Sögulegur sigur eða pólitískt leikhús?

Í síð­ustu viku voru tveir eft­ir­lif­andi yfir­menn alræð­is­stjórnar Rauðu Kmeranna, Nuon Chea og Khieu Samphan, dæmdir í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir glæpi gegn mann­kyn­inu. Dómurinn var kveð­inn upp af sér­skip­uðum dóm­stól í Phnom Penh, sem studdur er af Sam­ein­uðu þjóð­unum, hátt í 40 árum eftir að ógn­ar­stjórn Pol Pot útrýmdi fjórð­ungi þjóð­ar­innar. Dóm­stóll­inn, sem form­lega hóf störf í Kambódíu árið 2006, hefur verið gagn­rýndur fyrir seina­gang, spill­ingu og pen­inga­sóun. Eftir átta ár og um 200 millj­ónir Banda­ríkja­doll­ara hafa ein­ungis þrír ein­stak­lingar verið dæmdir sekir.

Blendnar tilfinningar við dómsuppskurð


Nuon Chea og Khieu Samphan, sem setið hafa í gæslu­varð­haldi frá 2007, voru meðal æðstu yfir­manna Rauðu Kmeranna. Ógn­ar­stjórn þeirra ein­kennd­ist af ofsóknum, pynt­ingum og útrým­ingu, en talið er að um tvær millj­ónir manns hafi lát­ist frá árunum 1975 til 1979 úr hungri, sjúk­dómum eða verið mark­visst teknir af lífi sem „óvinir fólks­ins“. Nuon Chea, gjarnan nefndur „Bróðir númer 2“, var einn helsti hug­mynda­smiður stjórn­ar­innar og hægri hönd Pol Pot, sem lést í stofu­fang­elsi árið 1998 áður en hægt var að sækja hann til saka. Khieu Samphan gegndi stöðu for­seta (e. Head of State).

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_08_21/58[/embed]

Kam­bódíska þjóðin hefur þurft að bíða í ára­tugi eftir að skref sé tekið í átt að rétt­læti fyrir þær þján­ingar sem hún þurfti að þola. ECCC-dóm­stóll­inn (e. Extra­or­din­ary Chambers in the Courts of Cambodia) var form­lega stofn­aður árið 2006 eftir að sam­komu­lag náð­ist á milli Sam­ein­uðu þjóð­anna og kam­bódísku ríkis­stjórn­ar­innar um til­högun réttar­hald­anna og hvernig gera skyldi upp blóð­ugan valda­tíma Rauðu Kmeranna á rétt­mætan hátt.

Árið 2007 hófu sak­sókn­arar rann­sókn gegn fimm sak­born­ingum sem sak­aðir voru um glæpi gegn mann­kyn­inu, þjóð­ar­morð og alvar­leg brot á Gen­far­sátt­mál­anum. Kaing Guek Eav, þekkt­ari undir við­ur­nefn­inu Dutch, var sá fyrsti til að hljóta dóm, en hann var dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir að bera ábyrgð á dauða yfir 12 þús­und manna þegar hann stjórn­aði hinu alræmda Tuol Sleng-fang­elsi. Því var viss sigur í höfn þegar yfir­dóm­ari dóm­stóls­ins, Nil Nonn, las upp úrskurð­inn gegn mönn­unum tveimur fyrir framan þétt­skip­aðan sal af almennum borg­urum, eft­ir­lif­andi fórn­ar­lömbum og fjöl­skyldum. Menn­irnir voru fundnir sekir um glæpi gegn mann­kyn­inu sem fólu í sér morð, póli­tískar ofsóknir og árásir gegn mann­legri reisn, brot sem hófust með þving­uðum brott­flutn­ingi fólks frá Phnom Penh hinn 17. apríl 1975.

„And­rúms­loftið var sér­stakt. Inni í dóm­salnum ríkti graf­ar­þögn þegar dóm­ur­inn var les­inn upp. Hvorugur sak­born­ing­anna sýndi nokkur við­brögð. [Fyrir utan dóm­sal­inn] sýndi fólk meiri til­finn­ingar, margir grétu en sumir voru ósáttir við dóm­inn og vildu sjá þá fá þyngri refs­ingu,” segir Lauren Crothers, blaða­maður hjá The Cambodia Daily. Ólíklegt verður að telj­ast að menn­irnir muni nokkurn tím­ann afplána dóm­inn í kam­bódísku fang­elsi þar sem báðir eru á níræð­is­aldri, heilsu­litlir og hafa áfrýjað nið­ur­stöð­unni. Þeir sitja því áfram í gæslu­varð­haldi dóm­stóls­ins og bíða þess að næsti ákæru­liður í máli þeirra verði tek­inn fyrir síðar á árinu, en þá verður réttað yfir tví­menn­ing­unum fyrir þjóð­ar­morð.

Vaxandi ásakanir um pólitísk afskipti stjórnarinnar


Á meðan dóm­ur­inn er vissu­lega sögu­legur hafa háværar gagn­rýn­is­raddir lengi ómað í Kambódíu sem og í alþjóða­sam­fé­lag­inu. Yfir­rann­sókn­ar­dóm­arar hafa sagt af sér og sakað rík­is­stjórn­ina um póli­tísk ítök og að veikja sjálf­stæði dóm­stóls­ins. Kambód­ískir túlkar hafa farið í verk­föll vegna van­gold­inna launa. Dóm­stóll­inn, sem átti að vera sam­eig­in­legt verk­efni milli Sam­ein­uðu þjóð­anna og rík­is­stjórn­ar­innar, vegur þjóð­ar­innar að rétt­læti, hefur verið sak­aður um spill­ingu, hlut­drægni og pen­inga­sóun, en rétt­ar­höldin hafa í dag kostað um 200 millj­ónir Banda­ríkja­doll­ara og ein­ungis þrír menn verið dæmdir sekir. Fjórði sak­born­ing­ur­inn, Ieng Sary, lést fyrr á árinu og eig­in­kona hans, Ieng Thirith, hefur verið úrskurðuð óhæf til að sitja rétt­ar­höld vegna Alzheimer-sjúk­dóms­ins. Aðrir hátt­settir með­limir ganga enn lausir. Fyrir marga Kam­bó­díu­menn kemur dóm­ur­inn of seint.

Khiang Hei, sem yfir­gaf Kambódíu ásamt fjöl­skyldu sinni árið 1979 og flutti til Banda­ríkj­anna 11 ára að aldri, segir í sam­tali við Kjarnann að þetta séu viss enda­lok fyrir þessa þrjá ein­stak­linga en að allt of mik­ill tími og miklir pen­ingar hafi farið í rétt­ar­höldin. „Einungis örfáir ein­stak­lingar hafa verið sóttir til saka. Hvað með þá sem frömdu morðin? Það eru ein­stak­lingar í núver­andi stjórn sem gætu hafa tekið þátt og kom­ist upp með það. Hvað með aðra með­limi Rauðu Kmeranna sem lifa frjálsir og eru enn að kúga kam­bódísku þjóð­ina í dag?“ segir Khiang.

Theary Seng, sem misssti báða for­eldra sína og var fang­elsuð sem barn á tímum Rauðu Kmeranna, tekur í sama streng og segir í við­tali við CNN-sjón­varps­stöð­ina: „… við erum að fá brot af rétt­læti en ekki við­un­andi rétt­læti.“ Hún segir rík­is­stjórn­ina, með fyrr­ver­andi her­menn Rauðu Kmeranna inn­an­borðs, þar á meðal for­sæt­is­ráð­herr­ann Hun Sen, hafa haft mikil áhrif á ferlið, lokað á frek­ari rann­sóknir og komið í veg fyrir að menn í ábyrgð­ar­stöðum væru sóttir til saka. „Þessi dóm­stóll var lög­mætur í byrjun en hefur umbreyst í póli­tískt leik­hús,“ bætir hún við.

Nýr kafli í sögubækurnar


Dómurinn sem kveð­inn var upp hinn 7. ágúst er ein­ungis byrj­unin á löngum rétt­ar­höldum sem fram undan eru, ef heilsu sak­born­ing­anna fer ekki þeim mun meira hrak­andi. Síðar á árinu verður réttað yfir þeim fyrir mun alvar­legri ásak­anir en búið er að dæma þá fyrir, þar á meðal þjóð­ar­morð, nauðg­anir og þvinguð hjóna­bönd.

Þrátt fyrir gagn­rýni er dóm­stóll­inn merki­legur fyrir margar sakir, meðal ann­ars að þetta er í fysta skipti sem fórn­ar­lömb fá að vera virkir þátt­tak­endur í alþjóð­legum glæpa­dóm­stól við hlið sak­sókn­ara og verj­enda. Í dóm­salnum í Phnom Penh hafa eft­ir­lif­endur harð­stjórn­ar­innar fengið að bera vitni og deila reynslu sinni og ann­arra fjöl­skyldu­með­lima sem ekki komust lífs af og krefj­ast skaða­bóta fyrir þann per­sónu­lega skaða sem þeir þurftu að þola. Lauren Crothers segir að vitn­is­burð þeirra muni seint fara úr minn­ing­unni og að sárs­auka­fullt upp­gjör þeirra við for­tíð­ina hafi málað ólýs­an­lega mynd af því hvernig það var að upp­lifa þessa tíma. „Þetta er lif­andi frá­sögn, og að heyra hana frá fyrstu hendi fær mann til að átta sig á því hversu mik­il­vægt það er að skrá­setja sög­una. Raddir þolend­anna eru núna skjal­festar. Þær verða nýr kafli í sögu­bók­unum. Það er jákvætt.“

Tíminn sem lið­inn er frá ódæð­is­verk­unum hefur tekið sinn toll þegar kemur að áhuga almenn­ings og trú á réttar­höld­unum, sér­stak­lega á meðal yngri kyn­slóð­ar­innar. Arfleifð dóm­stóls­ins verður seint almenn sátt í kam­bódísku sam­fé­lagi. Hann er eitt skref í átt að rétt­læti fyrir þær millj­ónir manna sem létu lífið eða misstu allt sitt á þessum tíma. Þrír menn munu fara í gröf­ina sem sekir menn en skrá­settar sögur fórn­ar­lamba þeirra eru ómet­an­legar heim­ildir fyrir kom­andi kyn­slóðir og áminn­ing um þær hörm­ungar sem for­feður þeirra gengu í gegnum. Þegar allt kemur til alls er það ef til vill stærsti sig­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár