Lækningarmáttur aðalbláberja

Aðal­blá­ber hafa verið notuð til lækn­inga í a.m.k. þús­und ár, en heim­ildir eru um notkun þeirra til lækn­inga í Þýska­landi allt frá 12. öld. Í seinni heims­styrj­öld­inni í Bret­landi var fyrst farið að rann­saka aðal­blá­ber þegar flug­mönnum í breska flug­hernum var gefin aðal­blá­berja­sulta því hún þótti bæta sjón þeirra, sér­stak­lega í næt­ur­flugi. Allar götur síðan hafa áhrif aðal­blá­berja á sjón og augn­sjúk­dóma verið rann­sökuð. Þurrkuð aðal­blá­ber, oft sem staðlað þykkni í hylkjum, hafa notið mik­illa vin­sælda sem fæðu­bót­ar­efni í Norður-Ameríku og Evrópu und­an­farna ára­tugi. Bláber (Vaccinium ulig­in­osum) hafa mun minna verið notuð til lækn­inga og að sama skapi verið lítið rann­sökuð í sam­an­burði við aðal­blá­ber. Það þýðir hins vegar ekki að blá­ber séu ekki áhrifa­rík til lækn­inga líkt og aðal­blá­ber.

Aðal­blá­ber inni­halda mikið af andox­un­ar­efnum, sem eru talin styrkja ónæm­is­kerfið, minnka hætt­una á hjarta- og æða­sjúk­dómum og draga úr hrukku­myndun. Þau eru einnig talin styrkja sjón­ina og eru afar auðug af vítamínum. Aðal­blá­ber hafa hefð­bundið verið notuð fyrir eft­ir­far­andi kvilla:

> þurrkuð eða soðin ber við nið­ur­gangi, fersk ber sem hægða­los­andi
> augn­sjúk­dómar tengdir sjón­himnu, háum blóð­þrýst­ingi og syk­ur­sýki
> gláka, vagl, nátt­blinda
> æða­hnútar, æða­kölkun, kulda­ó­þol, gyllinæð
> háls­bólga, tann­holds­bólga, maga­bólga, ristil­bólga
> bjúgur, blöðru­bólga, hár blóð­sykur, tíða­verkir
> útvortis til að græða sár og í skol við sær­indum og útferð úr leggöngum

Morgungrautur grasalæknisins

Fyrir 1

Ég bjó þessa upp­skrift á sínum tíma til fyrir sjúk­linga í ráð­gjöf hjá mér vegna glút­en­óþols, en kínóa er glút­en­laust og afar prótein­ríkt. Það leið þó ekki á löngu þar til ég var farin að elda hann sjálf á hverjum degi enda frá­bær leið til að nýta berin í fryst­inum. Fyrir mér er mik­il­vægt að hafa sem minnst fyrir morg­un­matnum á virkum dögum og þessi grautur er bæði fljóteld­aður og inni­heldur fá hrá­efni. Ég set enga mjólk út á graut­inn en á þó til að hafa rjóma með honum á sunnu­dögum, enda breyt­ist hann við það í ljúf­fengan eft­ir­rétt.

> 3 msk. kínóaflögur
> ¼-½ tsk. kanill
> 2 dl vatn
> 1 dl íslensk aðal­blá­ber eða blá­ber
> 1 tsk. smjör
> ½-1 tsk. líf­rænt hun­ang
> sjáv­ar­salt

  1. Setjið vatn, kanil, salt og kínóaflögur í pott og sjóðið í nokkrar mín­útur án loks, þar til graut­ur­inn er orð­inn þykkur. Athugið að í þennan graut eru not­aðar kínóaflögur en ekki heil kínóa­grjón, sem tekur mun lengri tíma að sjóða. Bætið síðan frosnum eða ferskum berjum út í og hitið í örstutta stund, eða þar til graut­ur­inn er orð­inn fal­lega fjólu­blár á lit­inn. Setjið hann þá í skál og hrærið smjör­klípu og hun­angi saman við.

    Rannsóknir á aðalbláberjum


    Í mörgum af eft­ir­far­andi rann­sóknum er notað aðal­blá­berja­þykkni í hylkjum þar sem búið er að staðla virka efnið antó­sýanó­síð. All­margar klínískar rann­sóknir á mönnum hafa verið gerðar á virkni aðal­blá­berja í augn­sjúk­dómum, þær elstu frá 7. ára­tug 20. aldar. Nýrri tví­blindar rann­sóknir með lyf­leysu eru betur úr garði gerðar en þær eldri, en þær stað­festa í flestum til­fellum eldri rann­sóknir. Þessar klínísku rann­sóknir gefa til kynna jákvæð áhrif aðal­blá­berja á sjón­himnu­sjúk­dóma, augn­sjúk­dóma tengda háum blóð­þrýst­ingi sem og syk­ur­sýki, nátt­blindu, gláku, nær­sýni og vagl á auga. Nýlegar rann­sóknir hafa þó að ein­hverju leyti hrakið nið­ur­stöður eldri rann­sókna á nátt­blindu. Að auki hafa verið gerðar nokkrar rann­sóknir í til­raunaglösum og á dýrum, og sýna þær einnig fram á jákvæða virkni aðal­blá­berja í með­ferð augn­sjúk­dóma. Nokkrar klínískar rann­sóknir hafa verið gerðar á virkni aðal­blá­berja í tengslum við æða­sjúk­dóma. Þær hafa m.a. sýnt jákvæðar nið­ur­stöður gagn­vart æða­sjúk­dómum, t.d. kulda­ó­þoli, æða­hnútum, gyllinæð og æða­bólgum. Einnig þóttu aðal­blá­berin minnka bjúg, verki, krampa og kláða af völdum van­virkni í æða­kerf­inu. Tvær klínískar rann­sóknir telja að aðal­blá­ber minnki blæð­ingar, bæði milli­tíða­blæð­ingar vegna lykkj­unnar og blæð­ingar í tengslum við upp­skurði. All­nokkrar rann­sóknir hafa verið gerðar í til­raunaglösum og á dýrum þar sem líkur þykja benda til að aðal­blá­ber styrki hjarta og æða­kerfi og verndi gegn æða­kölkun.

    Skammtar


    Fersk ber: 1-2 dl á dag. Stöðluð hylki (25% antó­sý­anó­síð): 200 til 600 mg á dag. Þurrkuð ber eða lauf: 1-2 tsk. í bolla þrisvar á dag.

    Varúð


    Stórir skammtar af stöðl­uðu aðal­blá­berja­þykkni í hylkjum til langs tíma geta haft áhrif á blóð­þynn­ing­ar­lyf. Syk­ur­sjúkir sem taka insúlín ættu ekki að inn­byrða aðal­blá­berja­lauf nema undir eft­ir­liti fag­fólks. Ekki er æski­legt að nota aðal­blá­berja­lauf lengur en þrjár vikur sam­fellt.

Heim­ildir

WHO. 2009. WHO monographs on selected medicinal plants. Vol. 4. World Health Organization, Geneva.

Per­oss­ini M, Guidi G o.fl. Diabetic and hyper­tensive retin­opathy ther­apy with Vaccinium myrtillus anthocyanosides (Tegens TM). Double-blind placebo-controlled trial. Ann Opht­halmol Clin Ocul 1987; 113:1173-90.

Repossi P, Malagola R o.fl. The role of anthocyanosides on vascular permea­bility in diabetic retin­opathy. Ann Opht­halmol Clin Ocul 1987; 113(4):357-361.

Vannini L, Samuelly R o.fl. Study of the pupill­ary ref­lex after anthocyanoside administration. Boll Ocul 1986; 65:11-2.

Orsucci P, Rossi M, Sabbat­ini G o.fl. Treat­ment of diabetic retin­opathy with anthocyanosides: a prelimin­ary report. Clin Ocul 1983; 4:377.

Scharrer A, Ober M. Anthocyanosides in treat­ment of retin­opathies. (In German). Klin Monatsbl Augen­heilkd 1981; 42:221-31.

Canter PH, Ernst E. Anthocyanosides of Vaccinium myrtillus (bil­berry) for night vision – a systematic review of placebo-controlled tri­als. Surv. Opht­halmol. 2004 Jan-Feb; 49(1):38-50.

Muth ER, Laurent JM o.fl. The effect of bil­berry nutritional supplementation on night visual acuity and contrast sensiti­vity. Altern Med Rev 2000; 5(2):164-73

Yao N, Lan Fo.fl.Protective effects of bil­berry ( Vaccinium myrtillus L.) extract aga­inst endotoxin-induced uveitis in mice. J Agric Food Chem. 2010 Apr 28; 58(8):4731-6.

Song J, Li Yo.fl. Protective effect of bil­berry (Vaccinium myrtillus L.) extracts on cultured human corneal limbal epit­helial cells (HCLEC). Phy­tother Res. 2010 Apr; 24(4):520-4.

Matsunaga N, Imai So.fl. Bilberry and its main constituents have neuroprotective effects aga­inst ret­inal neuronal damage in vitro and in vivo. Mol Nutr Food Res. 2009 Jul; 53(7):869-77.

Matsunaga N, Chikaraishi Y o.fl. Vaccinium myrtillus (Bilberry) Extracts Reduce Ang­iogenesis In Vitro and In Vivo. Evid Based Complement Alternat Med. 2007 Oct 27.

Milbury PE, Graf Bo.fl. Bilberry (Vaccinium myrtillus) anthocyanins modulate heme oxy­genase-1 and glut­athione S-trans­fer­ase-pi expression in ARPE-19 cells. Invest Opht­halmol Vis Sci. 2007 May; 48(5):2343-9.

Chung HK, Choi SM o.fl. Efficacy of trox­erutin on streptozotocin-induced rat model in the early stage of diabetic retin­opathy. Arzneimittelforschung 2005; 55(10):573-80.

Fursova AZh, Gesarevich OGo.fl. [Dietary supplementation with bil­berry extract prevents macular degeneration and cataracts in senesce-accelerated OXYS rats] Adv. Gerontol. 2005; 16:76-9.

Gatta L o.fl. Vaccinium myrtillus anthocyanosides in the treat­ment of venous stasis: controlled clinical study on sixty pati­ents. Fitot­er­apia 1988; 59:19-26.

Teglio L, Mazzanti C o.fl. Vaccinium myrtillus anthocyanosides (Tegens™) in the treat­ment of venous insufficiency of lower limbs and acute piles in pregnancy. Quad Clin Ostet Ginecol 1987; 42:221-31.

Allegra C, Pollari G o.fl. Antocianosidi e sistema microvasculotessutale. Minerva Angiol. 1982; 7:39-44.

Gris­mondi G. Treat­ment of phle­bopathies caused by statis in pregnancy (á ítölsku). Minerva Ginecol. 1980; 32:221-30.

Ghir­ing­helli C, Gregoratti L o.fl. Capillarotropic action of anthocyanoseds in high dosage in phlebopathic stasis (á ítölsku). Minerva Cardioangiol. 1978; 26(4):255-76.

Mian E, Curri S o.fl. Anthocyanosides and the walls of the microvessels: further aspects of the mechanism of action of their protective effect in syndromes due to abnormal capillary fra­gility (á ítölsku). Minerva MEd 1977; 68:3565-81.

Blu­ment­hal, Mark. 2003. The ABC Clinical Guide to Herbs. American Botanical Council, Austin.

Gentile A. The use of anthocyanidins in bil­berry (Tegens™ – Inverni della Beffa) to prevent hemorr­hag­ing (á ítölsku). 1987. Óbirt; til­vitn­anir í grein, sjá Morazzoni P, Bombar­delli E. Vaccinium myrtillus L. Fitot­er­apia 1996; 67(1):3-29.

Choi EH, Park JH o.fl. Alleviation of doxorubicin-induced toxicities by anthocyanin-rich bil­berry (Vaccinium myrtillus L.) extract in rats and mice. Biofactors. 2010 Jul 7.

Mauray A, Milenkovic D o.fl. Atheroprotective effects of bil­berry extracts in apo E-deficient mice. J Agric Food Chem. 2009 Dec 9; 57(23):11106-11.

Persson IA, Persson K o.fl. Effect of Vaccinium myrtillus and its polyp­hen­ols on ang­iot­ensin-converting enzyme activity in human endot­helial cells. J Agric Food Chem. 2009 Jun 10; 57(11):4626-9.

Bell DR, Gochenaur K. Direct vasoactive and vasoprotective properties of anthocyanin-rich extracts. J. Appl. Physiol. 2006 Apr; 100(4):1164-70. Vefútg. 2005 Dec 8.

Bertuglia S, Malandrino S o.fl. Effect of Vaccinium myrtillus anthocyanosides on ischaemia reperfusion inj­ury in ham­ster cheek pouch microcirculation. Pharmacol Res. 1995 Mar-Apr; 31(3-4):183-7.

Detre Z, Jellinek H o.fl. Studies on vascular permea­bility in hyper­tension: action of anthocyanosides. Clin Physiol Biochem. 1986; 4(2):143-9.

Lietti A, Cristoni A o.fl. Studies on Vaccinium myrtillus anthocyanosides. I. Vasoprotective and anti­in­flammatory activity. Arzneimittelforschung. 1976; 26(5):829-32.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár