Skuldir gætu horfið en ríkið færi líklega á hausinn

Á morgun, 28. ágúst, mun EFTA-dóm­stóll­inn skila áliti sínu um lög­mæti verð­trygg­ingar. Nið­ur­staða hans gæti ger­breytt íslensku sam­fé­lagi. Hundruð millj­arða króna eru undir. Kjarninn fjall­aði ítar­lega um málið og mögu­legar nið­ur­stöður í útgáfu sinni þann 10. júlí síð­ast­lið­inn. Í til­efni þess að álitið er vænt­an­legt er umfjöll­unin birt í heild sinni hér að neðan.

Það hefur vart farið fram­hjá neinum að nú er tek­ist á fyrir dóm­stólum um lög­mæti verð­trygg­ingar. Leitað hefur verið til EFTA-dóm­stóls­ins vegna mál­anna og búist er við því að hann svari nokkrum spurn­ingum vegna þeirra innan skamms. Fjöl­margar fréttir hafa verið sagðar af þessu og flestir Íslend­ingar virð­ast hafa sterkar skoð­anir á bless­aðri verð­trygg­ing­unni og afleið­ingum hennar.

Málið er auð­vitað flókið og gæti leitt til margra mögu­legra nið­ur­staðna. En það er líka lík­ast til eitt það mik­il­væg­asta sem Íslend­ingar standa frammi fyrir vegna þess að nið­ur­staða þess getur gjör­breytt íslenskri til­veru. Það getur látið skuldir ein­stak­linga hverfa og það getur sett rík­is­sjóð því sem næst á haus­inn. Það getur líka eyði­lagt íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið.

Tvö mál og sex spurningar


Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur vísað tveimur málum til EFTA-dóm­stóls­ins er varða verð­trygg­ingu. Fyrra málið, sem var tekið fyrir í apríl 2014, snýst um hvort verð­trygg­ingin sé ósann­gjarn samn­ings­skil­máli í skiln­ingi til­skip­unar sem inn­leidd var í íslenska lög­gjöf frá Evr­ópu­sam­band­inu. Í því máli beindi hér­aðs­dómur fimm spurn­ingum til EFTA-dóm­stóls­ins og óskaði eftir ráð­gef­andi áliti.

Innan stjórn­kerf­is­ins og lög­manna­stétt­ar­innar virð­ist það vera nokkuð almenn skoðun að það sé ólík­legt að EFTA-dóm­stóll­inn muni segja í áliti sínu að verð­trygg­ingin sé ósann­gjörn sem samn­ings­skil­máli. Þar er vísað í að sam­kvæmt dóma­fram­kvæmd Evr­ópu­dóm­stóls­ins geti samn­ings­skil­máli sem eigi sér stoð í lands­rétti ekki verið ósann­gjarn í eðli sínu. Og verð­trygg­ing á sér sann­ar­lega stoð í íslenskum lands­rétti. Annar mögu­leiki er að EFTA-dóm­stóll­inn kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þar sem verð­trygg­ing sé lög­bundin falli hún ekki innan til­skip­unar.

Sá mögu­leiki er síðan einnig fyrir hendi að dóm­ur­inn segi að það sé Hæsta­réttar á Íslandi að meta hvort verð­trygg­ingin sé ósann­gjarnt samn­ings­skil­yrði en með því muni fylgja leið­bein­ingar um til hvers eigi að taka til­lit við slíka ákvörðun. Einn slíkur þáttur gæti verið hversu vel þekkt verð­trygg­ing er í íslensku umhverfi, en hún hefur verið við lýði hér­lendis í 35 ár.

Þúsund milljarða viðbótarspurningin


Seinna málið var flutt í júní. Í því var sömu fimm spurn­ing­unum beint til EFTA-dóm­stóls­ins en einni bætt við. Hún snýst til­skipun um hlut­falls­tölu kostn­aðar. Á manna­máli þýðir það að þegar ein­hver er að taka lán þá á að koma fram hver kostn­aður vegna láns­ins verður. Í Evrópu myndi slík tala sam­an­standa af vöxtum og lán­töku­gjaldi. Þegar íslensku bank­arnir og Íbúða­lána­sjóður hafa verið að reikna þessa hlut­falls­tölu þá hefur verð­trygg­ingin verið und­an­skilin, þrátt fyrir að hún hafi sann­ar­lega áhrif á það hver kostn­aður láns­ins verður. Við útreikn­ingu kostn­aðar hefur ein­fald­lega bara verið miðað við að verð­bólgan sé núll pró­sent.

Þessi til­skipun var inn­leidd í íslensk lög árið 1994 og árið 2004 voru fast­eigna­lán felld undir hana. Þeir sem sækja málið vilja meina að frá þeim tíma hefði raun­kostn­aður vegna verð­trygg­ingar átt að koma fram í hlut­falls­töl­unni sem kynnt var lán­tak­endum, en ekki að það yrði ein­ungis miðað við að verð­bólgan sé núll pró­sent. Bæði Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, og Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hafa tekið undir þessa rök­semda­færslu.

Rökin fyrir því að miða við enga verð­bólgu við útreikn­ing á kostnað lána eru þau að þannig sé staðan skýr­ust. Verð­bólga er þekkt fyr­ir­brigði á Íslandi og hún hefur sveifl­ast mikið í gegnum tíð­ina. Þeir sem hafa þessa skoðun segja þannig ómögu­legt að spá fyrir um hana og betra sé að gera lán­tak­anda ein­fald­lega grein fyrir því að verð­bólga muni hafa áhrif á lánið, í stað þess að giska á hver hún verður á láns­tím­anum. Eðli verð­trygg­ingar er auk þess þannig að laun og virði hús­næðis hækkar iðu­lega sam­hliða skuldum yfir lengri tíma vegna verð­bólgu. Því sýni 0 pró­sent rétt­ustu stöð­una. Þetta eru á meðal rök­semda lög­manna íslenska rík­is­ins í mál­inu.

Ríkið í andstöðu við sjálft sig


Lögum um neyt­enda­lán var breytt á Íslandi í fyrra. Samkvæmt nýju lög­unum á hlut­falls­legur kostn­aður verð­tryggðra lána ekki að miða lengur við núll pró­sent heldur árs­verð­bólgu síð­ustu 12 mán­uði. Þessi breyt­ing veldur mála­rekstri íslenska rík­is­ins tölu­verðum erf­ið­leikum, enda er breyt­ingin í and­stöðu við málarök og hags­muni íslenska rík­is­ins.
Það sem aðskilur þessa spurn­ingu frá hinum fimm er sú að nið­ur­staða EFTA-dóm­stóls­ins verður alltaf annað hvort: já, þið megið und­an­skilja verð­bætur við útreikn­ing hlut­falls­tölu, eða nei, þið megið það ekki.

Ef nið­ur­staðan verður sú að ekki megi miða við núll pró­sent við útreikn­ing hennar, líkt og íslenska ríkið virð­ist raunar hafa þegar ákveðið með því að breyta lögum þannig að það er ekki lengur gert, þá mun Hæsti­réttur Íslands þurfa að taka afstöðu til þess, sam­kvæmt gömlu lög­unum um neyt­enda­lán. Nánar til­tekið 14. grein þeirra.

Hæsti­réttur hefur þá tvo kosti: ann­að­hvort að horfa til fyrstu greinar þeirra laga eða þriðju máls­greinar hennar. Ef Hæsti­réttur horfir til fyrstu máls­greinar verða öll verð­tryggð neyt­enda­lán ólög­mæt. Ef Hæsti­réttur horfir til þriðju máls­greinar verða þau það ekki.

Hæstiréttur hefur útgönguleið


Fyrsta máls­greinin segir að ef vextir og lán­töku­kostn­aður séu ekki til­greindir í lána­samn­ingi „er lán­veit­anda þá eigi heim­ilt að krefja neyt­enda um greiðslu þeirra“. Ef EFTA-dóm­stóll­inn segir að það hafi verið óheim­ilt að miða við núll pró­senta verð­trygg­ingu er aug­ljóst að lán­töku­kostn­aður hafi ekki verið til­greindur í lána­samn­ingi.
Þriðja máls­greinin gefur Hæsta­rétti hins vegar annan mögu­leika. Hún segir að ákvæði fyrstu máls­greinar eigi ekki við ef „lán­veit­andi getur sannað að neyt­anda hefði mátt vera ljóst hver lán­töku­kostn­að­ur­inn átti að vera“. Ríkið von­ast til þess að Hæsti­réttur muni velja að styðj­ast við þessa máls­grein komi til þess. Hún er útgöngu­leið ef Hæsti­réttur vill ekki setja ríkið á haus­inn.

Úr einum vasa í annan


Ef EFTA-dóm­stóll­inn kemst að þeirri nið­ur­stöðu að verð­trygg­ingin sé ólög­mæt þýðir það að allar greiddar verð­bætur frá inn­leið­ingu til­skip­un­ar­innar muni þurfa að endur­greið­ast sem nið­ur­greiðslur inn á höf­uð­stól. Það þýðir að sá sem greitt hefur til dæmis tíu millj­ónir króna í verð­bætur vegna verð­tryggðs láns á tíma­bil­inu myndi fá tíu millj­óna króna nið­ur­færslu á höf­uð­stól sínum. Upp­söfnuð verð­bólga á því tíma­bili sem er undir hleypur enda á tugum pró­senta. Kostn­að­ur­inn við að „end­ur­greiða“ þessar verð­bætur til neyt­enda myndi hlaupa á hund­ruðum, ef ekki þús­undum, millj­arða króna.

Íslenskir neyt­endur væru þá skyndi­lega með ein bestu lána­kjör í heimi. Aft­ur­virkt. Skuldir all­flestra sem tóku verð­tryggð fast­eigna- eða bíla­lán myndu lækka gíf­ur­lega, náms­lán í mörgum til­vikum þurrkast út, yfir­drættir hverfa og svo fram­vegis. En þar sem ein­hver „græðir“ þá þarf ein­hver að „tapa“. Eða borga.

Og í þessu til­felli lendir tapið að langstærstu leyti á þeim sömu sem græða, íslenskum skatt­greið­endum. Það yrði nefni­lega ríkið, sem eig­andi Íbúða­lána­sjóðs, Lands­bank­ans og nokk­urra minni fjár­mála­stofn­ana, ásamt líf­eyr­is­sjóðum lands­ins, sem eiga þorra skulda Íbúða­lána­sjóðs og eru sjálfir verð­tryggðir lán­veit­endur, sem myndu bera höggið vegna þessa. Ríkið myndi einnig mögu­lega verða skaða­bóta­skylt gagn­vart við­skipta­vinum þeirra fjár­mála­stofn­ana sem eru ekki lengur til, eru farnar á haus­inn í kjöl­far hruns­ins, en lán­uðu verð­tryggt til við­skipta­vina sinna. Þannig þyrfti ríkið að taka á sig stóran hluta kostn­aðar sem ann­ars hefði lent á fjár­mála­fyr­ir­tækjum í einka­eigu.

Þannig væri verið að færa pen­inga úr einum vasa í annan. Ein­stak­ling­arnir sem mynda sam­fé­lagið væru að fá greiðslu úr sam­eig­in­legum sjóðum sínum og nokk­urs konar fyr­ir­fram­greiðslu á líf­eyr­inum sínum. Nið­ur­staðan yrði sú að skuldir ein­stak­linga myndu lækka gíf­ur­lega en staða rík­is­sjóðs yrði óbæri­leg og líf­eyr­is­kerfið myndi lík­ast til eyði­leggj­ast.
Hvorki ríkið, líf­eyr­is­sjóðir né einka­bank­arnir hafa áætlað hver mögu­legur kostn­aður þeirra yrði vegna slíkrar nið­ur­stöðu. Þessir aðilar hafa að minnsta kosti ekki viljað gera þær áætl­anir opin­berar. En ljóst er að um væri að ræða mestu ágjöf sem orðið hefur á það íslenska kerfi sem hefur verið byggt upp hér frá því að það var reist.

Umfjöll­unin birt­ist fyrst í Kjarn­anum 10. júlí 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár