Þrír koma til greina sem næsti seðlabankastjóri

Friðrik Már Bald­urs­son, Már Guð­munds­son og Ragnar Árnason eru hæf­astir umsækj­enda til að gegna stöðu seðla­banka­stjóra. Þetta kemur fram í umsögn nefndar sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra skip­aði í lok júní til að leggja mat á hæfi umsækj­enda um stöð­una. Kjarninn hefur umsögn hæf­is­nefnd­ar­innar undir höndum.

Þar er að finna ítar­legar umsagnir um hvern umsækj­anda, þar sem fram koma almennar upp­lýs­ingar um þá og hæfni þeirra. Umsækj­end­urnir hafa frest til mið­viku­dags­ins 23. júlí til að koma á fram­færi form­legum athuga­semdum er lúta að hæf­is­mati þeirra.

Um emb­ætti seða­banka­stjóra sóttu auk fyrr­greindra, þau Ásgeir Brynjar Torfason, Haukur Jóhanns­son, Íris Arn­laugs­dóttir, Lilja Mós­es­dóttir, Sandra María Sig­urð­ar­dóttir, Yngvi Örn Krist­ins­son og Þor­steinn Þor­geirs­son. Umsókn­ar­frestur um stöð­una rann út 27. júní síð­ast­lið­inn. Eftir fyrstu yfir­ferð var það mat hæf­is­nefnd­ar­innar að þrír umsækj­endur, þau Haukur , Íris og Sandra María, upp­fylltu ekki hæfis­kröfur sem gerðar voru til umsækj­enda.

Í hæf­is­nefnd­ina voru skipuð Guð­mundur Magn­ús­son, fyrr­ver­andi rektor Háskóla Íslands, Ólöf Nordal, fyrr­ver­andi vara­for­maður og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og núver­andi for­maður banka­ráðs Seðla­bank­ans, og Stefán Eiríks­son lög­fræð­ingur sem jafn­framt var skip­aður for­maður nefnd­ar­innar. Stefán og Guð­mundur önn­uð­ust við­töl við umsækj­endur. Ólöf Nordal kom að allri máls­með­ferð nefnd­ar­innar fram til 14. júlí, þar á meðal gerð umsagn­ar­innar og und­ir­bún­ingi við­tala. Hún kom hins vegar ekki að loka­gerð umsagn­ar­innar vegna for­falla.

Við mat á hæfi umsækj­enda var lagt fyrir nefnd­ina að hafa meðal ann­ars til hlið­sjónar; menntun, starfs­feril, reynslu og þekk­ingu á fjár­mála­starf­semi og efna­hags- og pen­inga­málum.

Í álykt­ar­orðum umsagn­ar­innar segir: "...er það nið­ur­staða nefndar sem fékk það hlut­verk að meta hæfi umsækj­enda um emb­ætti seðla­banka­stjóra að Friðrik Már Bald­urs­son, Már Guð­munds­son og Ragnar Árnason séu allir mjög vel hæfir til að til að hljóta emb­ætti seðla­banka­stjóra sem aug­lýst var laust til umsóknar 2. júní 2014 í Lög­birt­inga­blaði og á vefnum."

Búist er við að Bjarni Bene­dikts­son efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra skipi í stöðu seðla­banka­stjóra á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár