andi MP banka með tæp­lega 10 pró­senta hlut í gegnum félagið Manastur Holding B.V. Skúli Mogensen á aðeins minni hlut, 9,9 pró­sent, í gegnum félag sitt Títan ehf. og Lífeyris­sjóður verzlunarmanna kemur næstur með 9,74 pró­senta hlut. Íslenska ríkið á lít­inn hlut í bank­anum í gegnum Eigna­safn Seðla­banka Íslands, eða 4,36 pró­sent. Þrátt fyrir að hlut­ur­inn sé ekki stór er Eigna­safnið þó átt­undi stærsti ein­staki hlut­hafi bank­ans. Eigið fé MP banka nam um fimm millj­örðum í lok síð­asta árs og var eig­in­fjár­hlut­fallið 14,2 pró­sent á þeim tíma.

Íslensk verðbréf enn í sölumeðferð


Margir hafa skoðað kaup á Íslenskum verð­bréfum (ÍV), en Íslands­banki er þar stærsti eig­andi með 27,1 pró­sents hlut. Skemmst er að minn­ast þess þegar MP banki ætl­aði að kaupa ÍV en allt kom fyrir ekki. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er enn horft til þess að ÍV geti orðið hluti af stærra fjár­mála­fyr­ir­tæki, jafn­vel nýrri stoð í fjár­mála­kerf­inu, það er sam­ein­uðum banka Straums og MP banka eða öðrum hvorum bank­anum. Hlutur Íslands­banka hefur lengi verið til sölu en illa hefur gengið að finna nýja eig­endur sem eru til­búnir að borga það fyrir hlut­inn sem Íslands­banki vill fá fyrir hann. Félagið er með rætur á Norð­ur­landi og höf­uð­stöðvar á Akureyri og sinnir eigna­stýr­ingu fyrir ein­stak­linga, fag­fjár­festa, félaga­sam­tök og fyr­ir­tæki. Rekstur félags­ins hefur verið stöðugt með jákvæða rekstr­ar­af­komu frá árinu 2002 og á síð­asta ári skil­aði félagið 138 millj­ónum króna í hagnað. Eignir sem félagið stýrir voru í árs­lok í fyrra 112 millj­arðar króna. Stærstu hlut­hafar eru, auk Íslands­banka, Íslensk eigna­stýr­ing ehf., með 21 pró­sents hlut, Stapi líf­eyris­sjóður með 15 pró­senta hlut og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna sveitar­félaga með 14,4 pró­senta hlut. Heiðrún Jóns­dóttir er for­maður stjórnar félags­ins en með henni í stjórn eru Halldór Hall­dórs­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn og for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, og Stein­grímur Birg­is­son, for­stjóri Hölds.

Þetta er aðeins stutt útgáfa af umfjöll­un­inni. Hana má lesa í heild sinni í Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár