Verðtrygging ekki almennt í andstöðu við tilskipun

Verð­trygg­ing er almennt ekki í and­stöðu við til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins. Þetta kemur fram í ráð­gef­andi áliti EFTA-dóm­stóls­ins í máli Gunnars V. Eng­ils­berts­sonar gegn Íslands­banka. Samkvæmt álit­inu er því ekki bannað að setja skil­mála um verð­trygg­ingu í samn­inga. Lands­dóm­stólum, í þessu til­felli Hæsta­rétti Íslands, er eft­ir­látið að meta hvort samn­ings­skilálar upp­fylli skýr­leika­skil­yrði til­skip­an­innar.

Hægt er að lesa álitið hér.

Málið er annað þeirra tveggja mála sem Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur vísað til EFTA-dóm­stóls­ins er varða verð­trygg­inu. Í þessu máli, sem var tekið fyrir í apríl 2014, var tek­ist á um hvort verð­trygg­ing sé ósann­gjarn skil­máli í skiln­ingi til­skip­unar sem inn­leidd var í íslenska lög­gjöf frá Evr­ópu­sam­band­inu. Í mál­inu beindi hér­aðs­dómur fimm spurn­ingum til EFTA-dóm­stóls­ins og óskaði eftir ráð­gef­andi áliti.

Innan stjórn­kerf­is­ins og lög­manna­stétt­ar­innar var það nokkuð almenn skoðun að það yrði ólík­legt að EFTA-dóm­stóll­inn myndi segja í áliti sínu að verð­trygg­ingin sé ósann­gjörn sem skil­máli. Það varð nið­ur­staðan. Þar er vísað í að sam­kvæmt dóma­fram­kvæmd Evr­ópu­dóm­stóls­ins geti samn­ings­skil­máli sem eigi sér stoð í lands­rétti ekki verið ósann­gjarn í eðli sínu. Og verð­trygg­ing á sér stoð í íslenskum lands­rétti. Í áliti EFTA-dóm­stóls­ins kemur fram að ekki er óheim­ilt að setja inn skil­mála um verð­trygg­ingu í lána­samn­inga. Íslenskum dóm­stólum er hins vegar eft­ir­látið að meta hvort samn­ings­skil­málar í hverju máli fyrir sig séu nægi­lega skýrir til að upp­fylla skýr­leika­skil­yrði til­skip­un­ar­innar.

Stóru spurningunni enn ósvarað


EFTA-dóm­stóll­inn á enn eftir að skila áliti sínu í hinu mál­inu sem varðar verð­trygg­ingu. Það var flutt í júní. Í því var sömu fimm spurn­ing­unum beint til EFTA-dóm­stóls­ins en einni bætt við. Hún snýst til­skipun um hlut­falls­tölu kostn­aðar. Á manna­máli þýðir það að þegar ein­hver er að taka lán þá á að koma fram hver kostn­aður vegna láns­ins verður. Í Evrópu myndi slík tala sam­an­standa af vöxtum og lán­töku­gjaldi. Þegar íslensku bank­arnir og Íbúða­lána­sjóður hafa verið að reikna þessa hlut­falls­tölu þá hefur verð­trygg­ingin verið und­an­skilin, þrátt fyrir að hún hafi sann­ar­lega áhrif á það hver kostn­aður láns­ins verður. Við útreikn­ingu kostn­aðar hefur ein­fald­lega bara verið miðað við að verð­bólgan sé núll pró­sent.

Þessi til­skipun var inn­leidd í íslensk lög árið 1994 og árið 2004 voru fast­eigna­lán felld undir hana. Þeir sem sækja málið vilja meina að frá þeim tíma hefði raun­kostn­aður vegna verð­trygg­ingar átt að koma fram í hlut­falls­töl­unni sem kynnt var lán­tak­endum, en ekki að það yrði ein­ungis miðað við að verð­bólgan sé núll pró­sent. Bæði Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, og Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hafa tekið undir þessa rök­semda­færslu.

Rökin fyrir því að miða við enga verð­bólgu við útreikn­ing á kostnað lána eru þau að þannig sé staðan skýr­ust. Verð­bólga er þekkt fyr­ir­brigði á Íslandi og hún hefur sveifl­ast mikið í gegnum tíð­ina. Þeir sem hafa þessa skoðun segja þannig ómögu­legt að spá fyrir um hana og betra sé að gera lán­tak­anda ein­fald­lega grein fyrir því að verð­bólga muni hafa áhrif á lánið, í stað þess að giska á hver hún verður á láns­tím­anum. Eðli verð­trygg­ingar er auk þess þannig að laun og virði hús­næðis hækkar iðu­lega sam­hliða skuldum yfir lengri tíma vegna verð­bólgu. Því sýni 0 pró­sent rétt­ustu stöð­una. Þetta eru á meðal rök­semda lög­manna íslenska rík­is­ins í mál­inu.

Lögum um neyt­enda­lán var breytt á Íslandi í fyrra. Samkvæmt nýju lög­unum á hlut­falls­legur kostn­aður verð­tryggðra lána ekki að miða lengur við núll pró­sent heldur árs­verð­bólgu síð­ustu 12 mán­uði. Þessi breyt­ing veldur mála­rekstri íslenska rík­is­ins tölu­verðum erf­ið­leikum, enda er breyt­ingin í and­stöðu við málarök og hags­muni íslenska rík­is­ins.
Það sem aðskilur þessa spurn­ingu frá hinum fimm er sú að nið­ur­staða EFTA-dóm­stóls­ins verður alltaf annað hvort: já, þið megið und­an­skilja verð­bætur við útreikn­ing hlut­falls­tölu, eða nei, þið megið það ekki.


Ef nið­ur­staðan verður sú að ekki megi miða við núll pró­sent við útreikn­ing hennar, líkt og íslenska ríkið virð­ist raunar hafa þegar ákveðið með því að breyta lögum þannig að það er ekki lengur gert, þá mun Hæsti­réttur Íslands þurfa að taka afstöðu til þess, sam­kvæmt gömlu lög­unum um neyt­enda­lán. Nánar til­tekið 14. grein þeirra.


Hæsti­réttur hefur þá tvo kosti: ann­að­hvort að horfa til fyrstu máls­greinar 14. greinar lag­anna eða þriðju máls­greinar hennar. Ef Hæsti­réttur horfir til fyrstu máls­greinar verða öll verð­tryggð neyt­enda­lán ólög­mæt. Ef Hæsti­réttur horfir til þriðju máls­greinar verða þau það ekki.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár