Einn ritstjóri 365 rekinn, hinn reynir að segja upp

Mikil upp­stokkun átti sér stað innan 365 miðla í dag. Mikael Torfason aðal­rit­stjóri hefur verið rek­inn, Ólafur Steph­en­sen rit­stjóri hefur reynt að segja upp störfum og tveir frétta­stjórar hafa verið settir af. Kristín Þor­steins­dóttir, útgef­andi 365 miðla, hefur tekið að sér starf aðal­rit­stjóra og Sigurjón M. Egilsson, útvarps­maður og rit­stjóri www.midjan.is, hefur verið ráð­inn sem frétta­rit­stjóri.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa breyt­ingar legið í loft­inu síðan að til­kynnt var um ráðn­ingu Krist­ínar Þor­steins­dóttur sem útgef­anda 365 í lok júlí síð­ast­lið­ins. Kristín starf­aði fyrir nokkuð löngu á ýmsum fjöl­miðlum, lengst af hjá frétta­stofu RÚV, en gerð­ist síðar yfir­maður sam­skipta­sviðs Baugs, fjár­fest­inga­fé­lags sem var stýrt um ára­bil af Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, og upp­lýs­inga­full­trúi flug­fé­lags­ins Iceland Express, sem var stýrt af Pálma Har­alds­syni. Jón Ásgeir var lengi aðal­eig­andi 365 og Pálmi var einnig á meðal eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins um tíma. Í dag er aðal­eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins Ingi­björg Pálma­dóttir, eig­in­kona Jóns Ásgeirs.

Ólafur reyndi að segja upp


Í morgun var Mikael Torfa­syni sagt upp störfum sem aðal­rit­stjóra 365 miðla. Hann var ráð­inn í mars 2013 og starf­aði því hjá fjöl­miðl­aris­anum í um eitt og hálft ár. Skömmu síðar var starfs­fólki til­kynnt að Sigurjón M. Egilsson, sem var frétta­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins á árum áður en hefur und­an­farin miss­eri sinnt frétta­flutn­ingi á síð­unni www.midjan.is og haldið úti útvarps­þætt­inum Sprengisandi, hefði verið ráð­inn sem frétta­rit­stjóri. Kristín Þor­steins­dóttir mun setj­ast, að minnsta kosti tíma­bundið, í stól aðal­rit­stjóra.

Ólafi Steph­en­sen, sem hefur verið rit­stjóri Frétta­blaðs­ins í um fjögur og hálft ár, var, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, boðið að taka við breyttu hlut­verki á frétta­stofu 365 miðla. Hann hefði þá heyrt undir Sigurjón M. Egilsson, nýráð­inn frétta­rit­stjóra. Ólafur mun hafa reynt að segja upp störfum í kjöl­farið en upp­sögn hans var ekki mót­tekin, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Starfs­fólk 365 miðla sem Kjarninn ræddi við telur skýrt að Ólafur muni ekki mæta aftur til starfa, þótt það sé ekki úti­lokað. Vilji sé til þess á meðal stjórnar 365 að láta Ólaf vinna upp­sagn­ar­frest. Ólafur svar­aði ekki skila­boðum Kjarnans við vinnslu frétt­ar­innar.

Þá herma heim­ildir Kjarnans að Breki Logason hafi verið settur af sem frétta­stjóri Stöðvar 2 og Andri Ólafsson settur af sem frétta­stjóri Frétta­blaðs­ins. Þeim hefur báðum verið boðið ný störf á frétta­stof­unni.

Viðbót klukkan 18:28:

Kristín Þor­steins­dóttir, útgef­andi og sitj­andi aðal­rit­stjóri 365 miðla, vill koma því að fram­færi að Ólafur Steph­en­sen sé enn starf­andi hjá fyr­ir­tæk­inu og sé raunar við störf á þess­ari stundu. Hún segir einnig að Breki Logason og Andri Ólafsson séu enn frétta­stjórar. Þegar ofan­greind frétt var skrifuð var stuðst við fjöl­margar sam­hljóma heim­ildir um stöð­una innan 365 miðla á þeim tíma. Kjarninn stendur því að öllu leyti við frétt­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár