TF-Sif kölluð heim vegna hugsanlegs eldgoss

Flugvél Land­helg­is­gæsl­unnar TF-Sif hefur verið kölluð heim úr verk­efnum í Mið­jarð­ar­haf­inu vegna jarð­hrær­ing­anna í Bárð­ar­bungu og hugs­an­legra eldsum­brota þar. Vélin hefur sinnt landamæra­eft­ir­liti á vegum Frontex, landamæra­stofn­unar Evr­ópu­sam­bands­ins, und­an­farna mán­uði. Skammur tími var eftir af verk­efni áhafn­ar­innar og vél­ar­innar en þó var talið rétt að kalla vél­ina heim.

Land­helg­is­gæslan hefur fylgst með jökl­inum úr lofti und­an­farna daga og flogið með vís­inda­menn í þyrlum gæsl­unnar. Tækja­bún­aður þyrl­anna er hins vegar ekki eins full­kom­inn og bún­aður TF-Sifjar. Hægt er að fylgj­ast með umbrotum á jörðu niðri úr nokk­urri fjar­lægð í flug­vél gæsl­unnar og hentar hún því mjög vel til rann­sókna á eldsum­brotum.

TF-Sif leggur af stað til Íslands í kvöld og verður komin hingað til lands á morgun.

Viðvörunarstig hækkað


Almanna­varnir og Veð­ur­stofan hafa hækkað við­vör­un­ar­stig vegna flugs í lof­helgi Íslands um eitt stig, úr gulu í app­el­sínugult. App­el­sínugult stig er næst efsta stig við­vör­unar, næst kemur rautt sem þýðir að eld­gos sé að hefj­ast eða þegar hafið með til­heyr­andi ösku­skýi. App­el­sínugult stig merkir auknar líkur á að eld­gos hefj­ist.

 

Bárð­ar­bunga volcano: magnitude 4 earthquake, strongest since 1996, leads IMO to change aviation colour code to orange pic.twitter.com/9gPbaCDG6e

— Simon Cardy (@weather_king) August 18, 2014

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár