20 milljarða viðskipti í húfi

Bann við inn­flutn­ingi á mat­vælum til Rúss­lands frá Vest­ur­löndum, sem stjórn Vladímir Pútíns, for­seta Rúss­lands, hefur sam­þykkt og komið í fram­kvæmd, getur haft víð­tæk áhrif hér á landi. Útflutn­ingur til Rúss­lands frá Íslandi hefur verið mjög vax­andi frá árinu 2008, en þá nam heild­ar­verð­mæti útflutn­ings þangað 6,2 millj­örðum króna sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Hagstofu Íslands. Árið 2013 var þessi tala komin upp í 20,4 millj­arða króna, og mun­aði þar mest um mak­ríl­inn. Rússland er stærsta ein­staka við­skipta­land Íslands þegar kemur að mak­ríl, en árið 2013 fór um 47 pró­sent af mak­ríl frá Íslandi til Rúss­lands, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem fram komu á vef­síð­unni kvot­inn.is, fyrr á árinu.

Enn er óljóst hvort aðgerðir Rússa muni hafa bein áhrif á íslensk fyr­ir­tæki, en Ísland ku ekki vera á lista yfir þau lönd sem bannið nær til. Í ljósi umfangs aðgerð­anna gæti það haft óbein áhrif á íslensk fyr­ir­tæki.

Sjá má upp­lýs­ingar um útflutn­ing til Rúss­lands inn á vef Hagstofu Íslands, hér.

Frekar umfjöllun erlendra fjöl­miðla um aðgerðir Rússa má sjá á með­fylgj­andi tenglum en hafa ber í huga að áhrifin af þess­ari aðgerð eru ekki komin fram nema að litlu leyti og erfitt að segja til um hver þau muni verða þegar fram í sækir. Viðbrögð á mörk­uðum hafa þó verið nei­kvæð, ekki síst hjá litlum ríkjum sem eiga í miklum við­skiptum við Rússland, eins og t.d. í Noregi en hluta­bréfa­verð í sjáv­ar­út­vegs- og mat­væla­tengdum fyr­ir­tækjum lækk­aði skarp­lega eftir að til­kynnt var um aðgerð­irnar.

Umfjöllun The Moscow Times.

Umfjöllun The New York Times.

Umfjöllun Quartz þar sem spurt er; hvernig munu Rússar fæða sig sjálfir?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár