Fyrrum bílakóngur talinn vera á bakvið DV yfirtöku

Hart er barist um yfir­ráð yfir DV um þessar mundir. Sú bar­átta verður leidd til lykta á aðal­fundi í næstu viku. Í öðru horn­inu eru Reynir Trausta­son, stór eig­andi og rit­stjóri DV, ásamt helstu lyk­il­starfs­mönnum mið­ils­ins. Innan þeirra raða er sann­fær­ing fyrir því að yfir­töku "hins liðs­ins" muni fylgja blóð­ugar upp­sagnir. Þeir sem helst eru taldir í hættu eru áðu­nefndur Reynir, fram­kvæmda­stjór­inn Jón Trausti Reyn­is­son, rit­stjórn­ar­full­trú­inn Ingi Freyr Vil­hjálms­son, aðstoð­ar­rit­stjór­inn Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir og aug­lýs­inga­stjór­inn Heiða B. Heiðars.

Í hinu horn­inu er maður sem heitir Þor­steinn Guðnason. Hann virð­ist vera fjarri því að vera mjög fjáður. Samt virð­ist hópur sem Þor­steinn fer fyrir vera kom­inn með meiri­hluta í DV, sér­stak­lega eftir að Lilja Skafta­dóttir, einn stærsti eig­andi mið­ils­ins, var keypt út fyrir tugi millj­óna króna. Lög­mað­ur­inn Sigurður G. Guð­jóns­son hefur einnig verið að vinna að því að tryggja þessum hópi yfir­ráð yfir DV.

Í Bak­her­berg­inu heyr­ist að pen­ing­arnir á bak­við nýjan mögu­legan meiri­hluta­hóp komi að mestu frá Gísla Guð­munds­syni, fyrrum eig­anda B&L. Kenn­ingin er að Gísli hafi látið DV fá pen­ing þegar hann lán­aði blað­inu fyrir him­in­hárri skatta­skuld í fyrra. Því láni hafi síðar verið breytt í hlutafé. Nú vill hann áhrif í takt við fjár­fest­ing­una.

Bak­her­bergið birt­ist í aðeins breyttri mynd í síð­ustu útgáfu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár