Seðlabankinn ekki bundinn af fresti slitastjórnar

Seðla­banki Íslands telur sig ekki bund­inn af þeim frestum sem slita­stjórn Lands­bank­ans hefur sett honum til að sam­þykkja eða hafna sam­komu­lagi um leng­ingu á greiðslum skulda­bréfs milli Lands­bank­ans og slita­stjórnar gamla Lands­bank­ans. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þarf líka að sam­þykkja sam­komu­lagið til að það verði að veru­leika. Hann hefur ekki svarað fyr­ir­spurnum Kjarnans um málið.

Upp­haf­lega var lagt upp með að nið­ur­staða lægi fyrir í síð­asta lagi 8. ágúst, sem var síð­ast­lið­inn föstu­dag. Kjarninn greindi hins vegar frá því í gær að slita­stjórn Lands­bank­ans hefði lengt þann frest til 30. sept­em­ber. Í svari Seðla­bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið kemur fram að Seðla­bank­inn hafi gert slita­stjórn Lands­bank­ans grein fyrir því í bréfi dag­settu 14. júlí 2014 að „ekki yrði hægt að svara fyrir þennan tíma [8. ágúst] en stefnt yrði að því að veita svar fyrir ára­mót þegar vinna við stefnu­mótun varð­andi upp­gjör búa föllnu bank­anna og losun hafta væri lengra komin“.

Seðla­bank­inn stað­festi að slita­stjórn Lands­bank­ans hefði sent bank­anum bréf þar sem hún setur nýjan frest til loka sept­em­ber. Í svari bank­ans segir að bank­inn muni taka það bréf til skoð­unar.

Þann 5. maí var til­kynnt að sam­komu­lag hefði náðst milli Lands­bank­ans og slita­stjórnar gamla Lands­bank­ans um breyt­ingu á upp­gjörs­skulda­bréfum með eft­ir­stöðvar að jafn­virði 226 millj­örðum króna í erlendum gjald­eyri. Upp­haf­lega átti að greiða skulda­bréfin upp fram til árs­ins 2018. Löngu var orðið ljóst að það myndi setja þungar byrðar á íslenskt sam­fé­lag þar sem greiðslur í erlendum gjald­eyri næstu árin vegna bréf­anna væru mun meiri en gjald­eyr­is­tekjur hag­kerf­is­ins myndu ráða við, sér­stak­lega þegar tekið er til­lit til allra ann­arra greiðslna sem íslenska ríkið, sveita­fé­lög og fyr­ir­tæki þurfa að greiða í erlendum myntum á tíma­bil­inu.

Í sam­komu­lag­inu fólst að greiðslu­tími bréf­anna yrðu lengdur fram til októ­ber 2026. Sam­komu­lagið var að margra mati, sér­stak­lega samn­ings­að­il­anna, und­an­fari að því að létt yrði á fjár­magns­höftum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár