Veisla fyrir þá sem vilja dvelja í fortíð

The gates to hea­ven are about to open for cinema lovers,“ sagði finnski leik­stjór­inn Peter von Bagh við setn­ingu Il Cinema Rit­rovato kvik­mynda­hátíð­ar­innar. Hann hefur verið list­rænn stjórn­andi hátíð­ar­innar frá árinu 2001 en hátíðin var haldin í 28. sinn í Bologna á Ítalíu fyrir skemmstu. Il Cinema Rit­rovato er átta daga hátíð gam­alla end­ur­gerðra ­kvik­mynda. Þangað mæta full­trúar allra helstu kvik­mynda­safna og ­stúd­íóa heims, fram­leið­endur, for­verðir, kvik­mynda­fræð­ingar og ekki síst áhuga­fólk, til þess að sjá gamlar myndir, bestu sýn­ing­ar­ein­tökin, og staf­rænar (digi­tal) og hlið­rænar (ana­log) end­ur­bætur á ein­stökum myndum. Andrea Krämer, kvik­mynda­for­vörður í Berlín, sem vinnur náið með þýska leik­stjór­anum Wim Wenders að við­gerðum á myndum hans, segir að á hátíð­ina komi allir þeir sem koma að varð­veislu, við­gerðum, söfnum og sýn­ingum kvik­mynda og að hátíðin sé án efa stærsti við­burður árs­ins í filmu­heim­inum. Hátíðin skapi vett­vang og tæki­færi fyrir fag­fólk og áhuga­fólk til að hitt­ast, horfa á myndir og ræða strauma og stefnur for­tíðar og fram­tíðar í kvik­mynda­gerð, og þar með fram­tíð kvik­mynda sem menn­ing­ar­arfs.

Dagskrá hátíð­ar­innar sam­an­stóð af 360 myndum, sú elsta frá 1895, og opnum fyr­ir­lestrum um verk­efni kvik­mynda­safna og stúd­íóa. Dag­skránni var skipt í nokkur þemu. Eitt þemað í ár var um stríð og frið og frið­ar­myndir sem voru gerðar stuttu áður en fyrri heims­styrj­öldin braust út fyrir 100 árum voru sýndar. Á efn­is­skránni voru einnig m.a. pólska ­nýbylgjan frá 1960 (leik­stjórar eins og Wadja og Has), jap­anskar myndir frá fjórða ára­tugnum (leik­stjórar eins og Mazoguchi og Ozu) og ítalskar stutt­myndir frá 1960. Ákveðnir leik­stjórar eða leik­arar eru alltaf teknir fyrir og í ár voru það m.a. Werner Hochbaum, Germanie Dulac, William Wellman, Riccardo Freda og gam­an­leik­konan Rosa Porten.


[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_07_24/47[/embed]

Meistari Chaplin mikill áhrifavaldur

Þá var sér­stök hátíð­ar­dag­skrá í til­efni af 100 ára afmæli Tramps, hins ógleym­an­lega karakt­ers Charlie Chaplins. Kvik­mynda­verk­stæðið í Bologna sá um við­gerðir á Chaplin-safn­inu og sýndi afrakstur þess á hátíð­inni. Einn af gestum ­hátíð­ar­innar var banda­ríski leik­stjór­inn Alex­ander Payne, sem m.a. leik­stýrði mynd­unum Sideways og The ­Descendants. Alex­ander Payne sagði gestum hátíð­ar­innar af ein­lægni frá því hvernig Chaplin hefði haft áhrif á sig sem ungur maður, jafn­vel orðið til þess að hann fór út í kvik­mynda­gerð, og end­aði á að segja: „Það að tala um Chaplin er eins og að tala um trú­ar­brögð. Nema ég trúi á Chaplin.“

Gamlar bíómyndir öðlast „nýtt“ líf

Markmið hátíð­ar­innar er öðrum þræði að sýna afrakstur vinnu kvik­mynda­safna og verk­stæða við end­ur­bætur á kvik­myndum og miðla því sem felst í því að búa til og varð­veita kvik­myndir. Banda­ríski leik­stjór­inn Martin Scorsese, sem er tíður gestur á hátíð­inni, hefur beitt sér fyrir varð­veislu á gömlum kvik­myndum sem veitt hafa honum inn­blástur í sinni sköpun í gegnum sam­tökin The Film Foundation. Scorsese kom að end­ur­gerð­inni á öllum þremur myndum James Dean: Rebel Without a Cause í leik­stjórn Nicholas Ray, Giant í leik­stjórn George Stevens og East of Eden í leik­stjórn Elia Kazen, en mynd­irnar er búið að skanna í hárri upp­lausn og gera við staf­rænt hjá Warner Bros með stuðn­ingi Film Foundation. Þær voru ­sýndar með við­höfn á hátíð­inni í nýju end­ur­bættu ­útgáf­unum og eru nú eins nálægt upp­runa­legu mynd­unum og hægt er með nútíma tækni.


Ned Price, yfir­maður for­vörslu hjá Warner Bros, kynnti end­ur­gerð­ina á mynd­unum þremur, sem fram­leiddar voru á árunum 1955 til 1956. Út frá kvik­mynda­tækni er fer­ill James Dean sér­stakur, þótt stuttur hafi verið og bara um þrjár myndir að ræða. Á þessum árum var umbylt­ing í filmu- og linsu­tækni þar sem lit­filmur, breið­tjalds­tækni (CinemaScope) og fjöl­rása stereo voru að ryðja sér til rúms, en tæknin enn ófull­komin. Price fór yfir spurn­ingar og álita­mál sem verk­stæðin og stúd­íóin þurfa að skoða í við­gerð­ar­ferl­inu, tækni­legar og ekki síður sið­ferði­legar spurn­ingar - hversu mikið á að fylgja upp­runa­legu filmunni, hvaða tækni var til staðar á þeim tíma sem myndin var gerð, hversu langt á að ganga þar sem skemmdir og lita­skekkjur eru o.s.frv. Svörin geta verið mjög mis­jöfn eftir verk­stæðum, þjálfun þeirra sem koma að við­gerð­inni, og auð­vitað spilar fjár­magn inn í. Samkvæmt full­trúa Cineric, eft­ir­vinnslu­fyr­ir­tækis sem stað­sett er í New York og var á hátíð­inni, er hægt að miða við að við­gerð á hverri mín­útu af mynd kosti um 2000 doll­ara.


Þá var ný útgáfa þýsku stór­mynd­ar­innar Das Cabinet des Dr. Caligari kynnt og sýnd, en þetta er fjórða end­ur­gerðin af mynd­inni. Hátíðin hefur sýnt allar end­ur­gerð­irnar í gegnum tíð­ina, þá síð­ustu fyrir 20 árum, en þessi nýja ku vera sú sem kemst næst upp­runa­legu útgáf­unni miðað við það efni sem til er í dag. Þegar ákveðið er að laga kvik­mynd, eins og í til­felli Dr. Caligari, er reynt að finna frum­ein­tökin eða ein­tök sem eru eins nálægt þeim og mögu­legt er. Anke Wilkening, kvik­mynda­for­vörður hjá Murnau Stiftung, sagði frá ævin­týra­legu ferða­lagi mynd­ar­innar frá því hún var frum­sýnd í Berlín árið 1920. Frum­filman var í nokkur ár varð­veitt í Rík­is­kvik­mynda­safni Þriðja Ríkisins en eftir síð­ari heims­styrj­öld­ina voru þær fluttar til Moskvu. Þar lágu þær fram á átt­unda ára­tug­inn þegar þeim var skilað til Austur-Berlínar og end­uðu svo eftir sam­ein­ingu Þýska­lands í skjala­safni lýð­veld­is­ins. Á flakk­inu týnd­ist hins vegar fyrsta rúllan af sex og er nú talin glötuð. Í ljós kom að engar eft­ir­prent­anir höfðu verið gerðar af upp­runa­legu filmunni síðan fyrir síð­ari heims­styrj­öld­ina og við fyrri end­ur­gerðir höfðu verið notuð ófull­komin sýn­ing­ar­ein­tök, sem voru þá afrit af afritum. Til að fylla upp í göt og skemmdir þurfti að finna dreif­ingar­ein­tök sem afrituð voru af filmunni eins nálægt upp­tökum og hægt var, og rakti Wilkening elstu ein­tökin m.a. til Suður-Ameríku og Museum of Modern Art í New York. Var not­ast við þau við end­ur­gerð fyrsta hluta mynd­ar­innar. Film­urnar voru skann­aðar og myndin hreinsuð og lita­leið­rétt á verk­stæð­inu í Bologna, og fullir eft­ir­vænt­ingar sáu gestir hátíð­ar­innar nýju staf­rænu end­ur­gerð­ina af Dr. Caligari.

Filmusjúkir fjölmenna á hátíðina

En það eru ekki bara staf­rænt end­ur­gerðar stór­myndir sem sýndar eru á hátíð­inni. Mikil áhersla er lögð á að sýna sjald­gæfar myndir af upp­runa­legum dreif­ing­arfilmum og þöglar myndir sýndar með und­ir­leik píanós eða sin­fón­íu­hljóm­sveitar. Meiri­hluti dag­skrár­innar er sýndur af 35mm filmum og margir gestir hátíð­ar­innar, sem eru um 2.000 tals­ins, koma einmitt ein­göngu á hátíð­ina til þess að upp­lifa það. Peter von Bagh hrós­aði sér­stak­lega full­trúum Sænsku kvik­mynda­stofn­un­ar­innar á hátíð­inni í ár fyrir hug­rekki, en á sænska kvik­mynda­safn­inu var nýlega opnað verk­stæði fyrir filmur á meðan verið er að loka mörgum af helstu verk­stæðum heims, og sam­hliða því sam­þykkti sænska ríkið að fjár­magna tíu ára verk­efni til að koma öllum sænskum kvik­mynda­arfi á staf­rænt form. Þá sagði Peter von Bagh aðstand­endur hátíð­ar­innar vera að venj­ast þeirri til­hugsun að sífellt fleiri gömlum myndum væri varpað með svoköll­uðum DCP (Digital Cinema Package) og því að flestar kvik­mynda­há­tíðir í heimi sýndu ekki lengur neinar myndir af 35mm filmum, eða „real movies“, eins og hann kallar annað en staf­rænar útgáfur. Vissu­lega íhalds­söm við­horf, en það er sann­ar­lega hægt að taka undir orð Peters von Bagh frá setn­ingu hátíð­ar­innar – á hátíð­inni opn­ast himn­arnir fyrir kvik­myndaunn­endur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár