Innbrotsþjófur lagði á flótta undan nöktum húseiganda

Brotist var inn í íbúð á efstu hæð skrif­stofu­húss við Laugaveg í nótt, en skrif­stofur Kjarnans eru þar einnig til húsa. Par, sem býr í íbúð­inni, vakn­aði upp við inn­brots­þjófinn er hann var staddur við svefn­her­bergi þeirra, en þá hafði þjóf­ur­inn athafnað sig inn á heim­il­inu.

Hús­eig­and­inn spratt þá allsnak­inn á fætur upp úr rúm­inu, og tók þá þjóf­ur­inn til fót­anna. Hófst þá mik­ill elt­inga­leikur út úr íbúð­inni og niður stiga­gang húss­ins, en þjóf­ur­inn náði með miklum naum­indum að flýja út um úti­dyra­hurð húss­ins á jarð­hæð, rétt áður en hús­eig­and­inn náði að hafa hendur í hári hans.

Inn­brots­þjóf­ur­inn, ungur karl­maður, hafði á brott með sér iPad-spjald­tölvu, iPhone-snjall­síma, þrjú arm­bandsúr og pen­inga, en heild­ar­verð­mæti mun­anna nemur um einni milljón króna.

Und­an­farnar vikur hefur verið unnið að við­gerðum á hús­inu og ljóst er að þjóf­ur­inn hefur nýtt sér vinnu­palla til að athuga með opna glugga á hús­inu. Hús­eig­and­inn hefur í þrí­gang til­kynnt lög­reglu um grun­sam­legar manna­ferðir í vinnupöll­unum að næt­ur­lagi.

Rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar fer með rann­sókn máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár