Lífeyrissjóðir: Vantar mörg hundr­uð milljarða

Það hafa verið miklir umbrots­tímar í íslensku sam­fé­lagi und­an­farin ár. Margt hefur áunn­ist í bar­átt­unni við að end­ur­reisa þar og efla. Í dag er til að mynda góður hag­vöxtur, lítil verð­bólga og lítið atvinnu­leysi. Ákveðnir atvinnu­vegir, sér í lagi sjáv­ar­út­vegur og ferða­þjón­usta, eru í miklum sókn­ar­ham.

Ísland stendur hins vegar enn frammi fyrir risa­vöxnum vanda­málum sem nauð­syn­legt verður að takast á við í allra nán­ustu fram­tíð. Þeirri bar­áttu verður ekki frestað mikið lengur. Á þessum tíma­mótum Kjarnans þótti rit­stjórn hans rétt að útlista þau fjögur helstu. Þau eru glíman við fjár­magns­höft, breyt­ingar á líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu, skjald­borg um heil­brigð­is­kerfið og staða Íslands í alþjóða­sam­fé­lag­inu. Hér að neðan verður fjallað um stöðu líf­eyr­is­kerf­is­ins.

Sameina þarf lífeyriskerfin


Í dag er lág­marks­eft­ir­launa­líf­eyrir 219 þús­und krónur. Til að setja þá upp­hæð í sam­hengi er lág­marks­fram­færslu­við­mið vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins 290 þús­und krónur. Lág­marks­eft­ir­launa­líf­eyr­ir­inn er því aðeins 75 pró­sent af þeirri upp­hæð sem þarf til að lifa af.

Þrátt fyrir að íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið eigi tæpa 2.750 millj­arða króna er það langt frá því að standa undir þeim skuld­bind­ingum sem sjóð­irnir hafa lofað að standa undir. Til þess vantar tæpa 900 millj­arða króna, að mati Björns Z. Arn­gríms­sonar, sér­fræð­ings hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Í grein sem hann skrif­aði í fyrra­haust segir að skuld­bind­ingar líf­eyris­sjóð­anna séu mögu­lega van­metnar vegna þess að þær taki ekki nægi­legt til­lit til þess að Íslend­ingar séu alltaf að eld­ast.

Ríkið borgar fullt


Þorri þeirrar upp­hæðar sem vantar upp á er vegna halla á stærsta líf­eyr­is­sjóði lands­ins, Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins (LSR). Halli hans er að minnsta kosti 450 millj­arðar króna. Sá sem „skuldar“ sjóðnum þessa pen­inga er íslenska ríkið. Ríkið þyrfti að borga yfir 30 millj­arða króna á ári í 20 ár til að borga þessa skuld.

Margir virð­ast halda að líf­eyr­is­sjóð­irnir standi sjálfir undir öllum þeim greiðslum sem þeir greiða í líf­eyri. Því fer fjarri. Íslenska ríkið tryggir ákveðna lág­marks­líf­eyris­greiðslu, áður­nefndar 219 þús­und krónur á mán­uði. Ef líf­eyr­i­s­jóð­irnir borga ekki þá upp­hæð mán­að­ar­lega til sinna skjól­stæð­inga þarf ríkið að grípa inn í og brúa bilið. Árlegar greiðslur vegna þessa eru nú um 40 millj­arðar króna og hafa hækkað um 15 millj­arða króna frá árinu 2008. Ríkið greiðir því um helm­ing útgreidds líf­eyris á hverju ári.

Gömlum Íslendingum fjölgar mjög hratt


Vandi íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins er eitt mest aðkallandi vanda­mál sem íslenskt sam­fé­lag stendur frammi fyrir. Fjöldi Íslend­inga sem eru yfir 67 ára aldri mun þre­fald­ast á næstu 45 árum. Hagstofa Íslands spáir því að árið 2060 verði þeir 97 þús­und. Til við­bótar við þær háu upp­hæðir sem vantar inn í grunn­líf­eyr­is­kerfi treystir það líka á að fólk leggi fyrir annan sparnað til að kom­ast af á efri árum, enda greiða líf­eyr­is­sjóð­irnir og Trygg­inga­stofnun rík­is­ins ein­ungis um 40 pró­sent af launum í líf­eyri.

Þorri þess við­bót­ar­sparn­aðar hefur verið í gegnum sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparn­að­ar­kerfið. Síðustu tvær rík­is­stjórnir lands­ins hafa hins vegar opnað fyrir það að lands­menn nýti sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn í annað en að spara fyrir ævi­kvöldið. Fyrst var fólki ein­fald­lega leyft að taka pen­ing­ana út, borga af þeim skatta og eyða þeim í það sem því sýnd­ist. Um 100 millj­arðar króna höfðu flætt úr sér­eign­ar­kerf­inu um síð­ustu ára­mót vegna þessa. Sitjandi rík­is­stjórn til­kynnti síðan að hún ætl­aði að heim­ila skatt­frjálsa nýt­ingu á sér­eign­ar­líf­eyr­is­greiðslum til nið­ur­greiðslu á höf­uð­stól íbúða­lána. Á næstu fjórum árum verður umfang þeirrar aðgerðar um 70 millj­arðar króna. Verði hún fram­lengd, eins og póli­tískur vilji er til, mun hún lík­lega ganga mjög nærri sér­eign­ar­kerf­inu.

Stjórnvöld að vakna


Vanda­málið er því afar stórt og stjórn­völd vita af því. Að takast á við það með þeirri alvöru sem vanda­málið útheimtir hefur þó ítrekað verið frestað á und­an­förnum árum. Nú virð­ist sem smá­vægi­leg hreyf­ing sé á mál­inu og að það kom­ist mögu­lega á dag­skrá í haust. Nefnd um mál­efni líf­eyr­is­sjóða hefur lagt til að opin­bera kerf­inu, þar sem ríkið er í ábyrgðum fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina, verði breytt í frjálst kerfi líkt því sem aðrir líf­eyr­is­sjóðir starfa í. Auk þess virð­ist vera nokkuð mik­ill sam­taktur um nauð­syn þess að hækka líf­eyr­is­aldur upp í 70 ár hið minnsta hjá öllum í nýja kerf­inu.

Til við­bótar þyrfti að hækka iðgjöld, það hlut­fall launa sem hver launa­maður er lög­bund­inn til að greiða í líf­eyr­is­sjóð mán­að­ar­lega, umtals­vert. Iðgjöld í almenna kerf­inu í dag eru 12,5 pró­sent en til­lögur miða við að þau verði hækkuð upp í 15,5 pró­sent.

Það liggur mikið á að taka stórar ákvarð­anir varð­andi þetta mál. Hrafn Magn­ús­son, sem var fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands líf­eyr­is­sjóða í vel á fjóra ára­tugi, skrif­aði grein í Kjarnann í októ­ber 2013. Á meðal þess sem hann fjall­aði um var sá halli sem er á stærsta líf­eyr­is­sjóði lands­ins, LSR. „Þetta er grafal­var­leg staða sem versnar með hverju ári sem líður ef ekki er gripið til við­eig­andi ráð­staf­ana. Hallinn á LSR og líf­eyr­is­sjóðum sveit­ar­fé­laga er áhyggju­efni fyrir alla þjóð­ina því með þessu ástandi er verið að velta skatt­byrð­inni yfir á kom­andi kyn­slóðir,“ sagði Hrafn í grein­inni.

Þessi grein er hluti af mun stærri umfjöllun um helstu áskor­anir sem íslenskt sam­fé­lag stendur frammi fyrir sem birt­ist í Kjarn­anum í síð­ustu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár