Þrír umsækjendur hnífjafnir í hæfismati um stöðu seðlabankastjóra

Samkvæmt umsögn nefndar sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra skip­aði í lok júní, til að leggja mat á hæfi umsækj­enda um stöðu seðla­banka­stjóra, eru Friðrik Már Bald­urs­son, Ragnar Árnason og Már Guð­munds­son hæf­astir umsækj­enda til að gegna stöð­unni. Kjarninn hefur umsögn nefnd­ar­innar undir höndum.

Við mat á hæfni umsækj­enda var lagt fyrir nefnd­ina að hafa til hlið­sjónar; menntun, starfs­feril, reynslu og þekk­ingu á fjár­mála­starf­semi og efna­hags- og pen­inga­málum, stjórn­un­ar­hæfi­leika og loks hæfni í mann­legum sam­skiptum. Nefndin mat hvern umsækj­enda þannig að hann var ýmist mjög vel hæfur, vel hæfur, hæfur eða ekki hæfur í hverjum þætti fyrir sig.

Mjótt á mununum


Samkvæmt lögum skal seðla­banka­stjóri hafa lokið háskóla­prófi í hag­fræði eða tengdum greinum. Fjögur umsækj­enda höfðu auk þessa lokið dokt­ors­prófi og voru metin mjög vel hæf; þau Ásgeir Brynjar Torfason, Friðrik Már Bald­urs­son, Lilja Mós­es­dóttir og Ragnar Árnason. Nefndin mat sömu­leiðis Má Guð­munds­son og Þorstein Þor­geirs­son mjög vel hæfa til að gegna stöðu seðla­banka­stjóra, en þeir hafa lagt stund á dokt­ors­nám.

Með hlið­sjón af starfs­ferli umsækj­enda mat nefndin Friðrik Má Bald­urs­son, Lilju Mós­es­dóttur, Má Guð­munds­son, Ragnar Árnason, Yngva Örn Krist­ins­son og Þor­steinn Þor­geirs­son mjög vel hæf, en Ásgeir Brynjar Torfason var met­inn vel hæfur.

Í lögum um hæfi seðla­banka­stjóra er kveðið á um að hann skuli búa yfir víð­tækri reynslu og þekk­ingu á fjár­mála­starf­semi og efna­hags- og pen­inga­málum. Í umsögn nefnd­ar­innar má greina að hún hafi átt í nokkrum vand­ræðum með að gera upp á milli umsækj­enda hvað þetta varðar, þar sem hvorki er að finna í grein­ar­gerð með laga­frum­varp­inu eða nefnd­ar­á­liti meiri­hluta við­skipta­nefndar, sem lagði til breyt­ingar á 0rða­lagi ákvæð­is­ins í með­förum þings­ins, leið­bein­ingar um hvernig meta eigi þessa reynslu og þekk­ingu eða til hvaða atriða eigi sér­stak­lega að horfa. Nefndin kaus því að líta sér­stak­lega til reynslu umsækj­enda af störfum við stjórn pen­inga­mála, og til starfa á fjár­magns­mark­aði og rann­sókn­ar­starfa, einkum á sviði pen­inga­mála.

Með hlið­sjón af ofan­greindu mat hæf­is­nefndin þá Friðrik Má Bald­urs­son, Má Guð­munds­son og Ragnar Árnason mjög vel hæfa í stöðu seðla­banka­stjóra. Lilja Mós­es­dóttir, Yngvi Örn Krist­ins­son og Þor­steinn Þor­geirs­son voru metin vel hæf, og Ásgeir Brynjar Torfason hæfur.

Hæf­is­nefndin gerði ekki grein­ar­mun á umsækj­endum út frá stjórn­un­ar­hæfi­leikum eða hæfni þeirra í mann­legum sam­skiptum.

Þrír umsækjendur hnífjafnir


Samkvæmt útreikn­ingi Kjarnans eru þeir Friðrik Már Bald­urs­son, Már Guð­munds­son og Ragnar Árnason hnífjafnir í kapp­hlaup­inu um seðla­banka­stjóra­stöð­una, ef hæfi þeirra er miðað út frá stiga­gjöf. Þeir hlutu allir tólf stig, Lilja Mós­es­dóttir og Þor­steinn Þor­geirs­son fengu ell­efu stig, Yngvi Örn Krist­ins­son tíu og Ásgeir Brynjar Torfason rak lest­ina með níu stig.

Í nið­ur­stöðu hæf­is­nefnd­ar­innar má greina hvar helst er gert upp á milli þre­menn­ing­anna: "Friðrik Már og Ragnar hafa báðir lokið gunn og fram­halds­námi við háskóla auk dokt­ors­prófs í greinum sem krafa er gerð um (sam­kvæmt lögum, innsk. blaða­manns). Már hefur sömu­leiðis lokið grunn- og fram­halds­námi við háskóla sem full­nægir kröfum lag­anna og jafn­framt lagt stund á dokt­or­smán um skeið. Allir búa þeir yfir víð­tækri reynslu og þekk­ingu á fjár­mála­starf­semi og efna­hag- og pen­inga­málum. Már sker sig þar úr hvað reynslu af banka­starf­semi varðar vegna starfa sinna í Seðla­banka Íslands um ára­bil, síð­ustu ár sem seðla­banka­stjóri, auk mik­il­vægrar reynslu sem hann öðl­að­ist í starfi sínu hjá Alþjóða­greiðslu­bank­anum í Basel í Sviss. Reynsla Friðriks Más og Ragnars á þessu sviði er einna mest af fræði-, kennslu- og stjórn­un­ar­störfum við háskóla þar sem þeir hafa starfað um ára­bil. Friðrik Már búi einnig að mik­il­vægri reynslu af sér­fræð­ings- og stjórn­un­ar­störfum hjá Þjóð­hags­stofnun og í stjórnun fyr­ir­tækja. Ragnar þekkir vel til starfa Seðla­banka Íslands eftir setu í banka­ráði hans und­an­farin fimm ár auk fleiri stjórn­un­ar­starfa."

Allir umsækj­endur um stöðu seðla­banka­stjóra hafa frest til mið­viku­dags­ins 23. júlí til að koma á fram­færi form­legum athuga­semdum er lúta að hæf­is­mati þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár