Heilbrigðis­kerfið: Landflótti heilbrigðisstarfsmanna

Það hafa verið miklir umbrots­tímar í íslensku sam­fé­lagi und­an­farin ár. Margt hefur áunn­ist í bar­átt­unni við að end­ur­reisa þar og efla. Í dag er til að mynda góður hag­vöxtur, lítil verð­bólga og lítið atvinnu­leysi. Ákveðnir atvinnu­vegir, sér í lagi sjáv­ar­út­vegur og ferða­þjón­usta, eru í miklum sókn­ar­ham.

Ísland stendur hins vegar enn frammi fyrir risa­vöxnum vanda­málum sem nauð­syn­legt verður að takast á við í allra nán­ustu fram­tíð. Þeirri bar­áttu verður ekki frestað mikið lengur. Á þessum tíma­mótum Kjarnans þótti rit­stjórn hans rétt að útlista þau fjögur helstu. Þau eru glíman við fjár­magns­höft, breyt­ingar á líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu, skjald­borg um heil­brigð­is­kerfið og staða Íslands í alþjóða­sam­fé­lag­inu. Hér að neðan verður fjallað um heil­brigð­is­kerfið.

Endurnýjun lækna er ekki að eiga sér stað


Stjórn­valda bíður mjög erfitt verk­efni við að standa vörð um íslenska heil­brigð­is­kerfið. Við blasir krísu­á­stand. Tækju­bún­aður er ann­að­hvort úreltur eða ekki til, hús­næði heil­brigð­is­stofn­anna, og sér­stak­lega Land­spít­al­ans, er óboð­legt fyrir slíka starf­semi og skapar mikið óhag­ræði, álag á starfs­fólk er gríð­ar­legt og sam­keppni um það mikil. Þegar gríðar­legur nið­ur­skurður bæt­ist ofan á þetta ástand má ljóst vera að sprung­urnar stækka ansi hratt. Og því fag­fólki sem vill vinna við þessum aðstæður fækkar hratt og örugg­lega.

Fara til Noregs og koma aldrei aftur


Frá árinu 2008 hafa vel á fimmta hund­ruð íslenskir hjúkr­un­ar­fræð­ingar fengið leyfi til að starfa í Noregi, en þangað hefur straum­ur­inn legið að mestu. Í sam­tali við RÚV í febr­úar síð­ast­liðnum sagði Ólafur G. Skúlason, for­maður Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga, að mark­að­ur­inn í Noregi virt­ist botn­laus og gæti auð­veld­lega gleypt hjúkr­un­ar­fræð­i­stétt­ina hér á landi alla. Ástæður þessa flótta eru auð­vitað fyrst og fremst vegna þær að launin eru miklu, miklu, miklu hærri í Noregi, og víðar í Skand­in­avíu, en hér. Auk þess spilar inn í að vinnu­að­stæður eru í flestum til­fellum miklu betri og álagið og mönnun stofn­ana allt önnur.

Ástandið innan lækna­stétt­ar­innar er ekk­ert skárra. Það er í raun enn alvar­legra. Fyrr í þessum mán­uði sagði Þorbjörn Jónsson, for­maður Lækna­fé­lags Íslands, frá því í sam­tali við RÚV að nýliðun lækna væri ekki nálægt því að anna lækna­þörf Íslend­inga. Helmingi fleiri læknar myndu auk þess fara á eft­ir­laun á næstu fimm árum en fimm árin á undan. Flestir helstu sér­fræði­læknar þjóð­ar­innar eru að fara á eft­ir­laun á allra næstu árum og ekki virð­ist hægt að manna þær stöður á ný. Nýút­skrif­aðir læknar, og þeir sem eru erlendis í sér­fræði­námi, virð­ast ekki hafa neinn áhuga á því að starfa hér­lendis. Ástæð­urnar eru nákvæm­lega þær sömu og hjá hjúkr­un­ar­fræð­ingum: hér eru mun lægri laun, verra starfs­um­hverfi og miklu meira álag.

Er Ísland velferðarríki?


Samhliða eru Íslend­ingar að eld­ast hratt og álagið á heil­brigð­is­kerfið mun aukast enn frekar á allra næstu árum vegna þessa. Eldra fólk glímir enda við fleiri heil­brigðiskvilla en það yngra. Við­brögðin við þessu ástandi hafa fyrst og síð­ast verið þau að auka kostn­að­ar­þátt­töku sjúk­linga. Þegar horft er til þeirra vanda­mála sem Ísland stendur frammi fyrir í líf­eyr­is­sjóða­málum sínum er ljóst að slíkt mun ekki ganga til lengdar ef Ísland vill stæra sig áfram af því að bjóða upp á vel­ferð­ar­kerfi fyrir alla, ekki bara þá sem eiga pen­inga.

Þessi grein er hluti af mun stærri umfjöllun um helstu áskor­anir sem íslenskt sam­fé­lag stendur frammi fyrir sem birt­ist í Kjarn­anum í síð­ustu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár