Utanríkismál: Allt veltur á EES-samningnum

Það hafa verið miklir umbrots­tímar í íslensku sam­fé­lagi und­an­farin ár. Margt hefur áunn­ist í bar­átt­unni við að end­ur­reisa þar og efla. Í dag er til að mynda góður hag­vöxtur, lítil verð­bólga og lítið atvinnu­leysi. Ákveðnir atvinnu­vegir, sér í lagi sjáv­ar­út­vegur og ferða­þjón­usta, eru í miklum sókn­ar­ham.

Ísland stendur hins vegar enn frammi fyrir risa­vöxnum vanda­málum sem nauð­syn­legt verður að takast á við í allra nán­ustu fram­tíð. Þeirri bar­áttu verður ekki frestað mikið lengur. Á þessum tíma­mótum Kjarnans þótti rit­stjórn hans rétt að útlista þau fjögur helstu. Þau eru glíman við fjár­magns­höft, breyt­ingar á líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu, skjald­borg um heil­brigð­is­kerfið og staða Íslands í alþjóða­sam­fé­lag­inu. Hér að neðan verður fjallað um stöðu Íslands í alþjóða­sam­fé­lag­inu.

Ísland og Evrópa


Íslenska þjóðin er ein­ungis 0,0004 pró­sent af mann­kyn­inu. Það er henni því mjög mik­il­vægt að vera í góðum sam­skiptum við að minnsta kosti hluta hinna 99,9996 pró­sent­anna sem á jörð­inni búa.

Lengi vel græddum við vel á hern­að­ar­lega mik­il­vægri stað­setn­ingu lands­ins og pen­ingar dæld­ust hingað inn vegna hennar. Sá veru­leiki er far­inn og nú snú­ast alþjóða­sam­skipti okkar fyrst og síð­ast um við­skipta­lega hags­muni.

Síðasta rík­is­stjórn reyndi að fara með Ísland inn í Evr­ópu­sam­bandið á einum mestu umbrota­tímum sem það hefur nokkru sinni gengið í gegnum. Sú veg­ferð var stöðvuð og núver­andi rík­is­stjórn mun ugg­laust reyna allt sem í valdi hennar stendur til að grafa þá umsókn end­an­lega á þessu kjör­tíma­bili. Það er þó fín lína að feta, enda fara um 80 pró­sent af útflutn­ingi okkar til Evrópu og 60 pró­sent af því sem við flytjum inn koma þaðan.

Vilja efla EES-samstarf


Í stað­inn fyrir að horfa á fulla aðild vill sitj­andi rík­is­stjórn efla sam­starf Íslands við ríki Evr­ópu­sam­bands­ins á grund­velli samn­ings­ins um Evrópska efna­hags­svæðið (EES), sem gekk í gildi árið 1994. Gunnar Bragi Sveins­son utan­ríkis­ráð­herra hefur látið hafa það eftir sér opin­ber­lega að efla verði hags­muna­gæslu Íslands innan EES. Það verði gert með því að sjón­ar­mið Íslands komi fram í lög­gjaf­ar­starfi strax á fyrstu stigum máls­ins. Í Evr­ópu­stefnu Gunnars Braga er líka gert ráð fyrir stór­efldu og góðu sam­starfi við Norðmenn á vett­vangi EES-samn­ings­ins.

Til útskýr­ingar veitir EES-samn­ing­ur­inn Íslandi nokk­urs konar auka­að­ild að innri mark­aði Evrópu án tolla og gjalda á all­flestar vörur. Samn­ing­ur­inn er því lang­mik­il­væg­asti við­skipta­samn­ingur þjóð­ar­innar.

Þegar Ísland und­ir­gekkst EES-samn­ing­inn fyrir 20 árum sam­þykkti landið líka að inn­leiða hið ófrá­víkj­an­lega fjór­frelsi ESB: innan svæð­is­ins sem samn­ing­ur­inn nær til gildir frjálst flæði fólks, varn­ings, þjón­ustu og fjár­magns.

Þegar Íslend­ingar inn­leiddu fjár­magns­höft í kjöl­far hruns­ins brutu þeir gegn einni af þessum grunn­stoðum, frjálsu flæði fjár­magns. Hluti af aðild­ar­ferl­inu að Evr­ópu­sam­band­inu, sem nú er í frosti, var að setja á fót sam­starfs­vett­vang þar sem unnið var að losun þess­ara hafta svo að skil­yrðið væri upp­fyllt. Evr­ópu­sam­bandið dró sig út úr þeim vett­vangi þegar aðild­ar­við­ræður voru settar á hill­una. Ef þeim verður slitið mun sam­bandið lík­ast til setja fram kröfu um að Íslend­ingar upp­fylli það.

Endursamið um framlög í þróunarsjóðinn


Ísland borgar fyrir aðild að EES-svæð­inu með ýmsum hætti. Stærstur hluti þeirrar borg­unar fer í gegnum vett­vang sem kall­ast Þró­un­ar­sjóður EFTA. Hann er oft nefndur verð­mið­inn inn á innri markað ESB. Frá því að Ísland og Noregur skrif­uðu undir EES-samn­ing­inn hafa þau greitt í þennan sjóð. Hann úthlutar svo fjár­magni til þeirra fimmtán aðild­ar­ríkja sem fá greiðslur úr sjóðnum.

Samn­ingar um fram­lög í sjóð­inn eru teknir upp á fimm ára fresti. Síðast var samið um tíma­bilið 2009-2014. Framlög í hann voru áætluð um 155 millj­arðar króna á verð­lagi dags­ins í dag á því tíma­bili. Af því fram­lagi var áætlað að Ísland greiddi tæp­lega fimm pró­sent, eða allt að sjö millj­örðum króna. Á árinu 2014 greiðum við til að mynda 1,4 millj­arða króna í sjóð­inn sam­kvæmt fjár­lögum. Liechtenstein borgar rétt yfir eitt pró­sent af kostn­að­inum og Noregur tæp­lega 95 pró­sent.

Auk þess er til sér­stakur Þró­un­ar­sjóður Noregs, sem þró­un­ar­ríki ESB fá úthlutað út úr. Norðmenn borga um 125 millj­arða króna inn í hann á tíma­bil­inu. Norðmenn borga því um 260-270 millj­arða króna fyrir aðgöngu að innri mark­aðnum.

Nú standa yfir við­ræður um fram­lög Íslend­inga og hinna EES-ríkj­anna í þró­un­ar­sjóð­inn. Viðbúið er, eins og alltaf hefur gerst, að fram­lögin muni hækka. Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar um hversu mikla hækkun verður farið fram á.

Nið­ur­staða þess­ara við­ræðna, sem búast má við að verði Íslend­ingum erf­iðar, mun skipta mjög miklu máli fyrir íslensku þjóð­ina í fram­tíð­inni.

Þessi grein er hluti af mun stærri umfjöllun um helstu áskor­anir sem íslenskt sam­fé­lag stendur frammi fyrir sem birt­ist í Kjarn­anum í síð­ustu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár