Fjármagnshöft: Krónueigendur sem vilja út

Íslend­ingar hafa búið í sýnd­ar­hag­kerfi síð­ast­liðin tæp sex ár. Frá lokum árs 2008 hafa verið við lýði höft á fjár­magns­flutn­inga sem meina pen­ingum að yfir­gefa hag­kerfið. Og mikið af pen­ingum vill yfir­gefa hag­kerfið. Ísland á bara ekki gjald­eyri til að leysa þá út. Þess vegna eru höftin til staðar.

Snjóhengja eitt


Fyrst ber að nefna hina upp­runa­legu snjó­hengju, sem er til­komin að stórum hluta vegna vaxt­ar­mun­ar­við­skipta (e. carry trade) sem stunduð voru af kappi hér­lendis á árunum fyrir hrun. Umfang hennar, sam­kvæmt umræðu­skjali frá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inum (AGS) frá því í júlí á þessu ári, er um 322 millj­arðar króna. Þessi snjó­hengja hefur bráðnað hægt og rólega með fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands. Hún gerir eig­endum þess­ara kviku króna kleift að skipta þeim í evrur gegn því að gefa eftir hluta af virði þeirra. Vanda­málið við þessa leið er að til að við­skiptin gangi upp þarf mót­að­ila sem kaupir krón­urnar með afslætti. Í jan­úar síð­ast­liðnum hafði sá fámenni hópur sem nýtt hefur sér þessa leið komið með alls 147 millj­arða króna til Íslands og fengið 25 millj­arða króna afslátt á þeim eignum sem hann keypti fyrir þá upp­hæð.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_08_21/10[/embed]

Snjóhengja tvö


Þær krónur í eigu erlendra aðila sem eru mest í umræð­unni eru inn­lendar eignir þrota­búa föllnu bank­anna. Þær nema tæpum 800 millj­örðum króna sam­kvæmt mati AGS. Mjög skiptar skoð­anir eru innan stjórn­mál­anna, og stjórn­mála­flokk­anna, um hvaða leið eigi að fara við upp­gjör þrota­búa föllnu bank­anna. Allir eru þó sam­mála að lausn á þeim sé for­senda þess að hægt sé að rýmka höft.

Til ein­föld­unar má segja að tveir skólar séu til í þessu sam­hengi. Annar vill fara svo­kall­aða gjald­þrota­leið. Í henni felst að þrotabú föllnu bank­anna verði keyrð í þrot, dótt­ur­fé­lag Seðla­banka Íslands eða skipta­stjóri verði lát­inn taka yfir eignir þeirra og þær síðan seldar til nýrra eig­enda. Afrakstr­inum verði skipt á milli kröfu­hafa, sem að langstærstu leyti eru alþjóð­legir vog­unar- og fjár­fest­ing­ar­sjóðir.

Hinn skól­inn aðhyllist svo­kall­aða samn­inga­leið. Í henni felst að ná sam­komu­lagi við kröfu­hafa gömlu bank­anna um lausn sem ógni ekki greiðslu­jöfn­uði Íslands. Það þýðir að kröfu­haf­arnir þyrftu að gefa eftir góðan hluta af inn­lendum eignum sínum í slíku sam­komu­lagi eða binda þær hér­lendis til mjög langs tíma.

Þetta er aðeins hluti af umfjöllun Kjarnans um stærstu áskor­an­irnar sem Ísland stendur frammi fyrir. Sjá má umfjöll­un­ina í heild í Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár