Vöruskiptajöfnuður er að skapa neyðarástand á Íslandi

Í aðdrag­anda falls íslenska banka­kerf­is­ins haustið 2008 lifði íslenska þjóðin mjög hátt og gerði það án þess að eiga fyrir því. Í lok árs 2007 voru til að mynda fast­eigna­skuldir íslenskra heim­ila um 108 pró­sent af lands­fram­leiðslu og átti þá eftir að taka til­lit til ann­arra neyslu­skulda, eins og bíla- og yfir­drátt­ar­lána.

Eftir hrunið hækk­uðu þessar skuldir mjög hratt og í mars 2009 námu þær 135 pró­sentum af þjóð­ar­fram­leiðslu. Ástæður þessa voru fyrst og síð­ast tvær: Önnur var að stór hópur íslenskra heim­ila ákvað fyrir hrun að taka há fast­eigna- og bíla­lán í öðrum gjald­miðlum, þrátt fyrir að vera með tekjur í íslenskum krónum, vegna þess að vextir þeirra voru mun lægri. Þau lán hækk­uðu stór­kost­lega í kjöl­far þess að íslenska krónan hrundi ásamt bönk­unum. Hin er sú að þorri skulda íslenskra heim­ila var verð­tryggðar skuldir og þegar verð­bólgan fór með him­in­skaut­unum á árunum 2008 og 2009 hækk­uðu skuldir þeirra gríð­ar­lega.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_08_07/1[/embed]

Geng­is­fall krón­unnar og sú háa verð­bólga sem fylgdi hrun­inu eru þau atriði sem margir kalla for­sendu­brest í íslenska hag­kerf­inu og þrýsti­hópar hafa kallað eftir að verði leið­réttur. Á und­an­förnum árum hefur verið unnið ötul­lega að þeirri leið­rétt­ingu. Geng­is­tryggðu lánin reynd­ust flest vera ólög­mæt, ráð­ist var í sér­tækar skulda­að­lag­anir og svo hina frægu 110 pró­senta leið. Þessar aðgerðir gerðu það að verkum að höf­uð­stóll skulda heim­il­anna í land­inu hafði verið færður niður um 244 millj­arða króna í lok árs 2013. Þessar aðgerðir leiddu til þess að skuldir heim­il­anna voru komnar niður í rúm­lega 105 pró­sent af lands­fram­leiðslu.

Þetta er nán­ast eins­dæmi um þróun á skuld­setn­ingu heim­ila í heim­inum síðan fjár­málakreppan skall á. Einungis Írland og Banda­ríkin hafa upp­lifað sam­bæri­lega þróun. Íslensk heim­ili voru að koma sér út úr hinu gegnd­ar­lausa skulda­ves­eni fyr­ir­hrunsár­anna.

Þetta er stutt útgáfa umfjöll­un­ar­innar. Ítar­legri útgáfu má lesa í nýj­ustu útgáfu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár