Neyðarfundir haldnir vegna ójöfnuðar sem ógnar rýmkun hafta

Samhliða auk­inni skuld­setn­ingu heim­ila er ríkis­búskap­ur­inn að glíma við skyndi­legan, og stór­hættu­legan, nei­kvæðan vöru­skipta­jöfnuð. Hann er að mestum hluta til drif­inn áfram af mik­illi lækkun útflutn­ings­tekna en líka af auk­inni einka­neyslu. Það sem af er árinu 2014 er vöru­skipta­jöfn­uður Íslands nei­kvæður um tíu millj­arða króna. Það þýðir að virði þess sem við fram­leiðum og flytjum út er tíu millj­örðum króna minna en það sem við flytjum inn og kaupum. Á sama tíma­bili í fyrra var vöru­skipta­jöfn­uður jákvæður um 25 millj­arða króna. Við­snún­ing­ur­inn er því heilir 35 millj­arðar króna.

Þessi halli er mjög alvar­legur fyrir þjóð­ar­búið og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans telja margir hátt­settir aðilar innan Seðla­bank­ans og stjórn­kerf­is­ins að neyð­ar­á­stand ríki í þjóð­ar­bú­inu. Stjórn­völd til­kynntu nýverið skipan fram­kvæmda­stjórnar um afnám hafta og hafa látið í það skína að vinna við rýmkun þeirra gæti haf­ist fljót­lega. Það ójafn­vægi sem er í vöru­skiptum þjóð­ar­innar ógnar mjög þeim áformum.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_08_07/16[/embed]

Heim­ildir Kjarnans herma að mikil fund­ar­höld hafi átt sér stað, meðal ann­ars með aðkomu erlendra sér­fræð­inga, vegna þessa ástands und­an­farin miss­eri. Meðal þess sem ráð­gjaf­arnir erlendu hafa verið að ræða við stjórn­völd er að ákveðin þjóð­hags­leg skil­yrði verði að vera til staðar til að hægt sé að rýmka höft. Eitt það mik­il­væg­asta er að þjóð­ar­búið fái fleiri krónur fyrir fram­leiðslu sína en það borgar fyrir vör­urnar og þjón­ust­una sem það flytur inn.

Þetta er stutt útgáfa umfjöll­un­ar­innar. Sjá má hana í heild sinni í Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár