Novator á 150 milljarða

Novator, fjár­fest­ing­ar­fé­lag sem kennt er við stærsta eig­anda þess, Björgólf Thor Björg­ólfs­son, á eignir sem metnar eru á 950 millj­ónir evra, um 150 millj­arða króna. Á móti eru skuldir en ljóst er að Björgólfur Thor hefur komið betur út úr skulda­upp­gjöri sínu, sem til­kynnt var í síð­ustu viku að væri lokið, en flestir aðrir risa­skuld­arar hins fallna íslenska banka­kerfis.
Björgólfur Thor sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í síð­ustu viku þar sem hann sagð­ist hafa lokið 1.200 millj­arða króna skulda­upp­gjöri sínu og Novators við kröfu­hafa sína. Heild­ar­upp­hæðin, umreiknuð í evrur á gengi dags­ins í dag, er um 7,7 millj­arðar evra. Af þeirri upp­hæð voru um 650 millj­ónir evra, um 101 millj­arður króna, vegna einka­skulda Björg­ólfs Thors sem hann var, að minnsta kosti að hluta, í per­sónu­legri ábyrgð fyrir. Restin var vegna skulda sem Novator hafði stofnað til vegna fjár­fest­inga sinna.

Stærsta skuldin vegna Actavis-yfir­töku


Þorri þess fjár sem var undir rann til alþjóð­legu bank­anna Deutsche Bank, Standard Bank, Barclays og Fortis. Um 100 millj­arðar króna fóru til fall­inna íslenskra fjár­mála­stofn­ana. Stærsti hluti fjár­ins rann til Deutsche Bank, sem lán­aði Novator alls 4,2 millj­arða evra þegar það tók yfir Actavis sum­arið 2007. Umreiknuð í íslenskar krónur á gengi dags­ins í dag er sú upp­hæð um 651 millj­arðar króna.

Bróð­ur­partur þeirrar upp­hæðar sem kröfu­hafar Novator eru að end­ur­heimta nú fékkst greiddur þegar sam­heita­lyfja­fyr­ir­tækið Watson keypti Actavis á 4,25 millj­ónir evra vorið 2012. Deutsche Bank hafði í raun tekið yfir stærstan hluta Novator í Actavis fyrir þann tíma og var að selja þann hluta. Novator hélt hins vegar eftir tæp­lega fimm milljón hlutum í sam­ein­uðu félagi, sem í dag er þriðja stærsta sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæki í heimi og skráð á hluta­bréfa­markað í New York.
Síðan þá hefur minni­hluta­eig­andi yfir­gefið eig­enda­hóp Novators og hluti af eign félags­ins í Actavis verið seldur til að standa straum af lög­manns­kostn­aði og til að gera upp við starfs­menn. Í dag á Novator því um 4,3 millj­ónir hluta í Actavis.
Sú eign var end­ur­fjár­mögnuð í jan­úar 2014 og var þá gert að mestu upp við alla kröfu­hafa sem áttu aðild að skulda­upp­gjör­inu. Ekki náð­ist að greiða ákveðnar skuldir við Lands­bank­ann og ALMC, eign­ar­halds­fé­lag sem stofnað var utan um eignir Straums fjár­fest­ing­ar­banka eftir að hann fór á hlið­ina. Þær skuldir voru gerðar upp í síð­ustu viku og þá var hægt að til­kynna um lok upp­gjörs­ins.

Hin helsta eign félags­ins er pólska fjar­skipta­fyr­ir­tækið Play, en Novator á 49,5 pró­sent í því eftir að hafa keypt um 25 pró­senta hlut af ALMC, sem áður hét Straumur, í febr­úar. Auk þess á Novator stóran hlut í tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­inu CCP (29,83 pró­sent) og allt hlutafé í fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Nova auk þess að vera einn þriggja stærstu hlut­hafa í Verne Holdings, sem rekur gagna­ver á Íslandi.

Þetta er aðeins hluti af umfjöll­un­inni um upp­gjör Björg­ólfs Thors. Lesa má alla umfjöll­un­ina í Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár