Dönsk brjóstamjólk á leið til landsins

Samkvæmt Alþjóða heil­brigð­is­stofn­un­inni (WHO) er brjósta­mjólk besta nær­ing sem völ er á fyrir ung­börn. Mælt er með að ung­börn fái ein­göngu brjósta­mjólk fyrstu sex mán­uði ævinnar og síðan sem ábót með fastri fæðu í að minnsta kosti tvö ár eða lengur. Brjósta­mjólk inni­heldur nauð­syn­leg nær­ingar­efni og varn­ar­þætti sem stuðla að heil­brigðum vexti og þroska ung­barna, og ef brjósta­mjólk móður er ekki til staðar mælir WHO með því að næst besti kost­ur­inn sé brjósta­mjólk úr svoköll­uðum brjósta­mjólk­ur­banka, en síð­asta val skuli vera þurr­mjólk.

Brjósta­mjólk­ur­bönkum hefur farið fjölg­andi í heim­inum frá því að fyrsta bank­anum var komið á fót í Aust­ur­ríki árið 1909, en Ísland er eina Norð­ur­landa­þjóðin sem ekki hefur tekið í notkun brjósta­mjólk­ur­banka.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri rit­gerð Mar­grétar Helgu Skúla­dóttur og Krist­ínar Linnet Ein­ars­dóttur til BS-prófs í hjúkr­un­ar­fræði við Heil­brigð­is­vís­inda­svið Háskóla Íslands. Kjarninn fjallar nánar um helstu nið­ur­stöður rit­gerð­ar­innar.

Land­spít­al­inn hefur nú samið um kaup á danskri brjósta­mjólk handa fyr­ir­burum, en von er á send­ingu til lands­ins á næst­unni.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_07_17/16[/embed]

Lestu ítar­lega umfjöllun um málið í nýj­ustu útgáfu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár