Ólafur Stephensen hættur sem ritstjóri 365 miðla

Ólafur Steph­en­sen er hættur sem rit­stjóri 365. Þetta stað­festir hann í bréfi til starfs­fólks.

Bréf Ólafs.

„Komið þið sæl.

Eft­ir­far­andi sendi ég fjöl­miðlum fyrir fáeinum sek­úndum:

„Ég und­ir­rit­aður hef falið lög­manni mínum að til­kynna Sævari Frey Þrá­ins­syni, for­stjóra 365 miðla, að ég líti svo á að ráðn­ing­ar­samn­ingi mínum við 365 miðla hafi verið rift og ég sé óbund­inn af honum.

Boð um breytt starf hjá fyr­ir­tæk­inu, sem átti að fylgja rit­stjóra­tit­ill, fól engu að síður í sér veru­lega breyt­ingu á verk­efnum mínum, starfs­skyldum og ábyrgð. Ráðning tveggja nýrra rit­stjóra felur það sama í sér. Þá hafa fleiri atburðir und­an­far­inna daga á frétta­stofu 365, sem ég get ekki tjáð mig frekar um vegna trún­aðar, orðið til þess að ég get ekki litið öðru­vísi á en að ætl­unin sé að þrengja að sjálf­stæði mínu sem rit­stjóra, sem kveðið er á um í siða­reglum félags­ins.

Af þessu leiðir að ég mæti ekki til starfa á frétta­stof­unni á morgun. Ég kveð gott sam­starfs­fólk með sökn­uði og þakka því ánægju­lega sam­fylgd.“

Það er ástæða til að ítreka enn betur hér þakkir mínar til ykkar, frá­bæra sam­starfs­fólk, sem ég hef átt með fjögur og hálft ánægju­legt ár.

Sjáumst síðar."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár