Í versta falli verð ég rekinn

Óhætt er að full­yrða að Dagur Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi hand­bolta­kappi með Val og fyr­ir­liði íslenska karla­lands­liðs­ins í hand­bolta, sé einn allra eft­ir­sótt­asti hand­bolta­þjálf­ari heims í dag. Frábær árangur hans sem leik­andi þjálf­ari með aust­ur­ríska lið­inu Bregenz, sem lands­liðs­þjálf­ari Aust­ur­ríkis og þjálf­ari þýska úrvals­deild­ar­liðs­ins Füsche Berlin hefur ekki farið fram­hjá neinum.
Afrek Dags á hlið­ar­lín­unni urðu til að mynda til þess að ein stærsta hand­bolta­vef­síða í heimi útnefndi hann besta hand­bolta­þjálf­ara heims árið 2011, fyrir að koma lands­liði Aust­ur­ríkis í fyrsta skipti á stór­mót, þar sem liðið hafn­aði í níunda sæti, og sömu­leiðis fyrir undra­verðan árangur með Füsche Berlin.
Svo góður rómur var gerður að Degi sem þjálf­ara að danska hand­bolta­sam­bandið fal­að­ist eftir starfs­kröftum hans á síð­asta ári og bauð honum að ger­ast næsti lands­liðs­þjálf­ari karla­liðs Dana í hand­bolta, sem hann hafn­aði. Danska hand­bolta­sam­bandið sneri sér þá til Guð­mundar Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi þjálf­ara karla­lands­liðs Íslands í hand­bolta, sem þekkt­ist boðið og gegnir stöð­unni í dag.

Lætur gagnrýni á ráðninguna sem vind um eyru þjóta


Dagur var á dög­unum kynntur til leiks sem þjálf­ari karla­lands­liðs Þjóð­verja í hand­bolta. Ráðning hans hefur verið gagn­rýnd í Þýska­landi, ekki vegna þess að hæfi­leikar Dags séu umdeildir, því fer fjarri, heldur svíður mörgum þýskum hand­bolta­kver­úlöntum að útlend­ingur hafi verið ráð­inn til að stýra stærsta hand­boltalands­liðið heims, í sjálfu Mekka hand­bolt­ans; Þýska­landi.
Til marks um and­stöð­una sem ráðn­ing Dags hefur mætt í Þýska­landi hefur sjálfur Heiner Brandt, þýska hand­bolta­goð­sögnin sem stýrði lands­liði Þýska­lands til sig­urs á EM árið 2004 og HM árið 2007, lýst því yfir að honum hugn­ist ekki að útlend­ingur stýri lands­liði Þýska­lands.

Dagur segir and­stöð­una í Þýska­landi við ráðn­ingu hans ekki hafa komið sér á óvart. „Hún gerir í sjálfu sér ekki neitt annað en að gera mann ein­beitt­ari í að ná árangri. Ef hann næst ekki fer bara eins fyrir mér og öllum öðrum. Mér finnst ekk­ert skrítið að svona umræða komi upp hjá svo stórri hand­bolta­þjóð, og ég held að sam­bæri­leg umræða færi líka af stað á Íslandi. Þeir eru ekk­ert á móti útlend­ingum, heldur eru þeir bara að segja sína skoðun á því að þeir hefðu viljað leita þjálf­ara innan sinna raða, og það er bara allt í lagi að þeir hafi þá skoðun.“

Þetta er stutt útgáfa umfjöll­un­ar­innar. Umfjöll­un­ina í fullri lengd má nálg­ast í Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár