Uppgjör Björgólfs tryggir honum ævintýralegan auð

Í gær var til­kynnt að skulda­upp­gjöri Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar væri lokið og að hann hefði greitt kröfu­höfum sínum, að mestu stórum alþjóð­legum bönkum, sam­tals um 1.200 millj­arða króna. Magnús Hall­dórs­son blaða­maður og Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, fjöll­uðu ítar­lega um skulda­upp­gjör Björg­ólfs Thors í bók sinni Ísland ehf.-Auðmenn og áhrif eftir hrun, sem kom út í ágúst 2013. Kaflinn um skulda­upp­gjörið er birtur í heild sinni hér að neðan með nýjum milli­fyr­ir­sögnum og örlitlum upp­færslum á nið­ur­lagi hans.

Björgólfur Thor endurskipulagður


Árið 2007 var Björgólfur Thor Björg­ólfs­son í 249. sæti yfir rík­ustu menn ver­aldar á lista tíma­rits­ins Forbes. Ári síðar, eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, stóð hann frammi fyrir tveimur kostum. Annað hvort að verða per­sónu­lega gjald­þrota og láta það verk­efni í hendur kröfu­hafa sinna að vinna sem mest verð­mæti úr eignum hans. Eða að vinna með þeim, leggja allar eignir sínar á borðið, bæði per­sónu­legar eignir og eignir félaga í hans eigu, og reyna að ná sam­komu­lagi sem kæmi í veg fyrir hans per­sónu­lega gjald­þrot. Eftir hrunið lá fyrir að Björgólfur Thor var í per­sónu­legum ábyrgðum vegna skulda sem námu minnst 40 millj­örðum króna.

Skömmu eftir hrun hófust við­ræður milli Björg­ólfs Thors og trún­að­ar­manna hans, og síðar full­trúa lán­ar­drottna sem áttu kröfu á Björgólf Thor og félög hans. Þar undir voru slita­stjórnir föllnu bank­anna, end­ur­reistu bank­arnir þrír og síðan erlendir bankar. Þýski bank­inn Deutsche Bank átti mestra hags­muna að gæta í upp­hæðum talið. Munaði þar mest um lán sem Novator, félag Björg­ólfs Thors, tók hjá bank­anum þegar það tók yfir næstum allt hlutafé lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Actavis fyrir um 5,3 millj­arða evra. Á þeim tíma var evran skráð á 85,6 krónur og heild­ar­virði yfir­tökutil­boðs­ins, sem langstærstur hluti hlut­hafa gekk að, var því ríf­lega 450 millj­arðar króna. Af kaup­verð­inu var stærstur hluti þess tek­inn að láni eða um 4,1 millj­arður evra.

Vanda­málin sem sneru að félögum sem Björgólfur átti og tengd­ist voru risa­vaxin eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins og krón­unnar. Skuld­irnar sem tengd­ust Björgólfi Thor og félögum hans námu sam­tals yfir 1.200 millj­örðum króna. Á móti þeim voru síðan umtals­verðar eignir. Verð­mætasta eignin var Actavis og í hana fór mesta púðrið í samn­inga­við­ræðum við kröfu­hafa.

Vildu gera Björgólf Thor gjaldþrota


Björgólfur Guð­munds­son, faðir Björg­ólfs Thors, lýsti sig form­lega gjald­þrota 31. júlí 2009 en vinna við úrlausn á málum Björg­ólfs Thors var þá komin vel á veg. Gjald­þrot Björg­ólfs eldri var eitt stærsta per­sónu­lega gjald­þrot í Evrópu á þeim tíma sem það átti sér stað, en hann var í ábyrgð fyrir um 96 millj­arða skuldum sem hann gat ekki staðið skil á eftir fjár­mála­hrunið. Stærstu eignir hans voru bundnar í Lands­bank­anum og fjá­fest­inga­bank­anum Straumi og nam mark­aðsvirði þeirra í byrjun árs 2008 um 143 millj­örðum króna, sam­kvæmt bréfi hans til hér­aðs­dóms er hann lýsti sig gjald­þrota. Hrein eign hans á þeim tíma nam um 100 millj­örðum. Gjald­þrotið mark­aði enda­lokin á við­skipta­sam­bandi þeirra feðga, enda Björgólfur eldri ekki í stöðu til að stunda við­skipti.

Áður en form­lega hafði náðst sátt um að fara þá leið að hámarka virði eigna í sam­starfi við Björgólf Thor og sam­starfs­menn hans gekk ýmis­legt á bak við tjöldin. Innan Arion banka voru þau sjón­ar­mið uppi að ganga að ábyrgðum á lánum og gera Björgólf Thor þannig per­sónu­lega gjald­þrota. Var þar um að ræða lán sem tekið var í des­em­ber árið 2005 í tengslum við fjár­fest­ingar fast­eigna­fé­lags­ins Samson Properties. Upphæðin nam við lán­töku tæp­lega fjórum millj­örðum króna og voru trygg­ingar teknar í hluta­bréfum í Lands­bank­anum sem voru í eigu Samson og síðan var einnig sjálf­skulda­á­byrgð eig­enda Samson, s.s. Björg­ólfs­feðga, fyrir hendi. Arion banki vildi ganga á Björgólf Thor og krefja hann um greiðslu vegna þess­arar skuldar og ef Björgólfur Thor myndi ekki greiða voru for­svars­menn Arion banka til­búnir að ganga alla leið í þeim efnum og gera hann gjald­þrota. Björgólfur Thor og nán­ustu ráð­gjafar hans og með­fjár­festar, fremstir í flokki þeir Andri Sveins­son og Birgir Már Ragn­ars­son, voru ósáttir við þetta. Þeir sögðu það ekki vera til þess fallið að hámarka end­ur­heimtur að setja Björgólf Thor í per­sónu­legt þrot vegna ein­stakra lána heldur væru mestar líkur á hámarks­end­ur­heimtum með því að semja um heild­ar­upp­gjör við alla kröfu­hafa. Þannig væri einnig tryggt að kröfu­höfum væri ekki mis­munað.

Leitað leiða til að sameina Actavis


Ekki var strax tekið vel í þessar hug­myndir á öllum víg­stöðum. Helst voru þrotabú föllnu bank­anna og end­ur­reistu bank­arnir mót­fallnir þessum hug­myndum. Um tíma var heldur ekki ljóst að stærsti kröfu­haf­inn af öllum, Deutsche Bank, myndi sætta sig við annað en að taka yfir Actavis, þá eign þar sem hann átti mest undir, og reyna að vinna verð­mæti úr henni sjálfur án aðkomu Björg­ólfs Thors og Novator.

Þegar í óefni var komið haustið 2008 höfðu verið und­ir­rit­aðir samn­ingar um end­ur­skipu­lagn­ingu Actavis og félagið í kjöl­farið sett í form­legt sölu­ferli sem fjár­fest­inga­bank­inn Merril Lynch, sem seinna var rennt inn í Bank Of America, hafði á sinni hendi. Tvö til­boð komu í félagið í þessu ferli en þau voru bæði svo lág að ekki var talið skyn­sam­legt að halda áfram með ferlið. Auk þess voru aðstæður erf­iðar á þessum tíma, bæði hvað varð­aði fjár­magn og einnig veltu almennt í hag­kerfum. Neysla var að drag­ast saman og þreng­ingar að koma fram á meiri hraða en sést höfðu á mörk­uðum í ára­tugi. Þetta kall­aði á end­ur­mat á stöðu Actavis og hver ættu að verða næstu skref með Deutsche Bank. Rekst­ur­inn var ekki í sam­ræmi við vænt­ingar og sjóð­streymi í félag­inu dugði ekki til að greiða af þeim miklu skuldum sem hvíldu á félag­inu, en þær mátti að mestu leyti rekja til yfir­tökutil­boðs­ins sum­arið 2007, þegar íslenska efna­hags­bólan var þanin til fulls.

Lagt var upp með að reyna að sam­eina félagið öðru stóru sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæki og styrkja með því rekstur og veð­stöðu Deutsche Bank. Bankinn vildi sam­eina Actavis og Rati­oph­arma, en það fór út um þúfur þegar Teva keypti Rati­oph­arma í mars 2010 og setti málin aftur á byrj­un­ar­reit. Ríflega þremur mán­uðum síðar var svo gengið frá und­ir­rit­uðu sam­komu­lagi milli Björg­ólfs Thors og Novators og allra lán­ar­drottna og þeirra sem áttu kröfu á hann.

Tilkynnt um skuldauppgjör


Um þetta til­kynnti Björgólfur Thor með frétta­til­kynn­ingu 21. júlí 2010. Í henni sagði meðal ann­ars: „Samkvæmt sam­komu­lag­inu [við kröfu­hafa] munu skuldir verða gerðar upp að fullu og ekki gefnar eftir. Allar eignir Björg­ólfs Thors og Novators liggja til grund­vallar upp­gjör­inu, en á þeim var gerð ítar­leg úttekt og mat af hálfu alþjóð­legs ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækis. Björgólfur Thor verður áfram hlut­hafi í félögum á borð við Actavis, Play, CCP og Verne Holding. Arðurinn af þessum eign­ar­hlutum og verð­mæti, komi til sölu þeirra, mun ganga til upp­gjörs skuld­anna, ásamt ýmsum per­sónu­legum eigum hans. Þar á meðal eru hús­eign í Reykja­vík og sum­ar­hús við Þing­velli. Samhliða þessu skulda­upp­gjöri hefur náðst sam­komu­lag um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Actavis. Við gerð sam­komu­lags­ins nutu Björgólfur Thor og Novator lið­sinnis tveggja alþjóð­legra fyr­ir­tækja, hinnar virtu lög­manns­stofu Linkla­ters og ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Alix­Partners, sem er eitt þekktasta fyr­ir­tæki heims á sviði fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar“.

Eftir að sam­komu­lagi hafði verið náð þar sem allir sem áttu hags­muna að gæta komu að borð­inu var vinnu haldið áfram. Í sam­komu­lag­inu fólst meðal ann­ars að Deutsche Bank réði ferð­inni þegar kom að Actavis en skuld­batt sig til að vinna úr stöðu mála með Björgólfi Thor og Novator. Með sam­komu­lag­inu varð form­lega ljóst að Björgólfur Thor yrði ekki gerður per­sónu­lega gjald­þrota.

Deutsche Bank tilkynnir um yfirtöku á Actavis


Bankinn til­kynnti um yfir­töku á Actavis með bréfi til fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins 18. ágúst 2010 en yfir­tökur banka á stórum fyr­ir­tækjum eru til­kynn­inga­skyldar. Frá þessu var greint í Stjórn­ar­tíð­indum Evr­ópu­sam­bands­ins (The Official Journal of The European Union). Alþjóð­legir bankar mega undir venju­legum kring­um­stæðum ekki eiga fyr­ir­tæki í óskyldum rekstri, líkt og er lög­bundið á Íslandi. Til­kynn­ingin þjónar þeim til­gangi að veita eft­ir­lits­að­ilum upp­lýs­ingar um að banki sé kom­inn með yfir­ráð yfir fyr­ir­tæki í sam­keppn­is­rekstri.

Fram­kvæmda­stjórn ESB og eftir atvikum aðrir eft­ir­lits­að­ilar geta síðan sett tímara­mma um hversu lengi bank­inn má eiga fyr­ir­tækið, þannig að eign­ar­haldið raski ekki sam­keppni. Talskona Björg­ólfs Thors, Ragn­hildur Sverr­is­dóttir, sagði til­kynn­ing­una tengj­ast fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu Actavis en tjáði sig að öðru leyti ekki um hvort bank­inn hefði í reynd tekið Actavis yfir. Reuters-frétta­veitan greindi hins vegar frá því að Deutsche Bank hefði sann­ar­lega tekið fyr­ir­tækið yfir og það gerðu einnig fleiri erlendir fjöl­miðlar. Til­kynn­ingin var enda afdrátt­ar­laus.

Nokkrum mán­uðum fyrr var orðið ljóst að bank­inn réði í raun för hjá félag­inu enda með mikla hag­muni gagn­vart því. Starfs­menn bank­ans vildu vinna áfram með Björgólfi Thor og stjórn­enda­teymi Actavis, með það fyrir augum að hámarka virði eigna og við­halda traustum grunn­rekstri. Stephen Pitts, sem starfar hjá Deutsche Bank í London, hélt flestum þráðum nærri sér í þess­ari vinnu og stýrði málum fyrir hönd bank­ans.

Skipt um forstjóra og stjórnendateymi


Hluti af end­ur­skipu­lagn­ing­ar­ferl­inu var að skipta um for­stjóra og færa stjórn­enda­teymið allt á einn stað. Aust­ur­rískur doktor í lög­fræði, Claudio Albrecht, tók við for­stjóra­starf­inu af Sigurði Óla Ólafs­syni, sem verið hafði for­stjóri félags­ins frá því haustið 2008 þegar Róbert Wessmann hætti sem for­stjóri eftir tíu ára starf. Sigurður Óli starf­aði sem stjórn­andi hjá félag­inu í sjö ár og lengst af þétt við hlið Róberts. Albrecht hafði víð­tæka reynslu af rekstri lyfja­fyr­ir­tækja. Hann var for­stjóri Rati­oph­arm um ára­bil og stofn­aði sitt eigið ráð­gjafa­fyr­ir­tæki árið 2008, Cometh að nafni. Í aðdrag­anda þess að hann var ráð­inn for­stjóri hafði hann um nokk­urra mán­aða skeið veitt Actavis og lán­ar­drottnum þess ráð­gjöf um hvernig bæta mætti rekst­ur­inn.

Þó látið hafi verið í það skína að við­skiln­aður Róberts við Actavis hafi verið á góðum nótum, meðal ann­ars í frétta­til­kynn­ingu af því til­efni til fjöl­miðla 6. ágúst 2008, var sú ekki raunin. Logandi ill­deilur höfðu verið á milli Róberts og Björg­ólfs Thors skömmu áður en Róbert hætti. Ástæður þeirra voru marg­þættar, meðal ann­ars vanda­mál í verk­smiðjum Actavis í Banda­ríkj­unum sum­arið 2008. Út á við hafa Björgólfur Thor og Róbert ekki litið málin sömu augum og hafa þeir meðal ann­ars náð að deila um það hvort Róbert hafi verið rek­inn eða hvort hann hafi hætt af sjálfs­dáðum. Björgólfur Thor segir hann hafa verið rek­inn en þessu neitar Róbert. Hann sagði meðal ann­ars í við­tölum er hann lét af störfum að hann vildi fara að ein­beita sér að fjár­fest­ingum fjár­fest­inga­fé­lags­ins síns, Salt Invest­ments.

Róbert þurfti að greiða Björgólfi Thor


Eftir að hafa tek­ist á fyrir dóm­stólum eftir hrunið gerðu Róbert og félag Björg­ólfs Thors, Novator Pharma, með sér sátt í deilum þeirra. Var hún sam­þykkt af beggja hálfu snemma í nóv­em­ber 2012. Sáttin fólst í því að Róbert skrif­aði undir skulda­bréf upp á 5 millj­ónir evra, jafn­virði rúm­lega 810 millj­óna króna, sem hann þarf að greiða Björgólfi Thor og Actavis. Upphaf deiln­anna má rekja til þess þegar þeir gerðu með sér samn­ing í júlí 2007 þar sem kveðið var á um að Róbert, sem þá var for­stjóri Actavis, myndi kaupa tólf pró­sent hluta­fjár í Novator Pharma þegar ákveðnum ráð­stöf­unum á yfir­töku Actavis yrði lokið. Róbert átti að fá árang­urstengdna þóknun ef allt gengi eftir sem stefnt var að. Eftir hrunið stóðu félög Björg­ólfs Thors svo illa að þau gátu ekki staðið við sitt gagn­vart Róberti og end­uðu deilur um þetta fyrir dóm­stólum. Róberti voru dæmdar 30 millj­ónir evra frá hinu eigna­lausa félagi Björg­ólfs, en Róbert var á móti dæmdur til að greiða félag­inu Bee Tee Bee Limited 7,7 millj­ónir evra. Ábyrgðin að baki félag­inu sem skuld­aði Róberti var tak­mörkuð en Róbert var í per­sónu­legri ábyrgð fyrir skuld­unum við Bee Tee Bee. Á þessum grunni var samið og þarf Róbert að greiða Björgólfi sam­kvæmt skulda­bréf­inu sem er á gjald­daga 2015.

Yfir­stjórn Actavis var flutt til Zug í Sviss á vor­mán­uðum 2011 eftir að Deutsche Bank var komið með tögl og hagldir í félag­inu. Það þýddi að lyk­il­stjórn­endur þess flutt­ust til Sviss og stýrðu félag­inu þaðan. Félagið var áfram með íslenska kenni­tölu og umfangs­mikla fram­leiðslu í Hafn­ar­firði.

Björgólfur verður ævintýralega ríkur...aftur


Áfram var unnið að sölu á Actavis og í apríl 2012 dró til tíð­inda. Þá var til­kynnt um yfir­töku lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Watson á Actavis. Samtals voru greiddar um 700 millj­arðar króna fyrir félagið en til við­bótar áttu að koma greiðslur sem tóku mið af því hvernig rekstur Actavis var árið 2012 sam­kvæmt upp­gjöri. Hagur Björg­ólfs Thors og Novator vænk­að­ist við þetta en í þeirra hlut komu fimm millj­ónir hluta í hinu nýja félagi á grund­velli samn­ings við Deutsche Bank sem gerður var sam­hliða kaupum Watson. Eftir að til­kynnt var um kaup Watson á Actavis, og þar með sam­ein­ingu þess­ara félaga, hefur mark­aðsvirði þess hækkað hratt. Það er skráð á markað undir nafni Actavis og hækk­aði gengi bréfa á hlut úr tæp­lega 60 dölum frá því til­kynnt var um kaupin í 127,2 dali þann 22. maí 2013, ríf­lega ári síðar. Þetta þýddi að hlutur Björg­ólfs í Actavis í gegnum Novator var á milli 70 og 80 millj­arða króna virði á þeim tíma.

Um miðjan maí 2013 var síðan til­kynnt um enn meiri stækkun á efna­hags­reikn­ingi Actavis þegar greint var frá kaupum félags­ins á írska lyfja­fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Warner Chilcott. Samkvæmt fyrstu fréttum AFP-frétta­veit­unnar var kaup­verðið áætlað um 8,5 millj­arða dala, sem jafn­gilti um 1.100 millj­örðum króna, miðað við gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal dag­inn sem til­kynnt var um við­skiptin.

Í dag er gengi bréfa í Actavis 206,3 dalir. Það þýðir að hlutur Björg­ólfs Thors er nú yfir 120 millj­arða króna virði.

Allt var undir, líka einkaþotan og snekkjan


Allt eigna­safn Björg­ólfs Thors og félaga sem hann tengd­ist var sett að veði fyrir því að honum tæk­ist að greiða skuldir sínar til baka. Steingrá einka­þota hans af Challenger-gerð, sem merkt var Novator, var þar á meðal. Hún var oft í kast­ljósi fjöl­miðla þegar allt var í blóma í íslensku við­skipta­lífi. Fyrr­ver­andi leið­togi Sov­ét­ríkj­anna, Mikhail Gor­bat­sjov, fékk meðal ann­ars far með henni þegar hann kom hingað til lands 11. októ­ber 2006 til að halda fyr­ir­lestur í Háskóla­bíói. Hún var að lokum seld. Það sama átti við um snekkj­una Element sem var bátur af dýr­ari gerð­inni, svo ekki sé fastar að orði kveðið.

Upp­haf­lega var gert ráð fyrir því að nið­ur­staðan úr upp­gjöri Björg­ólfs Thors og Novator við kröfu­hafa myndi ekki liggja fyrir fyrr en fjar­skipta­fyr­ir­tækið Play í Póllandi yrði selt. Það er á meðal stærstu far­síma­fyr­ir­tækja Póllands en við­skipta­vinir þess voru á vor­mán­uðum 2013 ríf­lega 9,1 milljón tals­ins. Í til­kynn­ingu Björg­ólfs Thors frá því í gær segir um Play: „Á upp­gjörs­tím­anum hefur fjar­skipta­fyr­ir­tækið Play í Póllandi vaxið hröðum skrefum og sá vöxtur á sinn þátt í að upp­gjöri lauk á aðeins fjórum árum. Trú fjár­festa á fyr­ir­tæk­inu var stað­fest í febr­úar sl. þegar eft­ir­spurn eftir skulda­bréfum fyr­ir­tæk­is­ins fór fram úr björt­ustu vonum".

Hægt er að lesa frétta­til­kynn­ingu Björg­ólfs Thors um skulda­upp­gjörið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár