Átök, hagsmunir og afhjúpanir

Á þeim tíma sem Kjarninn hefur verið starf­andi, frá 22. ágúst 2013, hefur verið að teikn­ast upp merki­leg staða í efna­hags­líf­inu. For­sæt­is­ráð­herr­ann Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son gaf tón­inn í fyrsta ítar­lega við­tal­inu sem hann veitti eftir að rík­is­stjórn hans tók við á vor­mán­uðum. „Stundin nálg­ast“ var for­síðu­fyr­ir­sögnin. Hún var skírskotun í þá mik­il­vægu stund sem teng­ist afnámi eða rýmkun fjár­magns­hafta, samn­ingum við kröfu­hafa föllnu bank­anna og stefnu­mörkun um hvernig stýra skuli þjóð­ar­skút­inni í kjöl­farið. Þetta fyrsta starfsár Kjarnans í þjóð­mála­um­ræð­unni ein­kennd­ist ekki síst af þessum tóni sem for­sæt­is­ráð­herra gaf í við­tal­inu.

Þó að ekki hafi enn verið stigin stór skref í átt að afnámi eða rýmkun hafta nálg­ast sú stund óðum. Rík­is­stjórnin, með Bjarna Bene­dikts­son og Sigmund Davíð Gunn­laugs­son fremsta í flokki, hefur nú þegar fengið erlenda sér­fræð­inga til þess að hjálpa til við að höggva á hnúta og liðka fyrir mögu­leikum á því að losa Ísland úr hafta­bú­skapnum. Á meðal þeirra sem aðstoða íslensk stjórn­völd er Lee Buchheit, maður sem aðstoð­aði við að ná samn­ingum við Hol­lend­inga og Breta vegna Icesave-skuldar Lands­bank­ans. Eins og kunn­ugt er vann Ísland fulln­að­ar­sigur í því máli að lokum með dómi fyrir EFTA-dóm­stólnum eftir að samn­ingum var hafnað í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_08_21/30[/embed]

Breyttir tímar


Kjarninn fjall­aði tölu­vert um neyt­enda­mál ýmiss konar á fyrsta starfs­ári sínu, ekki síst stöðu mála á fast­eigna­mark­aði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mikil spenna hefur verið að byggj­ast upp á mark­aðnum allt und­an­farið ár og hafa hálf­gerð neyð­aróp heyrst í fjöl­miðlum frá fólki sem á erfitt með að koma þaki yfir höf­uðið með leigu eða kaupum. Neyð­ar­ópin heyrð­ust ekki síst frá við­mæl­endum Kjarnans, sem kvört­uðu yfir ónægu fram­boði af litlum og með­al­stórum íbúðum, erf­iðum fjár­mögn­un­ar­skil­yrðum og úrræða­leysi stjórn­valda og sveit­ar­stjórna þegar að þessu kemur. Þúsundir Íslend­inga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu glíma við hús­næð­is­vanda og eiga í erf­ið­leikum með að koma þaki yfir höf­uðið.

Í fjórðu útgáfu Kjarnans, um miðjan sept­em­ber­mánuð, var þessi vandi til ítar­legrar umfjöll­unar undir fyr­ir­sögn á for­síð­unni; Ný bóla skrifuð í skýin. Kjarninn var mið­punktur þess­arar umræðu og velti upp ólíkum sjón­ar­miðum. Leigu­mark­að­ur­inn var ekki síst í kast­ljós­inu, en und­an­farið ár hefur leigu­verð í Reykja­vík á fer­metra hækkað um 9,3 pró­sent að raun­virði. Álit, leið­arar og almenn skoð­ana­skrif rit­stjórn­ar­innar voru helguð þessu við­fangs­efni og ekki síst hvernig skulda­leið­rétt­ing stjórn­valda tón­aði saman við þessar aðstæður; hvort það væri hugs­an­legt að skulda­leið­rétt­ing­ar­á­form stjórn­valda myndu ýta undir aukna einka­neyslu og stuðla að frek­ari hækkun fast­eigna­verðs með til­heyr­andi erf­ið­leikum fyrir þá sem væru að stíga fyrstu skrefin á fast­eigna­mark­aði.

Þetta er aðeins brot af umfjöllun um þetta mál­efni. Sjá má umfjöll­un­ina í heild í Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár