Ítarleg rannsókn á fjármálum Björgólfs Thors og Novator

Novator, fjár­fest­ing­ar­fé­lag sem kennt er við stærsta eig­anda þess, Björgólf Thor Björg­ólfs­son, á eignir sem metnar eru á 950 millj­ónir evra, um 150 millj­arða króna. Á móti eru skuldir en ljóst er að Björgólfur Thor hefur komið betur út úr skulda­upp­gjöri sínu, sem til­kynnt var í síð­ustu viku að væri lokið, en flestir aðrir risa­skuld­arar hins fallna íslenska banka­kerfis.

Í til­kynn­ing­unni sem Björgólfur Thor og Novator sendu frá sér vegna loka skulda­upp­gjörs­ins segir: „Um 100 manna her lög­fræð­inga, end­ur­skoð­enda og ann­arra sér­fræð­inga vann að skulda­sam­komu­lag­inu. Ég [Björgólfur Thor] lagði allar eignir mínar undir. Þá fengu lána­drottnar aðgang að öllum banka­reikn­ingum mínum og allra félaga minna nokkur ár aftur í tím­ann og gátu þannig gengið úr skugga umað engar eignir voru und­an­skildar. Sú rann­sókn­ar­vinna erlendra sér­fræð­inga (forensic accounting) stóð í tæpt eitt og hálft ár og lauk í apríl 201. Ég full­yrði að svo gagnsæ vinnu­brögð hafa ekki verið við­höfð í upp­gjörs­málum neinna ann­arra í íslensku banka­kerfi.“

Sá aðgangur sem Björgólfur Thor veitti var að svoköll­uðum sam­eign­ar­sjóðum sem hann átti og voru skráðir á aflandseyj­unni Jersey. Eignir sem voru geymdar í þessum sjóðum hlupu á millj­örðum króna og sú verð­mætasta var hlutur Björg­ólfs Thors í pólska síma­fyr­ir­tæk­inu Play. Í raun hefði Björgólfur Thor getað sleppt því að veita aðgengi að þessum eignum, haldið þeim fyrir sig og haldið sig við að þær yrðu ekki hluti af skulda­upp­gjör­inu. En þá hefði að minnsta kosti hluti kröfu­hafa hans ekki sam­þykkt skulda­upp­gjörið og áfram­hald­andi vera Novator í hlut­hafa­hópi Actavis verið í mik­illi hættu. Þar sem Actavis er lang­verð­mætasta eign Novators þótti það ekki skyn­sam­lega teflt. Því var opnað fyrir aðgang að sjóð­unum.

Rann­sókn­ar­vinna erlenda sér­fræð­inga fór fram að kröfu þrota­búa Lands­bank­ans. Enginn erlendur kröfu­hafi fór fram á slíka vinnu. Hún var fram­kvæmd af Alix Partners í London, sem er eitt stærsta fyr­ir­tæki á sviði fjár­hags­legrar rann­sókn­ar­vinnu í heim­inum í dag. Til að byrja með var samið um að Alix Partners mætti kanna pen­inga­færslur yfir ákveð­inni lág­marks­fjár­hæð. Það reynd­ist hins vegar vera mikil vinna að sigta út hvaða færslur mættu rann­saka og hverjar ekki og því var á end­anum ákveðið að leyfa Axis að fá óheftan aðgang að öllum reikn­ingum, per­sónu­legum banka­reikn­ingum og banka­reikn­ingum allra eign­ar­halds­fé­laga Novator-sam­stæð­unnar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Novator. Alls unnu 3-4 aðilar að rann­sókn­inni sem stóð yfir frá því í jan­úar 2011 og lauk á end­anum í apríl 2012. Allar þær eignir sem rann­sak­endur fundu voru undir í skulda­upp­gjör­inu.
Öll vinna við rann­sókn­ar­vinn­una var greidd af þrota­búi Lands­bank­ans, þar sem hann var sá kröfu­hafi sem krafð­ist þess að sú vinna færi fram. Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum um hvað sú rann­sókn hefði kostað, hver ávinn­ing­ur­inn af henni hefði verið og hvort sam­bæri­leg rann­sókn hefði verið fram­kvæmd á öðrum stórum skuld­urum bank­ans. Páll Bene­dikts­son, upp­lýs­inga­full­trúi slita­stjórnar Lands­bank­ans, kom því á fram­færi við Kjarnann að slita­stjórnin vildi ekki tjá sig um mál­efni ein­stakra aðila og því feng­ust ekki svör við fyr­ir­spurn­inni.

Þetta er aðeins hluti af umfjöll­un­inni um mál­efni Björg­ólfs Thors. Umfjöll­un­ina í fullri lengd má finna í Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár